Heima er bezt - 01.04.1956, Síða 8
Forstöðukona Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
frú Ragnheiður Arnadóttir.
landstúninu, beint suður af lystigarði bæjar-
ins. Flestir munu sammála um, að þetta liafi
verið happaráð.
Nú var þegar hafizt handa um bygginguna,
og var hornsteinninn að húsinu lagður 18.
ágúst 1946. Byggingunni miðaði ágætlega í
fyrstu, en síðar gekk allt hægar. Stundum var
um að kenna efnisskorti, en þó oftast og aðal-
lega fjárskorti.
Loks mátti þó húsið heita fullbúið, eða að
minnsta kosti vel nothæft. Þriðjudaginn 15.
desember 1953 voru sjúklingarnir og öll starf-
rækslan flutt úr gamla spítalanum í nýju bygg-
inguna. Þá voru sjö ár og fjórir mánuðir liðn-
ir, frá því hornsteinninn var lagður og full 17
ár frá því að tekið var að ræða um frarn-
kvæmdir í sjúkrahúsmálinu í fyllstu alvöru.
Þessi mikli dráttur olli því, að byggingin varð
margfalt dýrari en gert var ráð fyrir í fyrstu. Hins vegar
má telja drættinum það til gildis, að húsið varð, þegar
það loks komst upp, mun stærra og enn betur búið en
menn liöfðu þorað að vona. Stofnkostnaður byggingar-
innar mun alls hafa orðið rúmar 12 milljónir króna.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri er mikil og glæsileg
bygging. Það stendur hátt, og útsýni þaðan er hið fegursta.
Einnig sézt þessi mikla og fagra bygging víða að úr bæn-
um og mun áreiðanlega setja svip sinn á Akureyri um
langan aldur, okkur er ef til vill óhætt að segja, um alla
framtíð. Flatarmál byggingarinnar er 925 fermetrar, en
rúmmál hennar um 14 þúsund teningsmetrar. Lóðin er
rnjög stór, svo að svigrúm til aukinnar starfsemi, bygginga
og annars, er næstum ótakmarkað. Þá eru miklir mögu-
leikar til þess að skapa þarna fallegt skóglendi og skrúð-
garð á ókomnum árum.
Húsið er þrjár hæðir og kjallari, og auk þess er neðri
kjallari undir austurhlutanum. Sjúkraherbergi eru 38 að
tölu, en mér er sagt, að alls séu 242 herbergi í bygging-
unni, ef öll smáherbergi, gangar og skot eru talin.
Aðaldyr hússins eru að norðan, en úr anddyri gengið
inn í skrifstofu, röntgendeild og lyflæknisdeild og skurð-
stofur, en á þriðju hæð er fæðingardeild og deild, þar
sem liggja sjúklingar bæði úr handlæknis- og lyflæknis-
deildum. — Sjúkradeildir þessar taka 33—38 sjúklinga
hver, og eru sjúkrastofurnar flestar með sex eða þrem
rúmum. Á fæðingardeild geta legið átta konur sam-
tímis. Sjúkrastofurnar allar eru með þriggja metra loft-
hæð, ánægjuleg herbergi, björt og prýðilega loftræst.
Sjúkrastofurnar eru málaðar ljósgrænum lit, mjúkum og
þægilegum. Vestan á álmunni, sem snýr stöfnum norður
og suður, en sunnan vesturálmurnar, eru sólríkar og skjól-
ríkar svalir, þar sem sjúklingar geta notið útiloftsins og
Að neðan: Yfirlœknir Guðm. K. Pétursson með starfsliði sinu á
,jtofugangi“.