Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 30
147. KVENNJÓSNARAR
eftir „Z7“. í þessari bók, sem þýdd er af Sigurði Björg-
ólfssyni, segir enski leyniþjónustumaðurinn „Z7“ frá end-
urminningum sínum um þá kvennjósnara, sem hann
kynntist á lífsleiðinni, því þó að hann væri starfsmaður í
ensku leyniþjónustunni, fékkst hann einnig við njósnir
fyrir aðra, bæði önnur ríki og verzlunarnjósnir fyrir
kaupsýslujöfra. — Bókin er 256 bls. í stóru broti.
í lausasölu kr. 65.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 45.00
„ . . . I'eir, sem tíðastir voru gestir í söng- og dansknæpum
Parísarborgar, þekktu vel Loirísu. Maríu Herbaut. Þar var hún
kölluð „Dansmærin Lú-lú.“ Ég kaus að segja frá þessari stúlku
í fyrstu sögunni í bók þessari af því, að hún, bezt allra njósnar-
kvenna, sem ég hef kynnzt, samsvarar þeim humyndum, er al-
menningur gerir sér um slíkar konur. En þær eru oft nefndar
„sugurnar" á tízkumáli nútímans.
Hún var yndisleg stúlka í sjón, ljós yfirlitum, há vexti og vöxt-
urinn þó yfrið fagur. Augu hennar voru stór, djúpblá og sak-
leysisleg. Og aldrei hef ég horft í jafnfögur augu.
En þrátt fyrir fegurðina var hún leikin í öllum klækibrögðum
götudrósanna og veiðibrellum. Hún var meistari í þeirri ljúfu
list að ginna reiðufé, kvenskart og gimsteinahringa, eða blátt
áfram góðan miðdegisverð, út úr viðskiptavinum, og á þann
hátt, að þeim hinum sömu þætti sér í engu misboðið. Ekki var
dans hennar með neinum ágætum, og því síður leikur hennar —
það er að segja: á leiksviðinu. Enda liðu oft langir tímar, að
hún var ekki í þjónustu listarinnar, og þessi „leyfi" hennar
urðu æ tíðari."
Cr bókinni Kvennjósnarar
10. FRÆGIR KVENNJÓSNARAR
eftir Kurt Zinger. „Hér er m. a. sagt frá ýmsum heims-
kunnum njósnurum eins og Mata Hari, Judith Coplon,
Adrienne, sem vann meS hinum makalausa njósnara
Cicero, morðinu á Leon Trotsky og Folke Bernadotte, og
því fólki sem stóð að því að koma þessum heimsfrægu
mönnum fyrir kattamef. . . . Bók þessi er í senn fróðleg
og merkileg, þó að hún sýni lesandanum inn í heim djöf-
ullegrar flærðar og myrkraverka.... ‘ Bókin er í hand-
hægu vasabókarbroti.
I lausasölu kr. 30.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 21.00
„ . . . Hver kynslóð getur af sér að minnsta kosti einn mann,
sem er eins konar persónugervingur sjúkleika samtíðar sinnar.
Á okkar tímum er þessi maður Dr. Klaus Emil Julius Fuchs,
hinn frábæri vísindamaður og sakfelldi svikari, maðurinn, sem
sóttist eftir undarlegri fullnægingu, er varð til þess að hann,
eins og Faust, gerði samning við hinn illa, sem ekki er hægt
að losna frá.
Á bak við hann stóð kona, alveg eins og konur höfðu staðið
að baki Benedict Arnold og Vidkun Quisling.
Undarleg kona, næstum barnaleg og saklaus, og þó fullkomlega
reiðubúin til að ganga á hönd hinum ofstækisfullu öflum alheims
-kommúnismans, og fá manninn, sem hún elskaði, til að svíkja
landið, sem hann hafði gert að sínu landi, í hendur erlendu
stórveldi."
tír bókinni Frægir kvennjósnarar
149. A. ÚRVALS NJÓSNARASÖGUR (I)
í safnriti þessu, sem er í 4 heftum, eru nokkrar beztu
njósnarasögur, sem völ er á: í fyrsta hefti eru sögumar:
Landráðamaðurinn eftir Somerset Maugham og
Bréfdúfnamaðurinn eftir Valentine Williams.
