Bjarmi - 01.05.1996, Page 26
KRISTNIBOÐ
Þessi kirkja er
bœnakirkja
Eldur vakningarinnar í Eþíópíu slokknar ekki
Ríkur skilningur er á því
í mörgum kirkjum í
Afríku aö nauösynlegt
sé aö breiða út trúna á
frelsarann. Nú hyggur
lútherska kirkjan í
Eþíópíu á starf í
suöausturhluta landsins
þar sem milljónir manna
bíöa eftir boðskapnum. -
Myndin er af eþíópskum
ungmennum.
Orð Guðs rætist
„Bláland færir Guði gjafir hröðum höndum“ (Sálm. 68,32).
Segja má að þessi orð heilagrar ritningar séu að koma fram.
Blálendingar, þ.e. Eþíópíumenn, ákalla Guð í nafni frels-
arans, þiggja hjálpræði hans og gefa sig honum á vald í
nýrri breytni og þjónustu við náungann.
Pvi hefur reyndar verið haldið fram í mörg ár að orð
sálmsins séu að rætast. Þó er sífellt verið endurtaka þau,
enda varir enn vakningin sem kviknaði fyrir mörgum
árum og hefur farið eins og eldur í sinu um mörg héruð
landsins.
Hún hófst eftir stríðið við ítali á dögum einræðisherrans
Mússólínís. Nokkrir kristniboðar voru í Eþíópíu fyrir
1930 en starf þeirra bar lítinn árangur. Þegar ítalir réðust
inn í landið urðu kristniboðarnir að hverfa á brott. Þeir
sneru aftur eftir seinni heimsstyrjöldina - og þá stóðu allar
dyr opnar upp á gátt. Vakningin hafði byrjað meðan kristni-
boðamir voru fjarri - og síðan hefur ekki verið lát á henni.
Margir voru hikandi að vitna um trú sína í tíð kommún-
ista. Nú er hverjum manni frjálst að vitna um trú sína og
margir eru djarfir að segja frá mestu hamingju lífs síns.
Þrítugföld og sextugföld
uppskera
Mikill vöxtur er í kristnu söfnuðunum sums staðar í land-
inu þar sem m.a. íslenskir kristniboðar eru í samstarfi við
hina lúthersku kirkju heimamanna, Mekane Jesús. Kirkjan
eflist. Vöxturinn var rúm 13% á árinu sem leið. Það er
stórkostlegur ávöxtur.
Alls bættust við 220 þúsund manns í kirkjunni á árinu.
Fjöldi safnaðarfólks nálgast tvær milljónir. Þeir voru ein
milljón og tuttugu og átta þúsund árið 1991. Fáar kirkjur
i Afríku vaxa eins hratt.
Prestar og prédikarar eru tilfinnanlega fáir miðað við
þörfina. Prestarnir eru 477, voru 460 árið 1944. Prédikarar
eru fleiri og gegna mikilvægu hlutverki. Þeir voru á sl. ári
tæplega 990. Að meðaltali þarf hver prestur eða prédikari
að sinna um 1200 manns. Þess ber að geta að margir
sjálfboðaliðar rétta hjálparhönd.
Neyðaróp úr fjarlægð
Kirkjan leggur áherslu á að kunngjöra fagnaðarerindið
meðal þjóðflokka sem búa enn við heiðni eins og oft hefur
komið fram hér í blaðinu. Kirkjan og kristniboðarnir hafa
nú undanfarið rætt um að hefja starf á afar viðáttumiklu
svæði í Suðaustur-Eþíópíu, nálægt landamærum Sómalíu.
Kristniboðar frá Norðurlöndunum, m.a. íslandi, sem
starfa saman í landinu og í félagi við kirkjuna, eru alls 90
um þessar mundir. Þeir vinna að boðun og fræðslu, heilsu-
gæslu, skipulagningu, byggingu og viðhaldi húsa o.s.frv.
Kirkjustjórnin hefur farið þess á leit við kristniboðs-
félögin að þau leggi kirkjunni enn frekar lið í útbreiðslu-
starfinu, m.a. í Suðaustur-Eþiópiu, og hafa félögin tekið
þeirri málaleitan vel. Á þingi norrænu kristniboðanna í
Avasa snemma á þessu ári var það mjög ríkt í hugum
þátltakenda að nauðsynlegt væri að beina augum enn meir
en áður til þeirra sem bíða eftir fagnaðarerindinu og fá
26