Vorið - 01.06.1953, Page 6

Vorið - 01.06.1953, Page 6
44 VORIÐ kannske ekki alveg eins fiott og við. Þau eru að minnsta kosti ekkert með neinn tilgerðar tepru- skap. LÍSA: Nei, ekki myndi frænda, sem er svo flugríkur, geðjast að þeirn. Hefði hann verið bara svona venjulegur frændi, þá hefði verið allt öðru máli að gegna. EVA: Nei, það eru nú auðvitað ekki allir við hæfi Marteins frænda. — Við erum nú til allrar hamingju ekki neinir fátækl- ingar. FRÆNKA: Nei, það verður að vera samræmi í hlutunum. FINNUR: Æ-i, mér verður óglatt af að hlusta á ykkur. EIRIKUR: Já, það er alveg skömm að heyra til ykkar. Eins og fólk sé ekki jafn gott fyrir því, þótt það sé ekki svo salla-flott og eigi ekki hrúgu af peningum. MÓÐIRIN: Þegiðu hara, strákur, þú hefur ekkert vit á þessu. FINNUR: Eigi ég að vera alveg hreinskilinn, þá liefur frændfólk- ið okkar miklu meiri þörf fyrir peningana hans frænda heldur en við. LÍSA: Heyrið þið nú bara hljóðið í ,,ofvitanum“. EVA: Og framhleypnina. FINNUR: Æ-i, ég vildi bara é«ka, að frændi ætti enga peninga. Fólk verður bara hálfbrjálað í þessu peningavafstri. Þið sjáið nú bara-------•— MÓÐIRIN: Nei, nú er nóg komið- Þú ert of ungur til að skilja nokk- uð í þessu, Finnur. EVA: Hann senr er svo fullorðinn. Herramaðurinn sá arna! EIRÍKUR: Ég er alveg sammála Finni. MÓÐIRIN: Jæja, jæja, hvort sem þetta snýr upp eða niður, þa verðurn við samt að gera eitthvað. FRÆNKA: Já, það verðurn við, og það svo um muni. MÓÐIRIN: Æ-i, að ég skyldi nú asnast til að gefa Trínu frí í dag> einmitt í dag, þegar liennar var svona mikil þörf, en ekki gat ég vitað, að frændi ætlaði að koma- EVA: Sendu bara eftir henni. FINNUR: En hún fékk frí í dag, auminginn. LÍSA: Hún fær kaup fyrir að vera hérna, svo að Iiún verður að sætta sig við það. FRÆNKA: Já, það fær hún sannar- lega, og svo hefur hún það h'ka svo gott hérna, að það amar ekk- ert að henni. MÓÐIRIN: Jæja, kannske við reynum þá að fá liana til að korna lieim aftur. EIRÍKUR: Fái hún aukaborgun fyrir, þá skulum við Finnur fara og spyrja hana. LÍSA: Nei, heyrið þið nú bara gull- barnið hennar Trínu. Dengja litla. MÓÐIRIN: Svona, svona, Lísa Þú, sem ert telpa, ættir að passa V

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.