Heima er bezt - 01.04.1956, Page 36

Heima er bezt - 01.04.1956, Page 36
132 Heima Nr. 4 --------------------------------er bezt---------------------------- — Aldrei. — Ertu ekkert undarleg eða hrædd, hvorki með- an þú sérð það eða á eftir? — Ekki hið minnsta. Ég held maður þurfi ekki að vera hræddur við þessi grey. Ég hefi einu sinni orðið hálfhrædd, en þá var ég hálfgerð stelpa, og það sem ég sá var svo ólíkt öllu öðru, sem ég hefi annars séð. — Hvernig er það með þessar verur, sem þú sérð, huldufólkið og annað; sérðu það ef þú leggur aug- un aftur? — Já, þegar ég opna augun aftur, en ekki meðan þau eru lokuð, en ég sé þessar verur jafnt, hvort sem dimmt er eða bjart. — En þú sérð aldrei neitt, ef þú hefir augun aftur? — Svo er. — Nú, en hvað einkennir svo huldufólkið, sem þú svo kallar, frá fylgjum? — Það hagar sér líkt mönnum og heldur saman í flokkum, eða fleiri en einn oftast nær, og mér virðist eins og það hverfi ávallt inn í hóla og hæðir, eða þá inn ií stóra steina, og heldur mest til út um hagann, en aldrei í fjölmenni eða innan um skarkala mannanna. í vetur sá ég á veginum fyrir neðan Bægisá huldufólk á ferð. Það hélt niður eftir veg- inum karlmaður ríðandi rauðu hrossi og kvenmað- ur, sem reið jörpu. Svo ráku þau á undan sér reið- ingshross með klyfjum á, sem voru að fyrirferð eins og kornvörupokar. Bæði fólkið og hestarnir hög- uðu sér að öllu leyti eins og'mennskir menn væru á ferð. — Hvar varst þú, og á hverju þekktir þú, að þetta voru ekki ferðamenn? — Ég var niður við veg, ætlaði yfir um á, sem ég fór. Ég get ekki sagt, á hverju ég þekki huldufólk, ég einhvernveginn veit það, og svo hvarf þetta fólk mér allt í einu, þegar það var komið nokkuð út eftir, enda kannaðist enginn við, að neinn hefði verið á ferð, en ég hélt spurnum fyrir um það. Einu sinni fór stór flokkur framhjá mér fyrir ofan Reykjavík, á að gizka 40 manns, bæði ríðandi og gangandi, og ég heyrði óm af sálmasöng frá því, annars heyri ég sjaldan til þess, eins og ég hefi áður sagt. — Sérðu nokkurntíma inn í híbýli huldufólks? — Nei, aldrei. — Hvernig veiztu þá, að það fer inn í hóla og kletta? — Það hverfur aldrei öðruvísi en eins og það fari inn í eitthvað, sem hátt ber á; þó sýnist mér það stundum eins og fara ofan í jörðina, en aldrei þar, sem er l'áglent, enda hefi ég oftast séð huldu- fólk og fénað þess á hálendi fyrir ofan manna- byggðir. — Sérðu það aldrei kringum eða innan um fólk og fénað niðri í byggðinni, sástu t. d. aldrei huldu- fólk í Reykjavák, eða þegar þú varst á Akureyri? — Nei, aldrei. í Reykjavík sá ég aldrei neitt, ekki einu sinni fylgjur manna, nema einu sinni í Aðalstræti. Þar sá ég einhverja flyksu vera að slæð- ast fyrir ofan bryggjuihúsið. Framhald i nasta blaði. Lagt á Héðinsskörð Framhald af bls. 130. --------------: inn, því þeir bjuggust við öllu hinu versta. Þá var skólastjóri þar Hermann Jónasson; kom hann að máli við heimafólk og sagði, að viss væri hann um það, að við hefðum snúið við í Skörðunum, og værum á heimleið, og sennilega ekki langt undan, en það sagðist hann ekki vita, hvernig á því stæði að við værum ekki jafnmargir, og við fórum um morguninn; taldi hann líklegt að einhverjir okkar hefðu uppgefizt og helzt úr lestinni. Skipaði hann að bera Ijós út í alla glugga skólahússins, ef ske kynni, ef við færum framhjá, að við sæum þau. Sjálfur fór hann út í stórhríðina og niður í kirkju og hringdi hinum miklu klukkum dómkirkjunnar. Var þetta aldagamall siður á kirkjustaðnum, að hringja kirkjuklukkunum, ef fólk hélt að einhverjir væru að villast í nágrenninu, og kom það oft að góðu liði. En það einkennilega við þetta var, að aldrei heyrðum við klukknahljóminn, og hefur mér ætíð fundist það óskiljanlegt. En skömmu síðar en Hermann hætti að hringja, skaut okkur upp hjá skólahúsinu. Var okkur forkunnar vel tekið og hlynnt að okkur á allan hátt, enda var þess ekki vanþörf, eftir 18 klukkutíma göngu. Voru sumir okkar svo illa farnir, að þeir lágu rúmfastir dag- inn eftir. Er sögunni þar með lokið. Enn skýtur þeim spurningum upp í huganum: Hvernig vissi Her- mann, að við hefðum snúið við í Skörðunum, og hvernig gat hann vitað, að við vorum ekki jafn- margir og heiman fóru um morguninn? Og síðast, en ekki sízt? Hvað olli því, að við heyrðum ekki hinn mikla hljóm klukknanna?

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.