Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 27
heimamönnum í hendur fleiri verkefni þar sem orð Guðs
hefur fest rætur og starfið er á góðum grunni.
Samkvæmt upplýsingum yfirvalda byggja um 4 1/2
miljón manna ofangreint landssvæði og má heita að þeir
séu allir múslímar þó að lútherska kirkjan eigi þar örfáa
„tengiliði". Nágrannalandið Sómalía telst vera múslíma-
ríki. Alls eru í Eþíópíu einni um 80 þjóðflokkar sem hver
á sína menningu og talar sitt tungumál. Um suma þeirra
má segja að þeir bíði enn dögunar í andlegum efnum.
Með spenntar greipar
Það þykir athyglisvert hversu bænin skipar háan sess í
lúthersku kirkjunni í Eþíópíu. Kristna fólkið kemur saman
til bæna snemma á morgnana. Og heimilisguðrækni með
bænagjörð er í hávegum höfð. Kórar, sem syngja í guðs-
þjónustum, leggja þunga áherslu á bænina. Kórfélagar
biðja á æfingum og þegar þeir koma fram. Menn biðja
jafnvel klukkustundum saman. Bæn er fastur liður í lifi
safnaðanna.
Barist við berkla
Heilsugæsla hefur verið gildur þáttur í starfi kristniboð-
anna í Eþíópíu frá upphafi og er nú æ meir í höndum
kirkjunnar. Um þessar mundi breiðast berklar mjög út og
virðast haldast í hendur við sjúkdóminn eyðni. Þeim sem
fá hiv-veiruna hættir til að veikjast af berklum og þeir
smita aðra með hósta. Yfirvöld ætlast til þess að fólk fái
berklalyf ókeypis en mikill skortur hefur verið á þessum
lyfjum.
Erfitt er að vinna bug á berklum meðal landsbúa. Sjúk-
dóminn má lækna á einu ári. Eftir nokkurra mánaða með-
ferð líður fólki betur og hætta þá margir að fara eftir reglum
hjúkrunarfólksins. Seinna kemur það aftur enn veikara en
fyrr og þá verður að gripa til fleiri tegunda lyfja.
Mjög margir hafa fengið hiv-veiruna. í einum bekknum
í menntaskóla nokkrum reyndust 18% nemenda smitaðir.
Hjúkrunarfólkið þarf að eiga mikla þolinmæði og kærleika
í glímunni við margvíslega sjúkdóma og við sjúklinga sem
oft skortir skilning vegna vanþekkingar.
Fulltrúar Allah athafnasamir
Múslímar í landinu færa sig upp á skaftið. Sumir ætla að
þeir séu orðnir allt að 40-55 af hundraði landsmanna. Þeir
vinna beinlínis að boðun trúarinnar á Allah og líkja á
ýmsan hátt eftir kristnum trúboðum, prédika og hjálpa
sjúkum og fátækum. Auðug Arabaríki gefa peninga til að
byggja moskur í landinu og ungir Eþíópíumenn fara til
náms í þessum ríkjum og verða margir fyrir trúarlegum
áhrifum. Á sumum svæðum er farið að bregða fyrir konum
sem hylja sig svörtum blæjum nema augun. Þetta er nýj-
ung. Æskufólki er boðið starf ef það vill fylgja kenningum
Múhameðs. Öfgamenn hafa líka látið á sér bera.
Nemendur í skólum kristniboðsstöðvanna hafa margir staðiö sig með mikilli prýði og
skólarnir njóta álits. Myndin er tekin á hátíöisdegi í Konsó í Eþíópíu. Skólabörn ganga
tylktu liði meö fána lands síns.
Kristnum mönnum fjölgar óðum í Afríku og er vöxturinn einna mestur í lúthersku
kirkjunni í Eþíópíu. Myndin er af „sveitakirkju" í Konsó. Nýlokið er guðsþjónustu þar sem
hópur ungmenna var fermdur.
Það eru því örlagatimar í Eþíópíu. Dyrnar eru opnar.
Spurningin er hverjir ganga inn um þær. Kristniboðsvinir
hljóta að vinna að því að Bláland haldi enn áfram að færa
Guði gjafir hröðum höndum, gjafir þakklætis, lofgjörðar
og þjónustu vegna fagnaðarerindisins um Jesú Krist.
Jesús sagði við lærisveina sína: „Uppskeran er mikil en
verkamenn fáir. Biðjið því herra uppskerunnar að senda
verkamenn til uppskeru sinnar“ (Matt. 9,37-38).
Pað eru því örlagatímar í Eþíópíu.
Dyrnar tru opnar. Spumingin er Itverjir
ganga inn um þær.
27