Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 9
V O R I Ð
87
kýr gangi eftir þröngri götu, hvor
á eftir annarri. Nú reynir aftari
kýrin að ganga fram fyrir þá fremri,
en sú fremri vill ekki sleppá henni
fram fyrir sig, og varnar henni að
komast áfram. Þarna verður svo
ægileg rimma með fótasparki og
hornaglamri og veifandi hölum. Þá
heyrist alh í einu ægilegt sársauka-
öskur frá fremri kúnni. Aftari kýrin
hefur þá rekið hvössu hornin sín á
kaf í fremri kúna.“
Mullaha þagnaði litla stund,
strauk skeggið og spurði:
,,Hafið þið fylgst nákvæmlega
með því, sem þarna gerðist?“
„Já, já,“ kölluðu allir drengirnir
í kór. Nú voru þeir glaðvaknaðir.
,,Og eruð þið við því búnir að
hlusta á spurninguna‘?‘ spurði
Mullaha.
„Já,“ svöruðu allir drengirnir sjö.
„Þá er spurningin," Mullaha leit
á hvern dreng til þess að ganga úr
skugga um, að þeir fylgdust allir vel
með:
„Hvor kýrin gat sagt: Nú hef ég
hala og horn á hinum sama enda á
líkama mínum?“
„Sú, sem var á undan,“ hrópaði
Ahmed.
„Nei,“ sagði Mullaha.
„Aftari kýrin," sagði Mahoud, og
hinir drengirnir kinkuðu kolli til
samþykkis.
„Nei.“
„Báðar kýrnar,“ sagði Sohrab.
„Nei,“ sagði Mullaha enn einu
sinni.
Drengirnir brutu heilann um
þessa spuringu og reyndu að finna
rétta svarið. Það var ekki fremri
kýrin, ekki sú aftari, og ekki báðar
kýrnar. Loks báðu þeir Mullaha að
endurtaka spurninguna.
Mullaha spurði hægt:
„Hvor kýrin gat sagt: „Nú hef ég
liala og horn á hinum sama enda á
líkama mínum“?“
Nú endurtóku drengirnir sömu
svörin aftur, en Mullaha neitaði
þeim öllum.
„Við gefumst upp,“ sögðu dreng-
irnir og horfðu ráðþrota hver á ann-
an. „Þú verður að segja okkur rétta
svarið.
„Hvorug kýrin gat sagt það,“
mælti Mullaha með breiðu brosi.
„Þið hafið gleymt því, drengir mín-
ir, að kýr kunna ekki að tala.“
Þýtt úr norsku H. J. M.
Ferðamaðurinn: „Segið mér, hafa
ekki einhverjir stórir og miklir menn
fæðzt í þessum bæ?“
Heimamaður: „Nei, herra minn, hér
hafa aðeins fæðzt lítil börn.“
Anna frænka (við lítinn frænda sinn):
„Komdu nú og kysstu gömlu frænku
þína. Ég skal þá gefa þér fimm aura.“
Litli frændi: „Fimm aura? Ég fæ
miklu meira fyrir að taka inn lýsi.“