Heima er bezt - 01.04.1956, Qupperneq 9
fagurrar fjallasýnar á góðviðrisdögum. í suðurenda
sömu álmu eru einnig lokuð sólbyigi.
I kjallara hússins er eldhús og borðstofa starfs-
fólks, rúmgóð og vel búin rannsóknarstoia, tvö mót-
tökuherbergi lækna, biðstofa o. fl. I kjallara er einn-
ig miðstöð liins mikla hitakerfis byggingarinnar, en
húsið er rafmagnshitað, en olíukynding höfð til
vara, ef til rafmagnstruflana kæmi. Smíðaverkstæði
o. fl. er einnig í kjallara. í neðri kjallara eru
geymslur og frystiklefar. Skammt vestan við aðal-
bygginguna er sérstakt hús, sem í er rafmagnsskipti-
stöð, sótthreinsunarstöð, líkgeymsla, líkskurðarstofa
og lítil kapella.
Þótt meginhluti af rekstri Fjórðungssjúkrahúss-
ins sé í þessari miklu byggingu, er svolítið af honum
Kaffihlé hjá lceknaliði Fjórðungssjúkrahússins.
utan hennar. Er þar helzt að telja dálitla geðsjúkra-
deild, sem er í lítilli byggingu alllangt frá sjálfu
sjúkrahúsinu. Ólafur yfirlæknir Sigurðsson er lækn-
ir hennar, en hjúkrunarmaður er hinn ágæti söngv-
ari okkar Jóhann Konráðsson. Byggingu þá, er reist
var sunnan gamla sjúkrahússins litlu fyrir stríð og
fyrr getur, notar Fjórðungssjúkrahúsið sem nema-
bústað. Þar er einnig Heilsugæzlustöð Akureyrar.
Þá er enn ótalið þvottahús sjúkrahússins.
Rekstur Fjórðungssjúkrahússins hefur gengið
furðuvel þau tvö ár, sem það hefur verið starfrækt,
þótt það sé auðvitað miklum vanda bundið að koma
rekstri svo mikillar stofnunar á traustan fjárhags-
*■
grundvöll. I ársbyrjun 1954 lágu 65 sjúklingar í
sjúkrahúsinu, en 1065 voru innritaðir á því ári. I
árslok lágu 101 siúklingur í sjúkrahúsinu, en 1160
höfðu velíð innritaðir á því ári. Um 220 fæðingar
urðu í fæðingardeildinni 1955. Legudagafjöldi varð
alls 1954 381.40, en 43479 árið sem leið. Af hinum
1130 sjúklingum 1954 voru 531 af Akureyri, 297 úr
Eyjafjarðarsýslu og 145 úr Þingeyjarsýslum, en 157
annars staðar að
Það segir sig sjálft, að starfslið svo mikillar stofn-
unar sem Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hlýtur
að vera mjög fjölmennt. Alls mun nú starfa við
sjúkrahúsið um 70 manns. Það eru læknar, lækna-
nemar, hjúkrunarkonur, hjúkrunarnemar, ljósmæð-
ur, gangastúlkur, aðstoðarstúlkur í röntgendeild og
rannsóknarstofu, starfsstúlkur í eldhúsi og þvotta-
húsi, starfsmenn til ýmissa starfa, ráðskona og fram-
kvæmdastjóri.
Allt þetta fólk vinnur mikil og góð störf, sem gott
Torfi Maronsson sérfræðingur i nuddlcekningum.
Til hægri: Starfsstúlkur við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.