Bjarmi - 01.12.1930, Page 4
19(5
BJAEMI
Jólahugleiðing.
Það er aófangadagskvöld, jólin eru
komin.
Mönnum er svo hugþekt aó minn
ast á jólin. Þaó vekur altaf innri
gleói.
Á jólunum eru allir börn, þá veróa
allir svo hjartanlegir, svo viókvæmir.
Eldra fólkió minnist bernskuár-
anna; þaó minnist jólanna, er þaó
dvaldi heima í föóurhúsum, heima
hjá pabba og mömmu, og ljek sjer
sem börn kringum lítió jólatrje.
Amma og afi, sem nú eru gömul,
meó gullnar hærur, gleójast innilega
í hjarta sínu, þegar litla barna-barn,-
ió þeirra færir þeim lítió kertaljös
í jólagjöf.
1 sambandi við jólin vakna svo
margar endurminningar, þaó er sem
brugöió upp myndum í heimi hugans,
frá liónum tímum.
Sumir brosa, aórir tárast, þaó er
svo margt, sem stendur nú svo ljóet
fyrir hugskotssjónum hvers eins, nú,
á sjálfum jólunum.
Oft hefir byrói lífsins verið þung’
og dimt í hug, jafnvel dimmra en
skammdegismyrkrið á löngum vetr-
arnóttum. En það birtir altaf af og'
til, þaó eru altaf sólskinsblettir hjer
og þar, þeir margfaldast og verða
sterkari og stærri, uns þeir hylja aó
lokum skuggahlió lífsins.
Á jólunum minnast menn vina,
sem búa fjarri, og senda þeim hug-
hlýjustu jólaóskir. Á jólunum þiggja
menn ljós aó gjöf og gefa ljós í stað-
inn. — Mannssálin er sem strengja-
hljóófæri, sem gefur frá sjer mis-
fagra tóna, eftir því hvernig streng-
irnir eru slegnir.
Margir sem menn umgangast í
dag'lega lífinu, slá þessa strengi
óþægilega, svo aö þeir gefa frá sjer
falska tóna, sem særa, en ekki græða.
Þeir menn, sem leika best á þessa
strengi, eru lengst komnir á þroska-
braut lífsins.
Hver slær streng sálarinnar á
sjálfa jólanóttina? Þeir hljóma svo
skært og tónar þeirra vekja svo
fagrar hugsanir, menn veróa svo
sannir og hjartanlega barnslegir.
Hver þekkir mennina svona vel? —
Hver á þennan þroska? — Hver á
þennan mikla sálarkraft?
Þaó er Kristur frelsari vor, hann
kemur nú á jólanóttina og lofar oss
að heyra, hve fagurt er hægt að
leika á strengi manssálarinnar. —
Kristur, barnið, sem fæddist af fá-
tækri móóur og lagður svo í jötu,
hann, sem var píndur vegna þess að
hann skildi lífió og' sagði sannleikann.
Hann sýndi oss, aó ekkert annaó
en g'öfugt og gott tilheyrir oss mönn-
unum, í raun og- veru; alt annað er
oss ekki skylt. Þaó illa eru þrep, sem
vjer eig'um að stíga yfir, sker, sem
vjer eigum að sig'la fram hjá. Vilj-
um vjer ekki öll sem fyrst þekkja
lífiö og tilveruna, læra aó skilja sál-
ir meóbræðra vorra, þekkja Guó?
Kristur sjálfur býður oss hönd
sína. Hver er styrkari leiósögumaó
ur? Hver þekkir veginn betur?
Skúli G. P. frá Öseyri.
Þú heyrir.
Þú heyrir, Guð, þœr hljóðu bænir,
, sem hjörtum sreröum stíga frá,
og skilur þessar jjungu stunur,
þær, sem enginn túlka má.
Það þarf engar orðaræður
að auglýsa þjer hjartans mál.
AIL þú sjer og alt þú þekkir
innst og dýpst í hverri sál.
Sumarliði Halldórsson.