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
149. B. ÚRVALS NJÓSNARASÖGUR (II)
Njósnir eftir DennisWhealey.
Dulmál eftir Edgar Wallace.
Kynlegur safngripur eftir Joseph Conrad.
Hann var svo hár, að hann sást ekki eftir G. K. Chesto-
tois.
í lausasölu kr. 23.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 15.00
149. C. ÚRVALS NJÓSNARASÖGUR (III)
Skuggaherinn eftir Eric Ambler.
Óvinir manna eftir Pearl S. Buck.
í flæðiskeri eftir A. D. Divine.
Þeir, sem í glerhúsi búa eftir John Dickinson Carr.
í lausasölu kr. 23.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 15.00
149. D. ÚRVALS NJÓSNARASÖGUR (IV)
Háskalegur starfi eftir William C. White.
Ævintýrið um kafbátateikninguna eftir Sir Arthur Conan
Doyle. Sigurður Björgólfsson þýddi.
í lausasölu kr. 15.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 10.00
„ . . . Það er ekki öllum jafn vel gefið að geta logið hispurs-
laust. Og hann fór að hugsa um það, að hann gæti varla gert sér
grein fyrir því, hvers vegna frúin væri að segja honum ósatt. En
hann sá glöggt, að hún sagði ekki satt. Hún var ofurlítið ólíkinda-
leg. Og hvers vegna var hún að segja honum frá því, sem honum
hlaut að standa alveg á sama um og kom honum ekkert við? Hon-
um flaug í hug að Caypor hefði verið stefnt til Bernar til fundar
við hinn óskeikula yfirmann þýzku leyniþjónustunnar. Er tæki-
færi gafst, sagði hann eins og af tilviljun við þernuna:
„Það léttir ofurlítið á yður störfunum í dag, frauiein. Mér er
sagt, að herra Caypor hafi skroppið til Bernar í morgun.“
„Já, en hann kemur nú aftur á morgun."
Reyndar var þetta engin sönnun, en það var þó betra en ekkert.
Ashenden þekkti Svisslending nokkurn í Luzern sem fáanlegur
var í viðlögum til að gera sitt af hverju. Nú leitaði hann uppi
þennan mann og bað hann að skreppa til Bernar með bréf fyrir
sig. Það gat lánazt að hann hitti þar Caypor og gæti einhvers orðið
vísari um ferðir hans.“
tír bókinni tirvals njósnarasögur
148. A. ÚRVALS LEYNILÖGREGLUSÖGUR (I)
1 safni þessu, sem er í tveim heftum, er úrval af beztu
leynilögreglusögum, sem ritaðar hafa verið. f fyrsta hefti
birtast þessar sögur:
Perluhvarfið eftir Orczy greifafrú.
Yfirheyrzla á fjórðu gráðu eftir F. Britten Austin.
Te-blaðið eftir E. Jepson og R. Custache.
Á síðustu stundu eftir R. F. M. Scott.
Hulda vitnið eftir Sapper.
Fingraför ljúga aldrei eftir E. Johnson og G. Palmer.
í lausasölu kr. 23.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 15.00
148. B. ÚRVALS LEYNILÖGREGLUSÖGUR (II)
I öðru hefti birtast þessar sögur:
Morðið í Fenhurst eftir Hubert Fostner.
Leyndardómurinn í Femchurch Street e. Orczy greifafrú.
Stolna leyniskjalið eftir Herbert Jenkins.
Skartgripaskrínið eftir Arthur Somers Roche.
Garður lögreglustjórans eftir G. K. Chesterton.
Hendingin hefnir eftir Anthony Berkeley.
í lausasölu kr. 23.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 15.00
„ . . . Á meðan á yfirheyrzlu þessara manna stóð, hafði ég veitt
þvi eftirtekt, að Ruth var mjög ókyrr í sæti sínu og var sífellt
að gjóta augunum út að dyrum réttarsalsins, eins og hún ætti
354 Heima er bezt