Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 41

Vorið - 01.06.1953, Blaðsíða 41
V O R I Ð 79 Sumarið kemur rncö sólskin og leik. „Mamma, í dag missti ég brauðsneið- ina mína þrisvar sinnum í gólfið, og alltaf sneri smjörið_niður.“ „Það er ekki mér að kenna,“ sagði móðirin. „Jú, þú gazt ■ smurt hana hinum megin.“ „En það er nú einmitt það, sem þú fékkst,“ sagði Dóri. A. : „Hvernig hefur maðurinn farið að því að græða alla þessa peninga?“ B. : „Hann hefur reykt. Hann var eitt sinn mesti reykjari í Jandinu.11 A.: „Hvað er þetta! Ég hef nú aldrei heyrt, að menn yrðu auðugir af því að reykja.“ VORIÐ Tímarit fyrir böm og unglinga. Kemur út i 4 heftum á ári, minnst 40 síður hvert hefti. Argangurinn kostar kr. 15.00 og greiðist fyrir 1. maí. Útgefendur og ritstjórar: Hannes J. Magnússon, Páis Briems- götu 20, Akureyri, og Eirikur Sigurðsson, Hrafnagilsstræti 12, Akurcyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f. B.: „Jú, hann varð það nú samt. Hann reykti sem sé svínakjöt.“ „í gær sagði læknirinn við afa, að kvalirnar í hægra fæti hans kæmu bara af elli.“ „Hvað sagði afi þá?“ „Hann sagði, að vinstri fóturinn væri alveg eins gamall, og hann væri í bezta lagi.“ Það voru tvö epli á fatinu, annað stórt, en hitt lítið. Þeir Dóri og Pétur áttu að fá eplin. Dóri varð fyrri til og tók stærra eplið, en Pétur sagði, að hann væri illa upp alinn og ókurteis. „Hvaða epli hefðir þú tekið, ef þú hefðir orðið á undan mér?“ spurði Dóri. „Ég hefði auðvitað tekið minna epl- ið,“ svaraði Pétur. „Mamma,“ sagði Jón, „mig dreymdi svo fjarskalega illa í nótt. Veit það á nokkuð illt?“ „Já, það veit á það, að nú hef ég fengið að vita,. hvað varð af eplakök- unni, sem ég fann hvergi í gærkveldi,“ sagði móðirin.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.