Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 17

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 17
MENNING OG LISTIR Dauðamaður nálgast Kvikmynd um glæp og refsingu, kærleika og fyrirgefningu Háskólabíó í Reykjavík sýndi nýlega bandarísku kvikmyndina „Dead Man Walking" eða Dauðamaður nálgast eins og hún hefur verið kölluð á íslensku. Leiksljóri og handritshöfundur er Tim Robbins, en hann byggir handritið á samnefndri bók eftir rómversk-kaþólsku nunnuna Helen Prejean. í bókinni greinir hún frá starfi sínu sem andlegur ráðgjafi og sálusorgari dauðadæmdra fanga í Louisianafylki. Hún segir m.a. frá kynnum sínum af fyrstu tveim föngunum. Öðrum þeirra, Patrick Sonnier, sem var dæmdur fyrir morð á tveim ungmennum, lýsir hún rn.a sem iðrandi og angistarfullum en hinum, Robert Willy, sem forhertum og fráhrindandi. f handrilinu að kvikmyndinni bjó Tim Robbins lil eina persónu úr þessum tveim mönnum þannig að fanginn dauðadæmdi, Matthew Poncelet, ber cinkenni frá þeirn báðum. Aðalhlutverkin í kvikmyndinni eru í höndum Susan Sarandon, sem leikur nunnuna, og Sean Penn, sem leikur fangann. Þau sýna bæði snilldarleik enda voru þau bæði tilnefnd til Óskarsverðlauna og Sarandon var að lokum valin besta leikkonan í aðalhlutverki. Þá var Tim Robbins tilnefndur sem besti leikstjórinn og Bruce Springsteen fyrir besta lagið en hann samdi titillag myndarinnar. Að öðru leyti samdi David Robbins tónlist við myndina. Kvikmyndin fæst við margar áleitnar spruningar. Hún fjallar um glæp, réttlæti, refsingu og réttmæti dauðarefs- ingar. Hún tekur á málum eins og hatri og kærleika, forherðingu og iðrun, möguleika fyrirgefningar og frið- þægingar og trú og angist andspænis dauðanum. Efni myndarinnar Kvikmyndin greinir frá nunnu, Helen Prejean, sem sinnir hjálparstarfi meðal svertingja í fátækrahverfi í Lousiana. í upphafi myndarinnar fær hún í hendur bréf frá dauða- dæmdum fanga, Matthew Poncelet, sem bíður þess í ríkisfangelsinu að dóminum verði fullnægt. Hann óskar þess í bréfinu að verða heimsóttur í fangelsið. Nunnan hefur aldrei áður kynnst lífinu innan fangelsismúranna en tekur hvatningunni og heldur út í óvissuna, bjartsýn og óörugg i senn. Áhorfandinn fær það á tilfinninguna að hún sé sannfærð um að kærleikurinn geti yfirunnið allar hindranir í lífinu en um leið er hún óttaslegin að mæta þeim öflum sem geta leitt til nauðgunar, grófs ofbeldis og morðs. Matthew Poncelet er dæmdur til dauða fyrir að hafa átt þátt i að ráðast á, nauðga og myrða tvö ungmenni sem áttu stefnumól úti i skógi. Sá meðseki hafði sloppið við dauðarefsingu og er gefið í skyn að það hafi verið vegna þess að hann hafði ráð á betrj verjanda. Þegar Helen kemur í fangelsið og hittir Matthew býr enn von í brjóst hans um að unnt sé að fá dauðadóminum breytt í lífstíðarfangelsi og hann ætlar sér fyrst og fremst að notfæra sér hana í þeirri baráttu. Hún tekur það að sér og útvegar honum lögfræðing en reynir jafnframt að komast undir harða skelina á þessum forherta glæpamanni. Framan af virðist það ekki ætla að bera mikinn árangur. En eftir því sem hvert hálmstráið á fætur öðru verður að engu varðandi breytingu á dauðadóminum brotnar skelin , , , Sean Penn og Susan og þessar tvær oliku personur taka að nalgast hvor aðra. A Sarandon í hlutverkum sama tima snúast þeir sem eru í kringum Helen, bæði sínum í myndinni „Dead man walking." 17

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.