Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 10

Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 10
48 V O R I Ð EIRÍKUR: Hvað vildirðu, ég hélt svo sem ekki, að þú ættir yfirleitt til nokkurn vilja. EVA: Æ-i, haltu þér saman, kampa- lampinn þinn. I.ÍSA: Láttu liann bara eiga sig, Eva, ertnisgogginn þann arna. Komdu, líttu hérna á, þetta er alveg sama tegund og gullfallegi kjóllinn, sem við sáum í glugg- anum. EVA: Já, ó, hann er alveg draumur. FINNUR: Þú ert líka alveg draum- ur, — eða martröð. EVA (læzt ekki heyra): Ég held að þessi kjóll færi mér nú vel. EIRÍKUR: Uss, hvað þetta er væmið stelpublaður. FÍNNUR: Já, þegar þú verður komin í kjólinn þann arna, verð- urðu eflaust í vextinum eins og fallegur mjóhundur. Uss stelpur og föt, svei! LÍSA: Æ-i, þessir strákar, það er nú ljóta ruslið. FINNUR: Og stelpur eru — nei, ég ætla ekki að segja það, nei. Komdu Eiríkur, við skulum fara og fá okkur hreint loft. EVA: Já, farið þið bara, áður en okkur verður bumbult af að hlusta á ykkur. MÓÐIRIN (kemur); fæja, þiðeruð þá komnir, .drengir, hvernig gekk þetta, ætlar Trína að koma? EIRÍKUR: Já, mamma mín, hún varð svo glöð, skal ég segja þér. MÓÐIRIN: Varð hún glöð? FINNUR: Glöð, já, ég held nú það. Hana dauðlangaði einmitt heinr aftur, og ég býst við, að hennar verði ekki langt að bíða. FRÆNKA (kemur): Jæja, telpurn- ar eru þá komnar. þið eruð ljótu flugurnar. FINNUR: Bravó, frænka. Baunaðu bara á þær. FRÆNKA: Já, þegar við þurfum á telpunum að halda, eru þær alltaf úti á ferð og flugi, og við höfum í svo mörgu að snúast. EVA: En góða frænka,------- MÓÐIRIN: Trína kemur nt'i bráð- um, sem betur fer. FRÆNKA: Kemur Trína, æ, það var sannarlega gott. Þeir eru dug- legir, drengirnir okkar. Þegar frændi hefur verið hérna dálítinn tíma, skal ég gefa ykkur eitthvað skrítið. EIRÍKIJR: ]á, frænda á að blæða. MÓÐIRIN: Já, komið þið nú öll saman, við" verðum að dubba okkur ofurlítið FINNUR: Dubba okkur, eigum við þá að taka á rnóti frænda? FRÆNKA: Nei, en Marteinn frændi kemur hingað, ertu búinn að gleyma því, góði minn? FINNUR: Nei - en, - já - en- — EVA: En hvað strákar eru heimskir. EIRÍK,UR: Já, en við erum samt alls ekki tilgerðarlegir og tölutn ekki bara um draum og fötin á okkur og þess háttar bull. LÍSA: Þú ert mesti skjáhrafn.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.