Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1996, Qupperneq 14

Bjarmi - 01.05.1996, Qupperneq 14
I BRENNIDEPLI boðun?“ Þetta telur Hjalti geta gerst og þá getur sú staða komið upp að fólkið vilji eitthvað annað en kirkjan telur vera í sam- ræmi við trúna. Deilur og jafnvel fjöldaúrsagnir gætu þá blasað við. Hjalti bendir einnig á að eftir aðskilnað verði að stofna nýjan, öflugan jöfn- unarsjóð sóknanna. „Fjár- streymi yrði í gegnum sjóð- inn bæði upp og niður kirkjuna ef við lítum á hana sem pýramída. Fjár- munir þyrftu því að streyma frá stórum söfn- uðum og til minni safnaða, einnig til að standa straum af yfirstjórn kirkjunnar og öllu því sameiginlega starfi sem kirkjan þarf á að halda.“ En hvað myndu stóru sóknirnar segja við þessu? Því svarar Hjalti. „Frammi fyrir þessu vanda- máli komum við til með að standa og kirkjurnar í Reykjavík munu ekki geta haldið utan um sína pen- inga. Hlutfallið sem mun streyma til sameiginlegra þarfa verður miklu stærra en nú er.“ Þó að huga beri að peningum, eignum og embættum þegar þessar gífurlegu breytingar eru ræddar, má ekki gleyma aðalatriðinu, þ.e. safnaðarlífinu. Hvaða áhrif mun aðskilnaður hafa á trúarlif íslendinga? Hjalti efast um að „þessar draumsýnir margra um að söfnuðurinn verði virkari gangi eftir. Af fenginni reynslu vitum við að á 10 til 15 árum verða trúarleg samfélög annaðhvort klofin í marga smáa söfnuði eða orðin að tiltölulega fastmótaðri stofnun. Það eru þessir tveir valkostir sem kristilegt samfélag stendur frammi fyrir í þessum heimi. Eins verður auðvitað með söfnuði „nýrrar frjálsrar kirkju“.“ Hafliði segir að hvort líf innan kirkjunnar muni blómstra velti ekki fyrst og fremst á aðskilnaði en hann muni hjálpa til. „Það fer aðallega eftir prestunum sjálfum, andlegt líf 1 kirkjunni byggist mikið á leiðtoganum. Ég hef þá trú að aðskilnaðurinn verði kirkjunni hvatning til að gera betur á andlega sviðinu. Það verður kirkjunni til lífs þegar hún fer að huga að sínu innra starfi í auknum Sr. Ragnar Fjalar Lárusson: „í þau 40 ár sem ég hef verið prestur hefur aldrei verið þar blómlegra starf en nú. Auðvitað eru nýleg áföll sorgleg en það er ekki hægt að kenna kirkjunni um allt í því sambandi." mæli og þarf að hafa svolítið meira fyrir því. Kirkjan þarf líka að leggja aukna áherslu á boðun prestanna og trúar- reynslu þeirra.“ Hafliði bætir við að til að bæta andlegt líf í kirkjunni þurfi hún leiðtoga. Hann efast um að biskup sé nægilega leiðandi innan hennar, annars vegar vegna persónulegra deilumála hans og hins vegar vegna valdsviðs biskups innan kirkjunnar. Viðmælendur okkar eru allir á einu máli um það að fyrr eða síðar komi til aðskilnaðar. Þeir eru þó ekki sammála um árafjöldann þangað til. Hafliði segir að nú sé umræðan komin af stað og „þó að við viljum tala um þetta án þess að tala um erfiðleika kirkjunnar í dag þá hafa þeir mjög mikið með það að gera hvaða hraði verður á þessum málum. Ég held að aðskilnaður ríkis og kirkju verði á næstu tíu árum.“ Séra Ragnar Fjalar telur aðskilnað geta átt sér stað á næstu þrjátíu árum en segir árafjöldann velta töluvert á því hvernig kirkjan muni starfa næstu árin. Hjalti Hugason vonar að við berum gæfu til að gefa okkur góðan tíma í aðskilnaðinn. „Ég myndi vilja sjá tíu ára aðlögunartíma þannig að ákvörðun yrði tekin á ákveðnum tímapunkti og breytingin ætti sér svo stað tíu árum síðar. Ef þannig verður að verki staðið má varla búast við aðskilnaði á næstu fimmtán árum. Jakob segir um næstu ár: „Ég sé á næstu tíu árum raunverulegan aðskilnað sem felst í því að kirkjan mun verða sjálfstæð fjárhagsleg og stjórn- 14

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.