Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.05.1996, Síða 23

Bjarmi - 01.05.1996, Síða 23
UM VÍÐA VERÖLD Egyptaland: Kristnir ofsóttir Um tvö hundruð kristnir koptar hafa verið drepnir í Egyptalandi af islömskum öfgamönn- um síðan árið 1992. Manndráp af þessu tagi em algengust i suðurhluta landsins. Auk lífláts hafa kristnir menn í Egyptalandi mátt þola ýmiss konar ofsóknir á hendur sér. Þeim hefur verið misþyrmt, verslanir þeirra rændar og kirkjur hafa verið brenndar. Af 60 milljónum Egypta eru milli átia og tiu milljónir kristnar. Bosnía: 50.000 barnabiblíur Sameinuðu Biblíufélögin og Biblíuþýðingar- stofnunin í Stokkhólmi (IBT) stóðu fyrir því að um 50.000 króatísk börn í Bosníu eignuðust Biblíur skömmu fyrir síðustu jól. Afhending fór fram í Sarajevo og tók rómversk-kaþólski kardínálinn Puljic í Bosníu-Hersegovínu þátt í henni. Við það tækifæri sagði hann rneðal annars: - Við höfum þurft að þola erfiða tíma og höfum oft haft lítið að borða. En Biblían mun verða okkur andleg fæða. Hún mun styrkja okkur og gefa okkur von i komandi framtíð og við óskum þess að hún geti stuðlað að sáttargjörð í landi okkar. Ef Bibfían kemst inn á öll heimili i landinu mun hún lækna hjörtun og vera ljós fyrir þjóðina. Boris Arapovic, stjórnandi IBT, er sjálfur Króati og aðalþýðandi barnabiblíunnar. Hann var viðstaddur afhendinguna og lýsti mikilli gleði sinni yfir þvi að sjá börnin taka á móti Biblíum á þeirra eigin máli. Kína: Trúuðum fjölgar í flokknum í Kína fjölgar þeirn stöðugt innan kommúnista- flokksins sem gerast kristnir. 1 Gui Zhou- héraði fara um tvö þúsund félagar í Hokknum reglu- lega í kirkju. Fyrir nokkrum árum voru þeir aðeins um 150. Japan: Margir gerast kristnir Um það bil 30.000 Japanir tóku á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum á síðasta ári. Sam- kvæmt upplýsingum frá Paul Ariga, leiðtoga samtakanna „All Japan Revival Mission", gerist þetta í kjölfar bænavakningar sem orðið hefur i landinu. Hann segir frá því að um 13.000 kristnir Japanir hafi samtals notað 770 þúsund klukkustundir á undanförnum þrem árum til að biðja um vakningu. Nú er Guð að svara þeim bænum. Indland: Vöxtur í starfi stúdenta Stúdentar í indversku skólahreyfingunni áunnu um það bil fimm þúsund manns fyrir Krist á síðasta ári. Flestir þeirra voru áður hindúar. Indverska kristilega skólahreyfingin varð til árið 1949 með litlum bænahóp. Nú starfar hún í öllum fylkjum Indlands. Gleðin yfir að hafa náð til svo margra hindúa er mikil og nú biðja kristnir stúdentar á Indlandi þess að ná í vaxandi mæli til múslima með fagnaðar- erindið. Rússland: Dóttir Stalíns í klaustri Svetlana Stalín, 69 ára gömul dóttir Jósefs Stalíns, hefur gerst kristin og býr nú í klaustri á Ítalíu samkvæmt upplýsingum frá kristniboð- anum Giovanni Garbolino i Róm. Hún flúði frá Sovétríkjunum árið 1967. „Nú einkennist líf mitt af kyrrð, bæn og vinnu," er haft eftir Svetlönu. í fyrra skilaði opinber rússnesk nefnd skýrslu urn aðgerðir Stalíns gegn kirkjunni. Þar kemur fram að um 200 þúsund prestar hafi verið krossfestir, skotnir eða drepnir á annan hátt. Önnur 300 þúsund vígðra manna voru fangelsuð og um 40.000 kirkjur voru eyði- lagðar. Mið-Austitrlöiiíl: Kristilegt gervihnattasjónvarp Yfir eitt hundrað kristin samtök og kirkjur hafa ákveðið að hefja gervihnattasendingar á kristilegu sjónvarpsefni til meira en 360 milljóna manna í Mið-Austurlöndum. Flestir íbúar á svæðinu era múslimar og munu nú eiga þess kost i fyrsta sinn að sjá kristilega sjónvarps- dagskrá á eigin tungumáli. Daglegar útsend- ingar hefjast i janúar á næsta ári. Noregur: Biblían söluhæst Biblían var mest selda bókin í Noregi á árinu 1995. Tæp 190.000 eintök af Biblíum og Nýja testamentum seldust á árinu og er það mun meiri sala en á nokkurri annari bók þar í landi. Rússland: Trúuðum fjölgar Stöðugt fleiri Rússar snúa nú aftur til rétt- trúnaðarkirkjunnar ef rnarka má kannanir félagsfræðinga í Sankti Pétursborg. Á árunum 1993 til 1995 fjölgaði þeim Rússum sem líta á sig sem trúaða úr 46% í 61%. Tæp 95% þess hóps tilheyrir rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni og næsturn því þrír af hverjum fjóram óskuðu þess að kristin fræði yrðu kennd í skólum. 23

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.