Vorið - 01.06.1953, Síða 27

Vorið - 01.06.1953, Síða 27
/ V O R 1 Ð 65 segir Finnur gamli og stútar sig á tóbakspontunni. „Heldurðu að það sé ekki rétt, að líta eftir börnunum?" segir Helga húsfreyja, hún er að taka smjörið af strokknum. „Jú, það held ég sé bezt. Það er þoka, svo að ég er hræddur um, að {:>au liafi villzt.“ Björn fer nú fram og nær í báða vinnumennina, Arna og Geir. Þeir ganga suður í mýri og út í lióla, en finna ekki börnin. Þeir halda áfram að leita alla nóttina, en árangurslaust. Börnin sofa enn í fjárhúsinu. Siggi rumskar við og nuddar stír- urnar úr augunum. Hann vaknar alveg og lítur í kringum sig og vek- ur systur sína. Svolítil birta berst inn um lítinn glugga, sem er yfir dyrunum á fjárhúsinu. Það er kominn morgunn. Börnin opna dyrnar og líta út. Þokunni er létt og sólin er komin hátt á loft, og i nú sjá þau ,hvar þau eru stödd. Þau hafa þá solið í beitarluisinu hans pabba síns. Nú leggja þau af stað heim og fara sér hægt. Þau koma að læk nokkuð stórum. Siggi tekur undir sig stökk mikið, en nær aðeins með tærnar ylir á bakkann hinurn meg- in, en hann helur þar skamina við- dvöl. Hann skellur aftur á bak á höfuðið ofan í lækinn. Sem betur fer er þarna ekki mjög djúpt, en leðja og slý flýtur ofan á vatninu. Hann sýpur hveljur, kemur fyrir sig fótum og skríður upp á bakkann, hóstar, spýtir og hrækir. Hann er heldur ófrýnilegur ásýndum, þak- inn leir og drullu. Hann þurrkar rnesta leirinn framan úr sér og tek- ur til fótanna lieim á leið. Gerður hleypur á eftir. Handan við hæðina suður af beit- arhúsunum mæta þau pabba sínum og piltunum. „Hvar hafið þið verið allan þenn- an tíma og hvers vegna ertu svona blautur, Siggi?“ segir pabbi hans. „Nú, við vorum að sækja kýrn- ar,“ segir Siggi, „og svo datt ég í lækinn.“ „jæja, karlinn, en ég var að spyrja þig, livai þið hefðuð verið?“ „Við vorum í beitarliúsunpm," segir Gerður um leið og luin kem- ur. Pabbi þeirra er glaður. Hann var orðinn alvarlega hræddur. Nú ganga þau öll heim á leið. Finnur eamli er í eldhúsinu og hamast við að skera sér tóbak. „Hvað er nú þetta, Siggi? Þú ert blautur. Þú hefur dottið olan í.“ ,.Já, ég datt í lækinn og stakkst alveg á liausinn og rennblotnaði.“ „Jæja karlinn, en heilsaðu nú strax upp á liana mömmu þína, lnin hefur verið svo hrædd um ykkur.“ ,,Nú, þið eruð þá komin,“ segir mamma þeirra, sem kemur inn í eldhúsið rétt í þessu og heilsar börn-

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.