Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 35

Vorið - 01.09.1954, Blaðsíða 35
V O R I Ð 113 hjúkrunarkonan liélt báðum hönd- um um höfuðið, og saumaskapur- inn var búinn jafnskjótt og hann byrjaði. Eyjólfur æmti hvorki né skræmti. Hann roðnaði aðeins í kinnum og gretti sig ofurlítið, með- an á aðgerðinni stóð. Það mátti ekki tæpara standa, að tár kæmu fram í mín augu, en þá varð mér litið á liendur Eyjólfs. Þær voru svo krepptar, að hvítnuðu hnúarnir. Mér komu í hug frásagnirnar af Ani hrísmaga, Gunnlaugi Orms- tungu, Gretti og fleiri fornköppum, sem brugðu sér hvorki við sár né bana, og mér virtist skyldleikinn við Eyjólf litla ótvíræður. Að þessu loknu létum við öll í ljós aðdáun okkar yfir stillingu drengsins. Við gátum ekki annað, enda byrjaði læknirinn sjálfur. Ég man glöggt, að hann sagði: ,.Þessi drengur er hetja.“ Svo bætti hann við nokkrum vel völdum gamanyrðum, til að fá okk- ur öll ti! að brosa. Það tókst. Hann vissi livers við þurfti. Það var nefni- lega ekki allt búið enn. „Heyrðu, vinur minn,“ sagði hann nú. ,,Þig langar auðvitað til að ég geri vörina þína jafngóða? Náttúrlega. F.n þá verð ég að taka eitt nálspor í hana. Hvernig lízt þér á það?“ Ekki æðraðist Eyjólfur við jaessar fréttir, en spurði með nokkrum erf- iðismunum: „Verður það nokkuð verra en hitt?“ „Nei, áreiðanlega ekki,“ flýtti læknirinn sér að segja. Og svo beið fullhuginn rólegur meðan bogna nálin var þrædd aftur. Allt gekk jafnvel og hljóðalaust, sem í hið fyrra skiptið. Það var víst, meðan verið var að þræða í seinna skiptið, sem læknir- inn spurði Eyjólf (meðal annars, sem hann alltaf var að rabba við) hvað hann langaði til að verða. „Flugmann," sagði snáðinn og lét ekki bíða eftir svarinu. „Það er rétt. Þeir þurfa að vera kaldir og ákveðnir, og harðir í skall- ann,“ svaraði læknirinn. Þegar þessu var öllu lokið og béi- ið að leggja litla flugmanninn upp í legubekkinn fyrir ofan mig, kall- aði læknirinn á skólastjórann til að skvra honum frá því hve vel þetta hefði gengið. Síðan var hinum drengjunum tilkynnt. að þeir mættu koma inn. Skoðunin héldi nú áfram. Eyjólf hef ég ekki hitt síðan, en ef hann skyldi lesa jressa frásögn, Jaá vil ég þakka honum innilega fyrir síðast og j^að fordæmi, sem hann gaf við þetta tækifæri. Kannske eig- um við eftir að hittast í flugvélinni, þar sem hann heldur um stýrið. J. Ó. Sæmundsson.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.