Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 18
foreldrar ungmennanna sem voru myrt og ýmsir aðrir, gegn henni fyrir það að hún skuli eyða kröftum sínum á „ófreskju“ sem virðist aðeins ætla að notfæra sér hana sjálfum sér í hag. Helen fær að reyna það að kærleikur hennar nær ekki að umfaðma allt og að hann veldur sundurþykki og hatri, angist og þjáningu. En hún gefst ekki upp. Barátta hennar snýst um að fá forhertan fangann til að horfast í augu við sjálfan sig og gjörðir sínar, taka afleiðingunum af þeim og skilja að hann þarfnast fyrirgefningar. Aftur og aftur lætur hún hann rifja upp og íhuga það sem gerðist kvöldið sem óhæfuverkið var framið og fær hann að lokum til að velja milli þess að viðurkenna sekt sína eða að halda fast í grímuna sem hann hafði komið sér upp, hatrið og bitur- leikann. Lausnin er fólgin í orðum Jesú: „Sannleikurinn Paö kann að vera þverstœðukennt að fagnakrerindið um kœrleika ogfyrirgefningu syndanna skuli hljóma í kvi kmynd semfjallar um hrottafenginn glcep. Sú tr þó raunin. Kvikmyndin byggir á bók eftir Helen Prejean, rómversk-kaþólska nunnu. Hún starfar sem sálusorgari dauöa- dæmdra fanga í Louisianafylki í Bandaríkjunum. mun gjöra yður frjálsa“ (Jóh. 8:32). Sá sem sér ekki synd sína og iðrast fyrir Guði og mönnum getur ekki þegið fyrirgefningu. Það á bæði við um dauðadæmda fangann, foreldra ungmennanna sem voru drepin á hrottafenginn hátt og alla aðra. Boðskapur myndarinnar Dauðamaður nálgast er vönduð og áhrifamikil kvikmynd. Styrkur hennar er m.a. fólginn í því að fjalla um erfitt efni af nærgætni og alvöru án þess að verða væmin eða leita ódýrra lausna. Glíman við lífið og dauðann verður heldur aldrei auðveld eða einföld. Það er einnig styrkur myndar- innar að hún tekur ekki afstöðu með eða á móti aðal- persónunum heldur leiðir þær fram á sjónarsviðið og lætur áhorfandanum eftir að hugleiða samskipti þeirra, aðstæður og örlög. Dregin er upp mynd af mannlegum styrk og veikleika, hatri og kærleika, angisl, trú og efa. Glímt er við spurningar um mennsku og manngildi, bæði sekra og saklausra, réttmæti manndráps, hvort sem um er að ræða hrottalegt morð eða opinbera aftöku, og fyrirgefn- inguna, hvort hún sé möguleg þegar um grimmdarverk er að ræða eða einstakling sem virðist vera forhertur óþokki. Vakið er til umhugsunar um alvöru lifs og dauða þar sem fanginn dauðadæmdi þarf bæði að horfast i augu við afleiðingar gjörða sinna og yfirvofandi dauða sinn. Þá eru hugtök eins og réttlæti, endurgjald og friðþæging tekin til umfjöllunar. 18

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.