Vorið - 01.06.1953, Síða 13

Vorið - 01.06.1953, Síða 13
V O R I Ð 51 Ævintýraleg Kaupmannahafnardrengs ferð til Egyptalands Birgir Nielsen frá Valby, 13 ára að alclri, teiknaði mynd ai: dóttur Faraós, þegar hún baðaði sig í ánni Níl, og voru bæði pýramídar og pálmar í baksýn. Þremur árum síðar, þegár hann var 16 ára, hlaut hann verðlaun fyrir þessa mynd. Og verðlaunin voru ókeypis ferð til Egyptalands, þar sem honum gafst tækifæri til að ríða á úlföldum rnilli pýramídanna og hafði næga þjóna til að leiðbeina sér og hjálpa. Þessu var þannig varið, að félagið ,,Listavinirnir“ í Kairó höfðu efnt til samkeppni um barnateikningar. Fyrstu verðlaun áttu að vera flug- í’erð til Egyptalands, en þau skilyrði fylgdu, að efni myndarinnar væri frá Nílarsvæðinu. Kennari Birgis hvatti hann til að taka þátt í þessari samkeppni, enda var hann dugleg- ur í teikningu. Og niðurstaðan varð sú, að hans mynd varð bezt af 30.000 myndum frá 31 landi. Skömmu fyrir jól í vetur fór Birgir svo loftleiðis til Egyptalands. Hann dvaldi þar hjá danska sendiherran- um. Hann i'ékk bíl til umráða þann tíma, sent hann var í landinu og þrjá þjóna með hvíta hanzka, senr hlýddu honunr í einu og öllu. Fyrsta ósk Birgis var að fá að sjá pýramídana. Hann skoðaði pýra- mídana og svingsinn, ferðaðist nreð báti eftir ánni Níl. Hontnn var boð- ið til Naguib lrershöfðingja og töl- uðust þeir við í 20 nrínútur, meðan raðir af fólki biðu fyrir utan eftir áheyrn. En þessunr danska dreng var sýnd enn nreiri virðing. Utanríkisráð- lrerrann bauð honunr til miðdegis- verðar og voru þar unr 50 manns, nrargt af því sendilrerrar frá ýnrsum löndum. Þar voru fluttar ntargar ræður. Og að síðustu varð Birgir að þakka fyrir sig og það gjörði hann á ensku. Hann þakkaði nreðal antrars fyrir heiðurspening úr gulli, senr hann hafði fengið. A peningnum var nrynd af Neftitu, dóttur Faraós. — Og lrvað var svo skemmtilegast í allri ferðinni? — Það voru pýramídarnir, svar- aði Birgir. —»p-»c« (E. S. þýddi).

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.