Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 10

Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 10
88 V O R I Ð Um sparifjársöfnun skólabarna. Mörg börn hafa gaman af' alls konar söfnun. Sumir safna frí- merkjum, aðrir eldspýtnastokkum, enn aðrir safna pappírsþurrkum, aðgöngumiðum og mörgu öðru. Þau hafa ánægju af þessari söfnun, en lítið gagn, og svo einn góðan veðurdag missa þau áhugann fyrir þessu og safnið fer kannske í glat- kistuna. En svo dreymir alla diængi og allar stúlkur um að eignast ýmsa hluti, svo sem reiðhjól; skauta, skíði, tjöld og bakpoka, tir og átta- vita, laxastöng og margt fleira, en allir þessir hlutir eru svo dýrir, að fæst börn hafa ráð á að eignast þá, og ekki er heldur víst, að foreldrar þeirra hafi ráð á að gefa þeim slíka hluti, en við þessu er eitt ráð: Að byrja nógu snemma að safna íe fyr- ir þessum hlutum. Öll börn eignast alltaf meira og minna af aurum, sem þau fá í afmælisgjöf, eða blátt áfram fyrir smásnúninga, en þessir aurar hverfa því fniður eitthvað út í buskann, án þess að nokkuð verð- mæti fáist í staðinn. Ef kaupstaða- börnin söfnuðu t. d. öllu því fé, sem þau verja fyrir sælgæti, já. söfn- uðu því saman og legðu það í banka. Hve mikið skyldi það vera orðið, þegar barnið er t. d. 14 ára? Hefur nokkur reynt þetta? Það er skammarlega mikið, sem sum börn eyða í sælgæti. Nú í haust verður tekin upp merkileg starfsemi til þess að hjálpa börnunum til að safna aur- unum sínum saman, í stað þess að ganga með þá í næstu búð og kaupa sælgæti. Snorri Sigfússon náiris- sljóri og áður skólastjóri á Akur- eyri, sem þið kannist öll við, hefur að undanförnu verið að undirbúa og skipuleggja þessa starfsemi í öll- um skólum á landinu. Að vísu verð- ur í haust aðeins byrjað á kaup- staðaskólunum, en síðan verða hin- ir væntanlega teknir á eftir. Landsbanki íslands ætlar að koma þarna til hjálpar, og héfur hann ákveðið að gefa nú í haust Itverju skólabarni í barnaskólum kaupstaðanna sparisjóðsbók með 10 krónum í. Hann gerir þetta til að hvetja ykkur til að nota þessa bók og leggja inn í hana, þegar þið eign- ist einhverja aura. Þessu verður þó ekki þannig fyrir komið, að þið þurfið að hlaupa í bankann í hvert skipti, sem þið eignist eina krónu eða 25 aura. Heldur kemur skólinn þarna til hjálpar. Það verður vænt- anlega valinn einn dagur í viku, eða öllu heldur ein kennslustund í Irverri viku til að taka á rnóti þeim

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.