Heima er bezt - 01.04.1956, Page 38

Heima er bezt - 01.04.1956, Page 38
Hér birtist fjribji hluti af hinni spennandi framhaldssögu ÞRÍR ÓBOÐNIR GESTIR eftir Josepli Hayes E'V, tek fangelsið’ fram yfir. Ég hata gístihús, n og svo höfum við heldur ekki efni á slíku, -A og ég vil helzt vera sem næst þér.“ Jessi brosti aftur og greip hönd hennar af borð- inu. Hún leit hálfringluð í kringum sig í veitinga- húsinu. En Jessi hélt fast í hönd hennar, og hún sá brosið á andliti hans víkja fyrir byrstum svip. Hún vissi ekki, að hann sá sér fyrir hugskots- sjónum eins og kvikmynd á tjaldi, atburði, sem vel gætu átt sér stað. Glenn Griffin miðaði skanim- byssu sinni á hrætt og saklaust fólk, slíkt var engin fjarstæða. Og enginn vissi betur en Jessi Webb, hve skotfimur Glenn Griffin var. En hvar var hann niður kominn? Aðeins að hann vissi það. . . . Ef hann aðeins þyrfti ekki að bíða svona, meðan þessar skuggamyndir liðu fyrir hugskotssjónir hans og hvert atriði þeirra rak annað. Meðan Dan Hilliard starði á skammbyssuna, sem þessi ungi maður hélt svo kæruleysislega á og hug- ur hans hvarflaði að því tjóni, sem þessi skamm- byssa, jafnvel ónotuð, kæmi til leiðar, varð hann yfirkominn af getuleysi sínu. Ef lögreglan kæmi á vettvang, mundi það liafa hinar hörmulegustu afleiðingar, og ef lögreglan kæmi ekki, mundi ef til vill fara enn verr. „Strákurinn kemur á hjólinu upp stíginn,“ sagði Robish innan úr kompunni. „Ef þér vilduð lofa mér að tala við hann,“ sagði Dan fljótmæltur, „þá gæti ég skýrt þetta fyrir hon- um, og. .. . “ „Haltu þér saman,“ sagði Glenn Griffin þýðlega. Dan heyrði snarkið í öðru hjólinu, er það rann út á mölina. „En þegar ekkert ljós er hér, verður drengurinn skelkaður. Þér getið ekki. . . . “ Glenn Griffin stökk til og stakk skammbyssu- hlaupinu milli rifja Dans. Hann greip andann á lofti og hönd hans læstist um herðar Elenóru. Án þess að hirða um þetta frekar, heyrði hann gengið stuttum, léttilegum skrefum upp að bak- dyrunum, sem síðan voru opnaðar og svo barst að eyrum lians óp, blandið undrun og ótta. Hann stirðnaði upp. Hugsanir hans höfðu hvarflað til skammbyssunnar, og einmitt í þessurn svifum fann hann aftur fyrir hlaupinu milli rifja sér. Hann heyrði áflog í eldhúsinu, og þau bárust inn í dagstofuna, og Ralph talaði eitthvað sundur- laust. Svo birtist hann þarna í dyrunum, en ungur maður hélt honurn föstum. Dan hafði ekki séð þenna mann fyrr, en þekkti þegar, að hér mundi vera um bróður Glenns Griffins að ræða. „Slepptu mér!“ sagði Ralphie og reit’ sig lausan. „Hank.“ Glenn sneri skammbyssunni, svo að hún vissi fram í ganginn. „Kveiktu í ganginum. Dragðu rennitjöldin fyrir í borðstofunni og farðu svo aftur fram í eldhúsið.“ Meðan hann talaði gekk liann út í ganginn, svo að hann gæti ekki sézt gegnum framgluggana. Hver sá, sem gengi um götuna, gat séð Hilliard- fjölskylduna í dagstofunni. Drenginn í ganginum, afundinn, en ekki óttasleginn, gátu vegfarendur ekki séð, heldur ekki Glenn Griffin, sem stóð við hlið hans. „Hvað er þessi strákur að gera í eldhúsinu okk- ar?“ spurði Ralphie. „Þetta er allt eins og það á að vera, Ralphie,“ 134 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.