Heima er bezt - 01.04.1956, Blaðsíða 10
Ljósm. E. Slgurgeirsson.
Irá rannsóknarstofunni.
Til vinstri: Ólafur Sigurðsson, yfirleeknir lyflœknisdeildar.
er að minnast og þakka. Hér eru þtj engin tök á að gera
það sem vert væri. Fjórðungssjúkrahússins verður þó tæp-
ast minnzt, jafnvel ekki í stuttri blaðagrein, Ún þess að
dvelja örstutt við fáeina úr starfsliðinu.
Við hljótum þar fyrst að minnast þess manns, sem senn
hefur starfað við sjúkrahúsið fulla tvo áratugi og öðrum
fremur hefur skapað og mótað það í þeirri mynd, sem
það er nú. Það er Guðmundur Karl Pétursson, yfirlæknir.
Hann er fæddur að Hallgilsstöðum í Hörgárdal 8. sept-
ember 1901. Foreldrar hans voru Pétur bóndi Jóhannsson
og kona hans Sigríður Manasessdóttir. Guðmundur varð
stúdent 1925 og lauk prófi í læknavísindum við Háskóla
íslands sex árum síðar. Við lokapróf hlaut hann I. ágætis-
einkunn, þá hæstu, er tekin liafði verið í læknadeildinni.
Meira námsafrek var ekki unnið í læknadeildinni fyrr en
17 árum síðar. Að loknu námi hérlendis stundaði Guð-
mundur framhaldsnám í Svíþjóð. Eftir glæsilegan náms-
feril varð hann svo aðstoðarlæknir við Landsspítalann í
Reykjavík og starfaði þar um tveggja ára skeið.
Guðmundur Karl hlaut viðurkenningu sem sérfræð-
ingur í handlækningum árið 1936, og þá um haustið
fluttist hann norður og tók við embætti sjúkrahúslæknis
á Akureyri. Þar hefur lrann síðan starfað, og vonum við
Norðlendingar, að við fáum að njóta hans áratugi enn.
Ég er ekki læknisfróður, en öllum, sem einhver kynni
hafa af störfum Guðmundar Karls, bæði lærðum og leik-
um, mun fyllilega ljóst, að hann er afburðasnjall skurð-
læknir. Þann almannaróm mætti styðja mörgum ummæl-
um þeirra, sem bezt hafa vit á, en ég læt mér nægja að taka
hér upp orð Péturs læknis Jónssonar, er hann mun mælt
hafa fyrir munn fjölmargra starfsbræðra, þegar Guðmund-
ur Karl varð fimmtugur. Pétur ritaði þá m. a. í Morgun-
blaðið: „Okkur, collegum Guðmundar, sem höfum séð
hann starfa, dylst ekki, að hann er í allra fremstu röð
skurðlækna, hvað handbragð og þekkingu snertir.“
106 Heima er bezt