Vorið - 01.06.1953, Qupperneq 31

Vorið - 01.06.1953, Qupperneq 31
V O R I Ð 69 Hún var miklu kaldlyndari en nróð- ir liennar. Það var að vísu ekkert gaman fyr- ir pabba þeirra að neyðast til að spara smjörið og drekka kaffið og teið aðeins hálfsætt. En börnin höfðu verið eyðslusöm fyrst, ekki sízt María. F.n það gladdi hann, að nú hafði hún sjálf notað ráð, sem hún hafði áður barizt á móti. Hann skildi vel, að María vildi ekki gefa neinar játningar í pessu efni. Hún vildi ekki leyfa neinum að hafa áhrif á hana, svo að lnin breytti um skoðun ;i mömmu sinni og heimilis- verkunum. En nú kom veruleikinn aftan að henni og kenndi henni sín fræði. Faðirinn sá ekki eflir þessari til- raun. Það var góður efniviður í telpunni, og undir allri eigingirn- inni var eitthvað gott á botninum. Hann var sannfærður um, að ínin mundi standast þessa raun. Þegar þau fengu aðeins tvo rétti til miðdags daginn eftir, brosti hann í laumi. Börnin mótmæltu þessu. Þau vildu fá bæði súpu og 'ábæti. F.n María bar ekki annað á borð en síld og vatnsgraut þann daginn. Börnin mótmæltu hástöf- um, en María svaraði aðeins, að hún yrði að spara, annars entust peningarnir ekki. „Þú hefur eflaust borðað sjálf kökur og sælgæti fyrir alla pening- ana,“ sagði Hrólfur háðslega, og María var dálítið veik fyrir þessari ásökun. Nú sá hún, að hún hafði eytt alltof miklum peningum fyrir kökur og sælgæti. Berta lagði skeiðina frá sér. ,,Eg ætla ekki að borða mikið í dag. Mér er illt í maganum," sagði luin. ,,Þá er vatnsgrautur holl fæða,“ sagði pabbi hennar. „Það er ekki liægt að komast hjá því að hafa hann stund- um.“ Hann vissi, að hann yrði að vera varkár með að hrósa Maríu of mik- ið. Það var eitthvað í henni, sem gat bent til þess, að það gæti haft öfug áhrif að hrósa henni of nrikið. F.n með sjálfum sér gladdist hann yfir því, að hún var farin að skilja, að þau yrðu líka að liafa ódýran mat. Allt til þessa hafði luin neitað því. Vatnsgrauturinn hvarf af diskum barnanna. Hann var hæfilega þykk- ur og ekki of saltur. Þó kvartaði Berta enn um kvalir í maganum og borðaði lítið. Hún var vön að fá sykraðar pönnukökur hjá mömmu sinni á eftir. María þverneitaiji því. „Þú gazt borðað grautinn. Eg held ég þekki matvendnina í þér,“ svaraði María. ,,]á, en ég er lasin í maganum. Gefðu mér nú eina pönnuköku. Það gerir mamrna allt- af,“ sagði Berta. En María var önn- um kafin við að þvo upp og neitaði stöðugt. En Berta hélt áfranr að nauða á henni, þar til María gaf henni löðrung með þvottadidunni. Þá flýði Berta út.

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.