Bjarmi - 01.10.1921, Page 1
BJARMI
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XV. árg.
Reykjavík, 1.—15. okt. 1921.
22.-23. tbl.
Verið fullkomnir eins og faðir yðar á hímnum er fullkominn. Matt. 5, 48.
Charles Monroe Sheldon
er fæddur 1857 í Wellsville N.-Y. í
Bandaríkjunum. Faðir hans var þar
prestur hjá Kongregationalistum og
fluttist nokkru síðar til Dakota. Hann
var efnalítill, en áhugamaður og
stofnaði fjölmarga
söfnuði hjá ný-
lendumönnum þar
í fylki. Sonur hans
varð að vinna fyrir
sjer á námsárunuin,
meðal annars með
því að skrifa sögur
i unglingablöð, og
sóttist því námið
seinna. Hann varð
stúdent 1879 og
tók guðfræðispróf
1886. Litlu seinna
gerðist hann prest-
ur hjá Kongregat-
ionalistum í Water-
bury í Vermont.
Þar var strálbygð
sveit, svo nýja prestinum gekk seint
að kynnast. Tók hann þá upp á því
að dvelja til skiftis hjá sóknarbörnum
sínum, eina viku á hverju heimili.
Pótti sumum, að presturinn yrði við
það óþarflega kunnugur heimilishög-
unum, en yfirleitt þótti nýbreytnin
gefast ágætlega. Ræður hans tóku að
vekja eftirtekt, og skömmu síðar fjekk
hann köllun frá nýstofnuðum fámenn-
um söfnuði i borginni Topeka i Kan-
sas. Hann fluttist þangað og flutti
fyrstu ræðu sína þar í ársbyrjun
1889 á búðárlofti, sem söfnuðurinn
hafði leigt, því engin var kirkjan.
Um sama leyti giftist hann heitmey
sinni, May Merriam, er hann hafði
kynst á húsvitjunarferðum sinum. —
Það kom brátt í
Ijós að síra Shel-
don var áhuga^
maður, óhræddur
við nýjar aðferðir.
Hann boðaði lif-
andi og starfandi
kristindóm mjög
ákveðið, beitti sjer
gegn drykkjuskap,
stjettaríg og ýms-
um þjóðfjelags-
syndum, og sýndi
i verki að hann
vildi skilja fólkið
svo að hann gæti
þvi betur talað við
það. Við morgun-
guðsþjónustu aug-
lýsti hann einu sinni fyrirvaralaust:
»Þessa viku verður ekki hægt að hitta
mig heima nema brjeflega, jeg ætla að
vera með sporvagnastjórum alla vik-
una og starfa með þeim, ef jeg get«.
— Smámsaman varði hann þannig
mörgum vikum, einni með járnbraut-
arþjónum, annari með verslunar-
mönnum, þá með lögfræðingum,
læknum, svertingjum o. s. frv.
í atvinnuleysinu einn veturinn
Cliarles Monroe Sheldon,