Bjarmi - 01.05.1996, Síða 19
Athyglisverðast er þó hvernig myndin endurómar boð-
skap kristindómsins um kærleika, fyrirgefningu og frelsun.
Helen Prejean endurspeglar kærleika Krists bæði í störfum
sínum meðal fátækra svertingja og ekki síður þegar hún
reynir að bjarga lífi og sálarheill útskúfaðs og dauða-
dæmds fangans. Hún fylgir honum alla leið í niðurlæg-
ingu hans og útskúfun til að geta reist hann við á grund-
velli iðrunar svo hann geti dáið með reisn. í raun verður
myndin af Jesú, sem niðurlægði sjálfan sig og starfaði
meðal fátækra, bersyndugra, tollheimtumanna og annarra
útskúfðara, ljóslifandi. Orðin í sálminum í Filippíbréfinu
rifjast upp: „Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og
varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, lægði
sjálfan sig og varð hlýðinn alll til dauða, já dauðans á
krossi“ (2:7-8). Ræninginn sem iðraðist á krossinum við
hlið Jesú kemur einnig upp í hugann. Nálægð Krists í
aftökuklefanum verður raunveruleg.
Það kann að vera þverstæðukennt að fagnaðarerindið
um kærleika og fyrirgefningu syndanna skuli hljóma í
kvikmynd sem fjallar um hrottafenginn glæp. Sú er þó
raunin. Það kann líka að vera að fólk leiði þann boðskap
myndarinnar hjá sér og einblíni á spurninguna um rétt-
mæti dauðarefsingar. Við lifum á tímum þar sem fólk
forðasl að tala um sektarkennd, iðrun og friðþægingu og
hugtakið fyrirgefning er annað hvort orðið útþynnt eða
hún talin varasöm, a.m.k. í vissum tilvikum. Þegar upp er
staðið er það þó kjarni máls i lífinu að geta horfst í augu
við sjálfan sig og gjörðir sínar, viðurkennt brot sín og
staðið bæði andspænis Guði og mönnum með fullvissu
um fyrirgefningu og sátt.
Sannleikurinn um manninn er sá að hann er í uppreisn
gegn skapara sínum, skeytir ekki um vilja hans og traðkar
á náunga sínum. í því efni erum við öll í sömu sporum.
Sannleikurinn um Guð er sá að hann sendi son sinn í
heiminn til að sætta uppreisnargjarnan manninn við sig,
taka á sig sekt hans og boða honum fyrirgefningu synd-
anna. Við því þurfum við öll að taka í iðrun og trú. Þess
vegna eru orð Jesú lausnin, hvort sem um er að ræða
forhertan glæpamann eða okkur sjálf: „Ef þér eruð stöð-
urgir í orði minu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og
munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra
yður frjálsa" (Jóh. 8:31-32).
Niðurlag
Kvikmyndin Dauðamaður nálgast er kröftug og áleitin
hugvekja um þungamiðju kristindómsins. Því er óhætt að
mæla með henni. Hún gefur einnig gott tilefni til að ræða
þær spurningar sem hún tekur á og um leið kjarna
kristinnar trúar. Því er lilvalið að horfa á myndina með
einhverjum og nota svo efni hennar til samræðna á eftir.
GJG
NÁMSKEIÐ
Biblíuskólinn við Holtaveg hefur aðsetur í húsi KFUM og KFUK,
Holtavegi 28 i Reykjavík.
Biblíuskólinn við Holtaveg
Hreyfingarnar sem gefa út Bjarma starfrækja Biblíuskóla í húsi KFUM og KFUK
við Holtaveg í Reykjavík. Þar er boðið upp á margvísleg námskeið. Á komandi
hausti verður rn.a. boðið upp á sex löng og tvð stutt námskeið. Þau löngu
standa yfir í nokkrar vikur og verður kennt eitt kvöld eða einn morgun í viku.
Tvö til þrjú styttri námskeið verða í boði en þau verða dagsnámskeið á laugar-
dögum.
Alfa-námskeiðið verður nú kennt í annað sinn en það fjallar um grundvallar-
atriði kristinnar trúar og er sérstaklega hugsað fyrir þá sem ekki hafa tekið
mikinn þátt í kristilegu og kirkjulegu starfi. Stendur það yfir í tíu vikur og
verður kennt á miðvikudagskvöldum auk þess sem þátttakendur fara saman á
svonefnda Alfa-helgi.
Eftirtalin önnur námskeið verða í boði: Krisiniboð, hvað, hvers vegna,
hvernig? Kirkjusaga síðustu alda, Rýnt í síður Garnla testamentisins, Samk}m-
hneigð - hvað segir Biblían? o.fl. Fréttabréf Biblíuskólans með nánari upplýs-
ingunr er væntanlegt í júní og rná fá það sent með þvi að hafa samband við
skrifstofu skólans í síma 588 8899. Þar fer einnig fram skráning á námskeiðin.
Biblíuskólinn á Eyjólfsstöðum
Ungt fólk með hlutverk rekur biblíuskóla á Eyjólfsstöðum á Austurlandi. í
september i haust hefst Biblíu- og boðunarnámskeið á skólanum. Um er að
ræða 20 vikna námskeið og stendur það til 1. mars 1997. Tólf vikur fara í
kennslu og átta í verklega þjálfun.
Markmið námskeiðsins er að kenna grundvallaratriði kristinnar trúar, efla
kristilegan þroska nemenda og auka þekkingu þeirra og reynslu af Guði.
Einnig fá nemendur þjálfun í að boða fagnaðarerindið á lifandi og skapandi
hátt.
Kennarar eru bæði innlendir og erlendir og eru þeir valdir út frá því á hvaða
sviði sérþekking þeirra er. Þeir rnunu meðal annars fjalla um hjálpræðisverk
Jesú Krists, verk heilags anda, aðferðir i boðun og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til 1. júní nk. Nánari upplýsingar fást á Biblíuskólanum i
síma 4712171.
19