Heima er bezt - 01.04.1956, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.04.1956, Blaðsíða 25
Nr. 4 Heima 121 -------------------------------- er bezt--------------------------- mældust 110 mm, 50% meir en venjulega. Hér fyrir sunnan voru líka dimmviðri í meira lagi, og sól- skinið var aðeins 26 klst, nærri helmingi minna en í meðalári. Ekki þarf að taka fram, að snjóalög voru óvenju lítil og það þrátt fyrir þá óhemju fönn, sem komin var norðan lands í janúar. Munu bændur því hafa getað sparað mikið hey sín. Gæftir voru yfirleitt góð- ar, og aflinn fremur góður, einkum framan af. Við minntumst áður á sunnanveðrið mikla 1. febrúar. Það náði um landið allt, en þó var veður- ofsinn mismunandi. Mestur virðist hann hafa orðið á Norðurlandi, frá Skagafirði austur um Þingeyjar- sýslur, því að þar urðu skemmdir mestar. En athug- unarmaðurinn á Fagurhólsmýri, Helgi Arason, tek- ur það sérstaklega fram, að þetta hafi þar ekki verið með mestu veðrum. Mikil úrkoma fylgdi þessu veðri vestan lands, 59 mm í Andakílsrafstöð og 41 mm á Hamraendum í Dalasýslu, svo að eitthvað sé nefnt. En allra mest rigndi þó á Fljótsdalshéraði, 77 mm á sólarhring á Egilsstöðum. En strax norður í Vopnafirði var úrkomulaust og svo var einnig víð- ast í Norðurlandi. Eins og menn muna, voru frá- sagnir af þessu veðri eitt aðalefni fréttanna marga daga á eftir, og hér eru engin tök á að gera því skil, þótt það væri vert sérstakrar rannsóknar. Af öðrum viðburðum í mánuðinum má nefna, að hinn 3. febrúar varð vart við hrævareld á Fagur- hólsmýri, og aðfaranótt hins 29. voru miklar þrum- ur í Skaftafellssýslu, svo að margir símar í Land- broti brunnu. Og nú skulum við snúa okkur að öðru efni. Frá fornu fari hefir jörðinni verið skipt í belti eftir veðurfari. Menn tóku snemma eftir því að sól gekk hærra í sumum löndum en öðrum, og þar var að jafnaði hlýrra veðurfar. T. d. sáu Grikkir, að þeir bjuggu við mildari vetur en barbarar land- anna fyrir norðan. Eðlilega hugðu þeir að það væri sólarhæðin, sem réði hlýindunum, þess vegna köll- uðu þeir veðurfarið klima, en það þýðir orðrétt halli, þ. e. halli sólargeislanna. En sólarhæð fer eftir breiddarstigi, og þegar menn uppgötva lögun jarðar, miðbaug, heimskaut og breiddarstig, þá var ekkert eðlilegra en skipta jörðinni í veðurfarsbelti eftir breiddarstigum. Enn í dag má sjá þessa gömlu skipt- ingu í landafræðibókum, 'hitabelti milli hvarfbauga, kuldabeltin tvö takmörkuð af heimskautabaugun- um og tempruðu beltin tvö milli hitabeltis og kulda- belta. Frá veðurfræðilegu sjónarmiði eru þó ágallar á þessari skiptingu, og þeir eigi alllitlir. Það er t. d. ekki eðlilegt, að ísnúin strönd Suður-Grænlands skuli liljóta sama sess og frjóar ekrur Svíþjóðar á sömu breiddargráðu. Og ekki er mikið sameigin- legt með hitasvækju frumskóganna og svíðandi þurrkum eyðimarkanna, þótt hvorttveggja geti fundizt á sama breiddarstigi. Þessi gamla skipting liefir því nær eingöngu stjarnfræðilegt gildi, en lítið veðurfræðilegt, síðan menn tóku að kynnast raunverulegu veðurfari jarðar, mæla það og kort- leggja. Og þótt við þekkjum ekki annað en meðal- hita og úrkomu hvers mánaðar ársins á tilteknum stað, þá er það vitneskja, sem fræðir okkur meir en breiddargráðan ein getur gert um hagi manna og málleysingja á staðnum. Reglubundnar veðurathuganir hefjast ekki að marki fyrr en um miðja 19. öld, og í fyrstu voru þær afar strjálar, en þeim fjölgaði mjög á síðari hluta aldarinnar. Þá gátu menn farið að bera sam- an veðurfar mismunandi landa. Og þá var þess ekki heldur langt að bíða, að menn færu að flokka veður- farið eftir þessum mælingum. Sii flokkun, sem einna mestri viðurkenningu hefir náð, er kennd við þýzka veðurfræðinginn Köppen, og í kvöld ætla ég að gera dálitla grein fyrir henni. Við flokkun veðurfarsins hefur Köppen það eink- um í huga, hvaða lífsskilyrði það veiti. Hóf er bezt að hafa á öllum máta, og ekki á þetta síður við um veðrið en annað. Og hvað er það þá í veðurfarinu, sem helzt keyrir úr hófi? Frostið nístir, hitinn brennir í þurrki, en kæfir í raka. Raunar er það fleira sem angrar, stormar æða og brjóta, en slíkt setja menn þó ekki mjög fyrir sig, ef hitinn og rak- inn er í hófi. Á þesum forsendum mun Köppen hafa reist þá ályktun sína, að veðurfarið mætti flokka eftir hita og úrkomu eingöngu. Mun þó rniklu hafa ráðið um þessa ályktun Köppens, að hit- inn og úrkoman eru þeir einu veðurþættir, auk loftþrýstings, sem þá voru sæmilega kunnir um mikinn hluta jarðar. Ymsir hafa reynt að endur- bæta þessa ílokkun hans, og tekið þá til greina aðra þætti en úrkomu og hita, til dæmis uppgufun, en vegna þess, að hún er lítt rannsökuð, hefir jafnan orðið að hverfa aftur að ráði Köppens, að láta hit- ann og úrkomuna ráða. Einn er sá flokkur veðurfars, sem finna má dæmi um gervalla jörð. Það er loftslag öræfanna. Það er ekki síður ríkjandi á tindum Himalajafjalla, að- eins 25 gráður frá miðbaug, en í Grænlandi, skammt frá norðurskautinu. Má því heita, að ör-

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.