Vorið - 01.06.1953, Síða 30

Vorið - 01.06.1953, Síða 30
68 VO RIÐ ( vilcli heldur reyna á annan liátt að fá miðana til að nægja. — En nú var María sjálf í vandræðum. Og hún sá, að tillaga Jörgínu var ekki slæm. Inga hafði borðað sykur tak- markalaust, og Hrólfur hafði ausið svo miklum sykri út á hafragraut- inn, að liann lá þar í þykku lagi, og sjálf hafði hún ekki sparað sykur- inn. Hugsunin urn, að allir í fjöl- skyldunni áttu að bera byrðina sam- eiginlega, gjörði hana glaða og hug- hrausta. Þegar Sören kom heim, reiknaði hann út, hve mikið hver átti að fá af sykri og smjöri. Að síð- ustu lánaði liann Maríu bréfvogina sína, svo að hún gæti vegið allt ná- kvæmlega. María hafði nóg að gera þann daginn. Hún vó og skipti skammt- inum milli þeirra allra. Hin skildu ekkert í, hvað hún ætti annríkt, en hún steinþagði um, livað hún var að gera. Við kvöldmatarborðið horfðu þau i)ll undrandi á allar skálarnar, sem stóðu hjá hverjum diski. „Hvað á þetta að þýða?“ spurði Hrólfur fullur grunsemda. ,,Það þýðir aðeins, að sykurinn og smjör- ið endist ekki,“ svaraði María og var við öllu búin. „Við höfum eytt of miklu.“ „Byrjar þú nú líka á1 þessu,“ mumlaði Hrólfur súr á’ svipinn. „Allt kvenfólk er víst fætt með þeirri gáfulegu skoðun, að smjör og sykur nægi ek.ki." „Það gjörir það ekki heldur,“ svaraði María, „og nú hefur hver fengið sinn skammt og getur notað af hon- um eítir vild. Þið getið eytt öllum sykrinum þegar í dag, ef þið viljið. Það gerir mér ekkert til. En hjá mér fáið þið ekki eitt gramm í næstu viku.“ „En hvað þú hefur gefið mér lítið,“ sagði Inga og horfði á skammtinn sinn. „En ég hef fengið enn þá minna,“ sagði Berta. „Þetta eru bara svik. María hefur skammt- að sjálfri sér mest.“ Það varð mikill hávaði, og lieiði pabbi þeirra ekki gripið inn í, er ekki gott að vita, hvernig þessu hefði lokið. Hann virti fyrir sér skálarnar á borðinu. „Það er ekki fallegt álit, sem þú hefur á stóru systur. En við verðum að treysta hvert öðru. Eg trúi ekki, að hún vilji hlynna að sér á okkar kostnað. Mér virðist þetta ágæt tilhögun, og mamma ykkar mun gleðjast yfir, að hún hefur komizt á.“ Hann leit liuglneystandi til Maríu. María roðnaði af gleði yfir hrósi föður síns, þó að hún væri svo- lítið gröm við sjálfa sig fyrir að þurfa að gera þetta. En börnin voru öll dauf í bragði. Áður hafði mamma þeirra borið ein allar þess- ar áhyggjur, en nú var þeim skipt á milli þeirra. Inga fullyrti og kvartaði yfir því, að hún yrði að borða brauðið sitt þurrt, og Hrólfur lét svo lítið ofan á bi auðið, að smjörið sást varla. María tók þessi mótmæli ekki nærri sér.

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.