Heima er bezt - 01.09.1960, Side 23
•ofmikið demantsskraut, illa förðuð og var þó rauði liturinn
yfirgnæfandi. Klæðnaður hennar var í senn ósmekklegur og
óþrifalegur. Hárið var úfið og svörtu flókaskórnir götóttir. Gagn-
kvæm undrun lýsti sér í svip beggja, er hann kom inn í garðinn."
Úr bókinni Þrenningin
133. HIMNASTIGINN
eftir E. Philips Oppenheim. Hugmyndaflug höfundarins
var ótrúlega mikið og afköstin ekki síður, því að hann
samdi alls hvorki meira né minna en 100 skáldsögur.
Þessi saga segir frá manni, sem varð gjaldþrota vegna
þess, að hann trúði bróður sínum fyrir fé sínu, en hann
lagði það í olíulindasvæði. Síðar fannst olía á svæðinu
og varð hann margfaldur miljónamæringur. Er sagt á
skemmtilegan hátt frá mismunandi framkomu manna við
hann fyrir og eftir ríkidæmið.
í lausasölu kr. 60.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 40.00
„ . . . Erfiðleikar, sem urðu upphaf merkilegra atburða, byrjuðu
þegar Everard Dominey, sem þrjá síðustu stundarfjórðunga hafði
brotizt gegnum skógarþykknið í áttina til reykjarstróksins og
hvatti nú hest sinn til að nota síðustu kraftana, steyptist á
höfuðið inn í lítið rjóður. Næsta morgun vaknaði hann í fyrsta
skipti í marga mánuði í rúmi, með sængurfatnað umhverfis sig,
og reyrþak milli sín og brennandi sólskins. Hann reis upp við
dogg.
„Hvar í fjandanum er ég?“ spurði hann.
Svartur piltur, sem hafði setið með krosslagða fætur í dyrunum,
stóð upp, muldraði eitthvað í barm sinn og gekk burt. Von
bráðar birtist hár og grannur Evrópumaður í skínandi hvítum
reiðfötum. Hann beygði sig niður að Dominey.
„Líður yður betur?" spurði hann hæversklega.
„Já, svaraði hinn dálítið hranalega. „Hvar í fjandanum er ég,
og hver eruð þér?“
Úr bókinni Himnastiginn
134. TVÍFARINN
eftir E. Philips Oppenheim. 1 þessari bók segir frá Eng-
lending og Þjóðverja, sem voru svo líkir, að þeir þekkt-
ust ekki að. Annar drepur hinn og tekur upp gervi hans í
sambandi við njósnir. En hver var það? Það leiðist eng-
um, meðan hann les bækur eftir Oppenheim.
í lausasölu kr. 60.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 40.00
„ 1 dögun næsta morgun hafði vindinn lægt, en grá snjó-
ský þöktu himininn. Dominey fór út úr húsinu bakdyramegin
og gekk í ótroðnum snjó umhverfis það, þangað til hann var
kominn undir glugga frú Dominey. Hann rak ósjálfrátt upp
undrunaróp. Frá horninu á Svartaskógi, yfir garðinn og til baka
sömu leið voru nýleg fótspor. ópið hafði ekki verið nein ímynd-
un. Einhver hafði komið úr Svartaskógi á þennan stað um nóttina.
Þessi uppgötvun æsti forvitni hans og hann athugaði
sporin vandlega, og rakti þau til skógarins. Þau voru honum ekki
lítið undrunarefni, því að þau líktust hvorki mannssporum né
neinum þekktum dýrasporum. Þegar kom að skógarjaðrinum
hurfu þau inn í þéttan runna, sem snjórinn virtist hafa verið
hristur af. Það voru engin merki um götuslóð né gangstíg. Hann
sté varlega eitt skref áfram og fann sig sökkva hægt. Svört leðja
vall upp gegnum snjóinn, þar sem hann sté niður. Hann komst
með naumindum til baka aftur með því að fara afar gætilega
og gekk í rólegheitum hringinn í kringum skóginn."
Úr bókinni Tvifarinn
135. MORÐMÁLIÐ: RÉTTVÍSIN GEGN FRÚ AMES
eftir A. S. Roche. Þetta er mjög spennandi reifari frá
Ameríku um fagra tignarkonu, sem er ákærð fyrir morð
á manni sínum, mesta óþokka, en sýknuð af kviðdómi.
