Heima er bezt - 01.09.1960, Side 17

Heima er bezt - 01.09.1960, Side 17
„ . . . £g skal nú leyfa mér að skýra yður frá hvenær og hvernig það byrjaði, sem var orsökin í óláni mínu. Ég var ekki enn fullra 16 ára, þegar það gerðist. Ég gekk þá i latínuskólann, en bróðir minn var byrjaður á háskólanámi. Þótt ég hefði þá að vísu ekki enn haft náin kynni af konum, var ég þó ekki lengur saklaus fremur en aðrir drengir í mínum hóp. Með því að um- gangast félaga mína hafði ég glatað hreinleikanum í hugsunum, og í meira en ár hafði konan — ekki nein ákveðin, heldur konan yfirleitt svo sem eitthvað áfengt og ljúffengt, sérhver kona, nekt hennar — svifið fyrir sjónum mér og hleypt óþægilega mikilli ólgu í blóð mitt. Ég svaf illa, því æst ímyndunarafl mitt truflaði svefninn og fyllti hug minn alls konar lostafengnum draumórum. Ég þjáðist af þessu, eins og níutíu og fimm af hverju hundraði alls hins ófarsæla og óreynda æskulýðs vorra daga þjáist af hinu sama, Ég skelfdist af því, sem ég gerði, ég þjáðist og bað til guðs, að hann vildi styrkja mig í neyð minni, ég bað og — hrasaði. Sál mín var þegar saurguð orðin, en samt hafði ég ekki enn reynt að draga aðra mannveru með mér niður í skarnið." Úr bókinni Kreutzer-sónatan 104. HÚSBÓNDI OG ÞJÓNN eftir Leo Tolstoy. I bók þessari er sagan, sem bókin ber nafn af, en auk þess sögurnar „Land, land!“, ,,Af hverju mennirnir lifa“ og „Dauði Ivan Iliitsj“. Þessar fjórar sög- ur eru einna frægastar af þeim fjölda smærri skáldrita, sem Tolstoy hefur ritað. Eru þær hver fyrir sig vafalaust listaverk. Bókin er 207 bls. Sigurður Arngrímsson þýddi. í lausasölu kr. 50.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 35.00 „ . . . Skyndilega heyrði hann gegnum hinn tilbreytingarlausa þyt stormsins nýtt, langdregið ýlfurhljóð, hljóð frá einhverju lifandi. Þetta hljóð endurtók sig, jókst reglulega, efldist stöðugt, og þegar það hafði náð fullum krafti og skýrðist, deyfðist það aftur jafn reglulega. Það gat ekki verið neinn vafi: Það var úlfur. Og þessi úlfur gólaði svo nálægt, og af því að vindurinn stóð einmitt af sömu átt, að maður gat greinilega heyrt, að radd- hljóðið breyttist eftir því, hvernig hann skældi skoltinn. Vasili Andréitsj hafði brett kápukragann aftur og lagði við eyrað í áttina og hlustaði með ákefð. Sá jarpi vék líka við höfðinu og hvessti eyrun og þegar ýlfri úlfsins linnti, stappaði hann órólegur niður fótunum og hneggjaði dauft, en geigvænlega. Upp frá þessu augnabliki var Vasili Andréitsj gersamlega ómögulegt að sofna eða yfir höfuð að fá huga sínum nokkurn frið. . Hversu mikið sem hann lagði sig i líma við að hugsa, jafnvel um tekjur sínar, um störf sín, um manngildi sitt, metorð sín og auðæfi — kvíðinn náði meira og meira tökum á honum og bolaði burt öll- um öðrum hugsunum, nema þessari einu: að hann hefði átt að gista í Grisjkino." Úr bókinni Húsbóndi og þjónr. 106. A ÖRLAGASTUNDU eftir Sigurð Hoel. „ . . . Oðrum þræði er sagan hugðnæm ástarsaga og baráttusaga ungs manns, sem tekur lesand- ann þeim tökum, að hann sleppir bókinni nauðugur fyrr en að loknum lestri.“ — Steindór Steindórsson frá Hlöð- um. Bók þessa hafa þeir Jón Sigurðsson, skrifstofustjóri, frá Kaldaðarnesi, og Lárus Jóhannesson, hrl., þýtt. — Bókin er 355 bls. í lausasölu kr. 80.