Vorið - 01.09.1954, Side 30

Vorið - 01.09.1954, Side 30
108 V O R I Ð betur. Það heyrðist hrikta í hjólun- um, og þegar augun fóru að venjast myrkrinu, mátti óljóst. sjá kistu- hlaðann rugga fram og aftur á vagn- inum. Eitt sinn þurfti að opna stórt hlið, til þess að vagninn kæmist áfram, og eftir það lá vegurinn yfir graslendi, og hallaði nú undan fæti. Litlu seinna sást móta fyrir ein- hverju dökkleitu framundan, liægra megin við veginn. „Þarna er nú húsið,“ sagði manima. „Ég skil ekki, hvers vegna hún hefur lokað hlerunum." „Hver? Hvaða hún?“ spurði Ró- berta. „Það er konan, sem ég var búin að biðja um að hjálpa okkur. Hún átti að gera húsið hreint, setja hús- gögnin á sinn stað og sjá okkur fyrir kvöldverði." í kringum húsið var lágvaxinn múr, en tré fyrir innan. „Þetta er nú blómagarðurinn," sagði mamma. Vagninn ók áfrarn meðfram múrnum, unz hann var kominn að húsabaki, þar ók hann yfir steinlagt hlað, og nam loks staðar við eldhús- dyrnar. Hvergi sást ljós i nokkrum glugga. Nú var farið að berja að dyrum, en enginn kom til dyra. Maðurinn, sem var með vagninn, sagðist búast við, að frú Vinev væri farin heim. „Sjáið þér til,“ mælti liann. „Lestin var orðin á eftir áætlun.“ „En hún hefur lykilinn að hús- inu. Ilvað eigum við að taka til bragðs?" „Hún hefur' sjálfsagt lagt hann undir dyraþrepið," sagði ökumað- urinn, „það gera menn oft hér um slóðir." Hann tók ljóskerið af vagninum og skyggndist undir dyraþrepið. „Já, alveg rétt, lrérna er lykill- inn.“ Síðan opnaði hann dyrnar, gekk inn og setti ljóskerið á borðið. „Hafið þér kerti?“ spurði hann. „Ég veit ekki um nokkurn hlut,“ sagði mamma, og var nú meira von- leysi í rödd hennar en nokkru sinni áður. Maðurinn kveikti á eldspýtu. Það stóð kerti á borðinu og kveikti hann á því. Við kertisbjarmann sáu börn- in stórt og tómlegt eldhús með teingólfi. Engin tjöld voru fyrir higgunum. Eldhúsborðið að stóð á miðju gólfinu. Úti í einu liorninu stóðu nokkrir stólar, og í iiðru horni lágu pottar, pönn- ur, leirílát o. s. frv. Enginn eldur brann í eldavélinni, aðeins köld, grá aska var í svörtu eldhólfinu. Þegar ökumaðurinn sneri sér við til þess að fara út, er hann var bú- inn að ganga frá farangrinum, heyrðist eitthvert skrjáfandi hljóð, sem virtist koma út úr húsveggnum.

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.