Einn af helztu blaðamönnum borgarinnar trúir ekki á
sakleysi hennar og tekst á hendur að rannsaka málið og
koma upp um morðingjann. Kemur þá í ljós, að líf hins
myrta manns var allt annað en það sýndist á yfirborðinu
og gátu því margir komið til greina, sem hefðu viljað
ryðja honum úr vegi. En hver var hinn raunverulegi
morðingi? Svarið fáið þið með því að lesa bókina. —
Höfundur bókarinnar er mjög vinsæll, amerískur reyf-
arahöfundur. Bókin er 200 bls.
í lausasölu kr. 23.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 15.00
„ . . . Kernochan nam staðar andartak á útidyraþrepum húss-
ins við 63. götu. Á gangstéttinni stóðu allmargir forvitnir menn
og konur, og honum gramdist það. Nú var liðin nær því vika
frá því er frú Ames var sýknuð, og ennþá var fólkið að forvitnast
um háttu hennar. Það var efst í honum að taka sig til og skamma
þetta fólk. En svo fór hann að brosa með sjálfum sér að þessari
tilefnislausu reiði sinni. Allt til þessa hafði hann ekkert heyrt,
sem breytt gæti áliti hans á því, hver orsök hefði verið til dauða
John Ames. Brosið var hörkulegt. Ekki gat það talizt sérlega
þung refsing á konu, sem framið hafði morð, þó að fólk einblíndi
á hana fyrir forvitnis sakir.“
Úr bókinni Morðmálið: Réttvísin gegn frú Ames
136. MAÐUR FRA SUÐUR-AMERÍKU
eftir V. Bridges. Þessi saga segir frá fátækum atvinnu-
leysingja á götum Lundúnar, sem er að hugsa um að
fremja sjálfsmorð, þegar hann hittir prúðbúinn mann, sem
er svo líkur honum, að þeir verða ekki greindir að. Fær
prúðbúni maðurinn hann til þess, fyrir góða borgun, að
leika hlutverk sitt í nokkra daga og fer ekki dult með,
að það muni verða hættulegt, enda reynist það svo. Þetta
er hörkuspennandi reyfari, sem erfitt er að hætta við áð-
ur en lesinn er til enda. — Bókin er 348 bls.
í lausasölu kr. 65.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 45.00
„ . . . Ég er ekki vanur því að verða uppnæmur, þótt eitthvað
komi fyrir. En það verð ég að játa, að mér brá ónotalega, þegar
ég heyrði þessa rödd. Þegar ég sneri mér við, stóð ég augliti til
auglitis við háan þrekinn mann. Hann var í samkvæmisklæðum,
en utan yfir var hann í síðum og ljósgulum frakka. Fyrst í stað
virtist mér sem ég þekkti manninn, og braut nokkra hríð heilann
um það, hvar við mundum hafa sézt. En svo áttaði ég mig allt
í einu.
„Hamingjan góða!“ hrópaði ég. „Sé ég sjálfan mig afturgeng-
inn?“
Maður þessi var sem lifandi eftirmynd mín að öðru leyti en
því, að hann var klæddur á annan hátt.
Hann brosti — einkennilega kuldalega. Lék brosið aðeins um
varir hans, en augun, sem horfðu á mig, voru jafn kuldaleg og
áður.
„Við erum furðanlega líkir," mælti hann rólega. „Ég hafði þó
aldrei álitið að ég væri svo gjörfulegur maður.“
Úr bókinni Maður frá Suður-Ameriku
137. GULLHELLIR INKANNA
eftir Frank B. Stockton. Þetta er spennandi saga af skips-
strandi, bardögum og svaðilförum. Skipbrotsmenn finna
gullhelli Inkanna í Perú og lenda í ýmsum ævintýrum í
sambandi við það. Þetta er sérstaklega skemmtileg
drengjabók.
f lausasölu kr. 30.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 20.00
„ . . . Þrímastraða skonnortan „Kastor" var á leiðinni suður
með vesturströnd Ameríku. Hún lagði af stað frá San Fransiskó
og var ferðinni heitið til Valparaiso í C.hile. Þetta var árið 1884.
Skipið var nú statt djúpt vestur af Perúströndum, svo eigi sá land.
Heima er bezt 347