Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 17

Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 17
V () R I Ð BJARTMAR GUÐMUNDSSON: Þegar vorið bregst Nítján hundruð fjörutíu og níu. Það er enginn vandi að vera glað- ur, þegar sólin skín, þegar grösin gróa og blómin breiða út fegurð sína í maí og júní. Þegar fuglar syngja dýrðin, dýrðin og himinninn er blár og tær. Þá verðnr' lundin létt, lífið að leik og hundrað ltugs- anir fæðast, þar sent engin var áð- ur til. — Pabbi, sagði drengurinn, hvenær kemur vorið eiginlega? — (), ég veit það ekki, vinurinn minn bezti. Nú er kominn 8. júní i og stórhríðin er búin að berja utan húsin í alla nótt. Þetta var að morgunlagi kl. (i. Konan svaf enn, bóndakonan á Flötuni. En feðgarnir voru vaknað- ir sinn í hvoru rúmi. Húsbóndinn fór framan á og t<>k að klæða sig. Drengurinn sagði: — Pabbil Má ég ekki fara í húsin með þér? Hann var á 8. árinu. Diikkhærður,snareygur, Iítill dreng- ur, hnellinn og iðaði í skinninu af fjöri og athafnaþrá. — jú, drengurinn íliinn bezti. Komdn með mér. Máske geturðu bjálpað pabba eitthvað? Úti var hörkuveður. Hríðin hafði ekið saman snjónum í harða skafla, háa, þykka skafla, mannhelda skafla og skilið þó eftir allt að metra þykka fönn á jafnsléttu. En nú llafði þó mesta veðrinu slotað, um stund að minnsta kosti. Þó er enn mikil ofanhríð og skafrenningur langt upp fyrir öll hús. Hvergi sá í loft og hvergi á dökkan díl. Þeir gengu að ærhúsinu, feðgarnir, lambærhúsinu. Snjó hafði hlaðið á hurðina upp fyrir hespu. Bóndinn, Sigurður, sópaði snjónum frá hesp- unni og kippti henni fram af kengnum og lét svo drenginn renna sér inn á undan. Um allar krær lágu ær með lömbum. Sum sváfu með snoppuna ofan á framfótunum við hliðina á mömmu sinni. Önnur lágu í garðanum. Þar var svo þurrt og gott. Enn voru lömb, er hreiðrað höfðu um sig í rnjúku, mjúku reifi mömmu sinnar og steinsváfu í hlýj- unni. Við umganginn hrukku allar ær á fætur, því að þær voru að liugsa um tugguna sína, sem nú færi senn að koma. Lömbin hluþu líka á fæt- ur flest, og þau, sem í ullinni lágu, ultu ofan í króna, sum, og komu niður á höfuðið, bakið eða fæturna, allt eftir því liversu vel þau voru

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.