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 55.00 „ . . . Já, hún hafði mikla ánægju af að lofa mér að skoða sig, það er að segja, hluta af sér. Hún hafði yndislegan háls, fallegar axlir og fullkomin brjóst, sem henni þótti vænt um og var hreykin af. Allt þetta fékk ég að sjá — ekki án fyrirhafnar — og auðvitað aldrei án þess að mæta nokkurri mótspyrnu. En okkur var það báðum fullljóst, að áður en kvöldið var liðið .... Eftir því, sem sumarið leið, fékk ég mjög nána þekkingu á — hvað á ég að kalla það? — landskostum hennar. Landskostum hennar að ofanverðu. Ég er þakklátur fyrir það enn í dag. Það var indælt landslag. Mér fannst smjör drjúpa af hverju strái." Úr bókinni Á örlagastundu 111. í LEIT AÐ LIÐINNI ÆVI eftir James Hilton. Sagan er af ríkum, ungum Englend- ingi, sem missir minnið í fyrri heimsstyrjöldinni vegna sprengjuáfalls. Hann man ekkert af fyrri ævi, lendir með leikaraflokki, giftist einni leikkonunni og lifir með henni í ástríku hjónabandi um nokkurt skeið. Þá verður hann fyrir slysi á ný, sem veldur því, að nú man hann allt, sem gerðist áður en hann hitti konu sína og leik- flokkinn, en ekkert frá þeim tíma. Sagan er mjög vel sögð og mun styðjast við sannsögulega viðburði. „Sögur James Hilton, „Verið þér sæhr hr. Chips“ og einkum „í leit að liðinni ævi,“ hafa að verðleikum hlotið miklar vin- sældir meðal íslenzkra lesenda. . . .“ — Steindór Stein- dórsson. í lausasölu kr. 80.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 55.00 „ . . . Hann rankaði við sér liggjandi þarna á garðbekknum. Hann opnaði augun og sá regnský og rennvot tré og fann dropana dynja á andliti sínu. Eftir nokkra stund fór honum að þykja að- staða sín harla undarleg, svo að hann settist upp, en varð þess þá var, að föt hans voru gegnblaut, limirnir stirðir, að hann hafði svæsinn höfuðverk, og að maður laut vfir hann. Fyrst datt honum í hug, að hann hefði verið drukkinn kvöldið áður, en hann hvarf frá því, sumpart vegna þess að hann mundi ekkert eftir kvöldinu áður, sumpart vegna þess að einhvern veginn fannst honum hann ekki myndu vera þess kyns maður, en aðallega vegna vaxandi áhuga á því sem maðurinn var að segja — „Svona já, — allt með rónni, laxi. Kom varla ekkert við þig — það var árans bleytan, þú eins og rannst. Vertu bara kátur, laxi, þú ert óbrotinn og allt í lagi — annars myndi ég ekki skilja þig hér eftir ..." Úr bókinni 1 leit að liðinni œvi 112. A VÍGASLÓÐ eftir James Hilton. „ . . . Sagan lýsir æviferli Englend- ings, sem á unga aldri lendir til Rússlands, tekur þar upp rússneskt nafn, er sendur til Síberíu í útlegð, en skolar aftur til Rússlands í flóði byltingarinnar 1918. Er mikill hluti bókarinnar um þrengingar hans og ævintýri á bylt- ingarárunum. Eru lýsingamar á öngþveiti og reiðileysi byltingaráranna mjög skýrar, en í þær ofið fögru ástar- ævintýri. En sagan er þó fremur öðru mannlýsing með ágætum eins og aðrar sögur höfundar. Hún er ein þeirra skemmtisagna, sem menn lesa sér til ánægju og gefa les- andanum eitthvað í aðra hönd. . . .“ — Steindór Stein- dórson frá Hlöðum. Axel Thorsteinsson þýddi. Bókin er 309 bls. í stóru broti. í lausasölu kr. 70.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 45.00 „ . . . Þegar hann hafði fyllt ferðapelann varð honum heldur en ekki bilt við, því að í 50 metra fjarlægð eða svo kom hann auga á dálítinn skógarkofa, sennilega heimili skógarhöggsmanns. Kofinn var að mestu hulinn skógarlimi og það var í rauninni tilviljun, að hann tók eftir honum. Hann gekk varlega í áttina til kofans og sá nú, að hvítan reyk lagði upp úr reykháfinum. Kofi þessi, á afskekktum, fögrum stað vakti forvitni hans, og hann læddist milli trjáa og runna að annarri kofahliðinni, sem var gluggalaus. Hann gekk varlega að veggnum og lagði eyrað að honum, en gat ekki heyrt neitt, hvorki klið af mannamáli eða nokkra hreyfingu. Hann læddist nú meðfram kofahliðinni og fyrir næsta horn og að glugga, sem þar var og gægðist inn. í Heima er bezt 341

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.