Bjarmi - 01.10.1967, Blaðsíða 24
Háskólabókasafniö í höfuöborginni (t. v.).
Mexíkóborg (t. h.) er höfuðborg landsins.
Byggð á hásléttu, tœplega 2300 m yfir sjávarmál.
að 10 til 20 þús. manns voru
skírðir á dag. Samt má ekki
gleymast, að guðhrœddir ka-
þólskir kristníboðar börðust
gegn þessum aðferðum, þótt þeir
fengju ekki rönd við reist. Stðar
aflaði kaþólska kirkjan sér
óvildar með auðsöfnun sinni og
valdbeitingu í innanlands mál-
um. Um skeið réði kirkjan yfir
þriðjung landeigna. Eftir blóð-
ugar byltingar hófust ofsóknir
gegn kaþólskum mönnum og
urðu prestar og nunnur að flýja
land. Síðar gerðu ríki og kirkja
með sér sáttmála, en valdaað-
staða og áhrif kirkjunnar var
þá mjög rýrt.
Kristniboðum mótmœlenda
hefur á síðustu áratugum orðið
mjög vel ágengt meðal þjóðar-
innar. Starf þeirra hefur hvergi
i Latnesku-Ameríku gefið betri
raun nema í Brazilíu. Óbein
áhrif eru talin mikil, bœði t þjóð-
lífi og jafnvel í starfsemi ka-
þólskrar kirkju, svo sem í
aukinni áherzlu á prédikunina,
stofnun sunnudagaskóla, auknu
líknarstarfi, lestri Ritningarinn-
ar o. fl.
Mótmœlendur hafa stofnsett
útvarpsstöð, sumarbúðir, presta-
skóla og hafið öflugt starf
Bibliufélagsins og annarrar
kristilegrar bókaútgáfu.
Aztekar reistu þennan 65 m háa pýramída
skammt frá höfuSborginni.
Leikvangur Olýmpíuleikjanna 1968 rúmar
150 þúsund áhorfendur (t. h.).
24 BJARMI