Vorið - 01.06.1953, Side 22

Vorið - 01.06.1953, Side 22
60 V O R I Ð víst meira úr dýraríkinu en frá jurt- um, aðallega skordýr, sem þær éta, lield ég. En þetta er kannske ekki svo ólíkt. Og í kuldanum deyr a-llt, sem ekki hefúr að éta. Þær héldu sig að þessu til miðaft- ans. Svo hurfu þær inn í kassann og tóku á sig náðir. Þessi dagur leið, eins og aðrir dag- ar. Svo kom næsti dagur. Stytt var nú upp og komið kyrrt veður, hjart veður en kalt. Ærnar á Flötum fengu enn fylli sína. Lömbin þeirra einnig. Það fá lcjmb jafnan meðan ærnar hafa ekki verið sveltar, hvorki á vetri né vori. Snjckittlingar eru horfnir., Hver einasti einn þeirra er horfinn. Það er eins og þeir séu ekki til skapaðir. — Nú er betra með honum, sagði Sigurður léttum rómi. Það vita þeir og eru búnir að gefa okkur það til kynna. í allt vor, í allt liðlangt vor hafa þeir haldið sig hérna hópum sanran. Nú eru þeir farnir, horfnir eitthvað út í buskann. Þeir vita hvað þeir segja og syngja. Sannið þið til. Vorið er á leiðinni. Enn kúrði stelkurinn þó við hesthúsið, þrösturinn og urtin. Að engu öðru höfðu þau að hverfa, ekki enn. Lóa hleypur um þakið á ærhús- inu og heggur nefi sínu niður í freðna þekjuna. Leitar sér svo aftur hvíldar í bælinu hans Snata. Marí- erlurnar hamast enn við kjötið. Þær eru ánægðar að sjá með líl'ið og sitt hlutskipti. Þcrtt þeirra fæða sé raun- ar í skordýraríkinu, þá er þctta þo ekki svo óskylt. Þær hætta sér nreira að segja við og við fram á bæjarhlað- ið, því að nú er hvassviðrið hætt að nísta. Jörðin er bálhvít eins og öræfa- jökull. A þessum árstíma á jörðin að vera græn og ilmandi af gróanda og loftin full af fuglaröddum í hrifn- ingu. Nú steinþegja allar vorraddir. Gangi maður út af túni liggja datið- ir farfuglar um allt, nærri af öllurn tegundum, sem komnar eru til landsins. Þegar búið var að borða hádegis- verðinn, hljóp lítill drengur á 8. ár- inu út að áburðarhúsinu og gægðist inn. Á viðarkubb í einu horninu situr brúnleitur fugl. Fjaðrir hans eru sléttari en í gær eins og hann hafi haft fataskipti. Þegar lrann sa drenginn, flögraði hann upp, etl kom svo aftur og settist á kubbinn sinn. Þá þiðnaði eitthvað innra nreð Jitlá drengnum, svo að hann hlj°P heim í einum spretti. — Mammá, sagði hann í dyrun- um á eldhúsinu hennar. Mannuæ hann er lifandi, litli fuglinn er lit' andi. Daginn eftir og daginn þaf 3 eftir var sólskin og blíða. Vorið hafði gleymt hlutverk1 sínu í 5 vikur eða 6. Nú hafði þ3^ aftur fundið sjálft sig og munað el1 ir hlutverki sínu. Ævinlega er betr3 seint en aldrei. En fallegt er þ3*'1 samt ekki að bregðast þeim, seH treysta. -I

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.