Bjarmi - 01.09.1985, Page 17
Þeir gera sér ekki ljóst, að falsspá-
menn nota líka nafn Jesú (Matt.
24,5). Svo djöfullegur er Satan að
hann dylst á bak við nafn óvinar síns.
En aldrei er óvinurinn eins hættulegur
og þegar hann þykist vera vinur.
Þetta er aðvörun til trúaðra, krist-
inna manna að þeir taki ekki allt gott
og gilt, þó að nafn Jesú sé notað.
Ekki er það heldur ótvíræð sönnun
um að ósvikinn kristindómur sé á
ferðinni þó að andlegur kraftur sé að
verki. Satan á auðvelt með að magna
andrúmsloftið. Það er Iíka á valdi
manna. Það sem ríður baggamuninn
hlýtur að vera þetta: Hvers konar
andi er hér á ferðinni? Ekki eru allir
andar frá Guði.
En hvað þá ef undarlegir hlutir eiga
sér stað eins og tungutal og lækning-
ar? Eru það ekki afdráttarlaus kenni-
merki á sönnum kristindómi?
Nei, því miður. Djöfullinn hefur
yfirnáttúrulegt vald. Hann getur
framkvæmt yfirnáttúrulega hluti með
verkfærum sínum, líka lækningar.
Vitnum enn til þess sem Jesús hefur
sagt:
„Upp munu rísa falskristar og fals-
spámenn og þeir munu gjöra stór tákn
og undur til þess að leiða í villu ef verða
mætti jafnvel útvalda" (Matt. 24,24).
Eökum eftir: „Stór tákn og undur.“
Ennfremur segir í Matt. 7,22-23:
„Margir munu segja við mig á þeim
degi (dómsdegi): Herra, herra, höfum
vér ekki spáð með þínu nafni og
höfum vér ekki rekið út illa anda með
þínu nafni og höfum vér ekki gjört
nörg kraftaverk með þínu nafni? Og
þá mun ég segja þeim afdráttarlaust:
Aldrei þekkti ég yður“ (Matt. 7,22-
23).
Við getum ekki heldur gert ráð
fyrir að allt tungutal sé frá Guði.
^atan þekkir öll tungumál heimsins.
Honum er það leikur einn að leggja
óþekkt tungumál í munn manns sem
hann hefur á valdi sínu.
Ef trúaðir, kristnir menn fara að
hta svo á að óvenjulegir atburðir séu
einkenni á sönnum kristindómi mun
Satan sjá til þess að nóg verði um slík
einkenni og leiða þá þannig út af
réttum vegi.
E Heilagur andi
Þetta er andinn sem er af Guði.
Guð er máttugri en Satan. Þannig er
andi Guðs máttugri anda Satans.
Biblían segir að öllum börnum
Guðs sé gefinn andi Guðs. (Efes.
f>13), Já, hann hefur búið þau guð-
dómlegum hæfileikum með náðar-
gjöfum sínum (1. Kor. 12). Þess
vegna getur andinn framkvæmt
undursamlega hluti fyrir starf barna
Guðs og látið mikinn kraft koma
fram. Við megum því ekki fara út í
þær öfgar að fordæma alla einstakl-
inga og trúarsamfélög þar sem mikill
kraftur er að verki og segja að þar
gæti áhrifa Satans. Samkomur okkar
sjálfra eru oft þurrar og predikanirnar
snauðar að anda og krafti. Engin
ástæða er til að gera það að allsherjar
mælikvarða.
Orð Guðs hvetur alla trúaða,
kristna menn til að fyllast andanum,
þ.e. fyllast verkan og krafti andans
(Ef. 5,18). Ef sú væri yfirleitt raunin
á meðal okkar, eins og Guð vill að
það sé, mundi þess líka gæta í einkalífi
okkar, að þar væri andinn að starfi í
ríkara mæli; einnig í predikun og
samfélagi okkar innbyrðis. Ekki svo
að skilja að það birtist í hávaða og
mikilli tilfinningaólgu, heldur kæmist
andinn betur að, með orðinu, til að
sannfæra okkur til dóms og frelsunar.
Höfuðverkefni andans er að sannfæra
um synd, réttlæti og dóm og vegsama
Krist fyrir hjörtum okkar (Jóh. 16,8-
14).
Það yljar okkur um hjartað þegar
Höfuðverkefni heilags anda er að sannfæra um
synd, réttlæti og dóm og vegsama Hrist fyrir
17