Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 22

Bjarmi - 01.05.1996, Blaðsíða 22
UM VÍÐA VERÖLD H onglwng: Lútherskir mennta leiðtoga Lútherski prestaskólinn í Hongkong þykir afar míkilvæg menntastofnun. Skólinn er til húsa uppi á hæð einni en fyrir framan hann gnæfir stór, hvítur kross. Þegar sól sigur til viðar er sterku Ijósi varpað á krossinn svo að hann sést langt að. Þetta er stærsti lútherski guðfræðiskólinn í Asíu og sá sem eflist hvað mest. Nemendur 1 fullu námi eru nú 200 talsins frá 17 löndum og eiga rætur í 70 kirkjum og samfélögum. Að auki eru 135 manns i kvöldnámi. Þegar hugsað er til meginlands Kína er kristilegu starfi i nýlendunni Hongkong oft líkt við gróðurhúsavinnu. Þar er frækorni sáð, plöntur vaxa upp - og þær verða síðan gróður- settar á meginlandinu ef Guð lofar. Kristnir Hongkongbúar vona að dyrnar að Kína opnist í framtíðinni, jafnvel þegar á næsta ári þegar Kínveijar taka við stjórn nýlendunnar af Bretum. Þá verður gífurleg þörf á fólki sem getur veitt forystu i hinum mörgu söfnuðum. Kínverjar eru taldir vera um 1,2 milljarðar. Um tíu þúsund kirkjuhús hafa verið opnuð i Kína undanfarin 15 ár. Hússöfnuðirnir, sem eru óskráðir, eru fjölmargir, sumir ætla um 20 þúsund. Þvi hefur verið varpað fram að kirkjan í Kína kunni fyrr en varir að verða háborg kristninnar. En hana vantar leiðtoga og fræðara og má líkja því við neyðarástand. Afleiðingin er m.a. sú að margs konar villu gætir meðal safnað- anna enda fullyrt að þetta sé ekki aðeins sú kirkja sem vaxi hraðast í víðri veröld heldur séu villukenningar hvergi eins magnaðar og þar. Góð kennsla í kristnum fræðum er því höfuðatriði. Þetta hafa menn í huga í guðfræði- skólanum í Hongkong. Kristnir hugsjónamenn hafa og lengi útvarp- að kjarngóðri fræðslu til Kína. Fjölmargir Kínverjar hlusta á kristilega útvarpið - á laun - og sumir njóta engrar annarrar tilsagnar um kristna trú. Ýmsir telja vist að kristníboðið 1 útvarpi eigi hvað drýgstan þátt í því hversu mjög kristnum mönnum fjölgar í Kína. Þeir fullyrða að boðun fagnaðarerindisins í útvarpi til Kína sé eitthvert merkasta verkefnið á vettvangi kristniboðsins sem um getur. Sagt er að krossinn við lútherska guðfræð- iskólann í Hongkong sé í senn elskaður og hataður. Hann átti að verða helmingi hærri en hann er en yfirvöld komu í veg fyrir það. Þau sögðu að allir, sem væru neðar í hæðinni, sæju hann og sumir, sem væru ekki kristnir, myndu skelfast þá sjón. Það er von og bæn þeirra, sem reka skólann, að fólkið verði upplýst um gildi krossins, um hann sem dó á krossi fyrir syndir alls mannkyns, svo að hver sem trúir á hann eignist gleði í stað ótta og öðlist von um eilíft líf. Víetnam: Miklar vakningar Að minnsta kosti 100.000 manns af Hong- ættbálki í Norður-Vletnam hafa komist til trúar á Jesú Krist í kjölfar kristilegra útvarpssendinga frá Far East Broadcasting Company á Filipps- Tailandi og Burma fyrir áhrif sömu útvarpssendinga. Dagblað í Víetnam hefur fjallað um vakningamar og lýst áhyggjum yfir þvi sem er að gerast. Frakkland: Vaxandi fjölhyggja og heiðni í Frakklandi munu vera um 50.000 nornir i fullu starfi en evangelískir prestar eru aðeins um 5.000. Einungis 0.5% frönsku þjóðarinnar teljast evangelísk-kristnir, eða rúm 250.000 af 58 milljónum, samkvæmt upplýsingum frá Lausannehreyfingunni. Opinberar tölur í Frakklandi sýna að í land- inu eru 172 sértrúarsöfnuðir. Þar af eru 48 tengdir nýaldarhreyfingunni, 19 austurlenskri trúarbragðablöndu, 18 fást við heilun, 16 ýmiss konar dulspekí, fjórir kenna sig við satanisma og þrír við heiðni. eyjum. Einnig hafa orðið vakningar í Laos, Frá Qumran við Dauðahaf. Á myndinni sjást rústir af híbýlum essena, gyðinglegs trúarsafnaðar, sem hafði bækistöðvar í Qumran á dögum Jesú. Dauðahafshandritin á tölvum Óhætt er að segja að gamalt og nýtt sameinist þar sem nú er unnt að fræðast um og skoða Dauðahafshandritin á tölvum. Þau hafa nú verið gefin út í margmiðlunarbúningi á geisladiskum þar sem saman fara myndir, texti og lifandi mpdskeið. Myndgæði eru sögð mjög góð. Hægt er að velja mismunandi efnisþætti auk þess að skoða handritin sjálf, t.d. uppgröft þeirra, rannsóknir á þeim, rókræðuna um þau, sögulegar staðreyndir o.fl. Árið 1947 fannst fjöldi handrita í leirkrúsum i hellum í Qumran við Dauðahaf. Þau eru frá því á öldinni fyrir fæðingu Jesú. Bæði er um að ræða handrit að ýmsum ritum Gamla testamentisins og önn- ur rit gyðinglegs trúarsafnaðar, s.k. essena, sem virðist hafa haft bækistöðvar í Qumran á dögum Jesú. 22

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.