Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 33

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 33
kennslubækur barnanna að beinagrind ýmissa þekking- argreina. — Þessi nýja útgáfa á sögum Jónasar Jónssonar um spendýrin, er tilvalin lesbók handa börnum til að lífga fyrir þeim hina prófbimdnu kennslu í náttúrufræði. „. . . Sennilega hafa aldrei verið skrifaðar skemmtilegri og auðnumdari námsbækur á íslandi en kennslubækur Jónasar í Dýrafræði og íslandssögu." — Þorsteinn Jóna- tansson. í lausasölu kr. 48.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 35.00 ....í frumskógum Mið-Afríku, vestan stórvatnanna og út að Atlantshafi, er annar skógarmaður, simpansinn. Hann er tölu- vert minni en górillan, frammyntur, með öfluga beinboga yfir augunum. Að lit og háralagi er hann svipaður górilla. Hand- leggirnir eru allsterklegir og ná ofan fyrir kné. Simpansarnir lifa í smáhópum, sjaldan fleiri saman en 5—10. Þeir eru ákaflega léttir á sér, klifra og stökkva ágætlega, kasta sér grein af grein. Þegar þeir hlaupa, styðja þeir höndunum niður, en eiga erfitt með að standa uppréttir nema álútir. Þegar allt leikur í lyndi, situr gamla fólkið í ró og næði undir einhverjum trjábolnum og etur ýmiss konar aldini, blöð eða unga sprota, en apabörnin leika sér í greinunum allt um kring. Ef hættu ber að höndum, leitast foreldrarnir, einkum móðirin, að bjarga börnunum, þó að bráður bani sé búinn hverjum apa, sem ekki felur sig inni í skógarþykkninu. Á kvöldin gera gömlu apamir ungunum bæli úr kvistum og greinum hátt uppi í skógarlaufinu." Úr bókinni Dýrafrœði 32. SÚ NÓTT GLEYMIST ALDREI eftir Walter Lord. Bókin um TITANIC-slysið. Sérhverju ógnar augnabliki þessarar örlagaríku og skelfilegu nætur er lýst á ljóslifandi hátt í þessari bók, sem er stórvirki á sviði sannsögulegra frásagna, geysispennandi frá upphafi til enda. Gísli Jónsson menntaskólakennari þýddi. í lausasölu kr. 115.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 80.00 ....Er allir bátamir voru farnir, kom einkennileg ró yfir Titanic. Æsingin og ringulreiðin var horfin, og hundruðin, sem eftir voru skilin, stóðu hljóðlát á efri þiljunum. Fólkið virtist reyna að þjappa sér saman inni á skipinu og reyna að vera svo langt frá borðstokknum sem unnt var. Jack Thayer stóð hjá Milton Long stjórnborðsmegin á A-þiljum. Þeir voru að horfa á tóman bátagálga og notuðu hann sem kvarða við himininn til að mæla, hve hratt skipið sykki. Þeir horfðu einnig á vonlitlar tilraunir manna að losa tvo segldúksbáta, sem bundnir voru við þakið á stýrimannaklefunum. Þeir skiptust á skiiaboðum til fjölskyldna sinna. En stundum þögðu þeir bara.“ Úr bókinni Sú nótt gleymist aldrei G8. NÝJU FÖTIN KEISARANS eftir Sigurð A. Magnússon. Þessi bók fjallar fyrst og fremst um bókmenntir, bæði innlendar og erlendar. Hún er fjölbreytt að efni og líkleg til að vekja umræður, því að hér er fjallað um ýmis þau mál, sem mestum flokka- dráttum valda manna á meðal. Sigurður hefur sínar per- sónulegu skoðanir á þessum málum og er hvergi smeyk- ur við að láta þær í ljósi, enda hefur oft staðið styr um skrif hans á undanförnum árum. í lausasölu kr. 175.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 123.00 „ . . . Fáir.núlifandi rithöfundar hafa haft aðra eins ástríðu á lífshættum og Hemingway. Það er engu líkara en návist dauð- ans veiti honum sérstæða fróun sem hann fær hvergi annarstaðar. Og það er athyglisvert að obbinn af skáldverkum hans er sprottinn úr jarðvegi lífshættunnar. Hemingway tók þátt í báðum heims- styrjöldum. í þeirri fyrri var hann sjúkrabílstjóri og særðist þá að eigin sögn um 250 sárum. í þeirri síðari var hann stríðsfrétta- ritari á Kyrrahafsvígstöðvunum. Á milli heimsstyrjaldanna tók Hemingway þátt í Spánarstríðinu og var þá oft hætt kominn. Þar samdi hann einasta leikrit sitt. Meðan hann vann að því varð hús hans fyrir sprengju, en hann slapp auðvitað lifandi. Þegar ekki var styrjöldum til að dreifa leitaði hann fyrir sér á öðrum sviðum. Hann gerðist um eitt skeið nautabani og náði töluverðri ieikni í þeirri skæðu list, þótt aldrei yrði hann matador. Einnig hér varð hann fyrir skakkaföllum. Villidýraveiðar bæði í Afríku og annarstaðar hefur hann stundað tim árabil, og var síðasta svaðilför hans einmitt ein slik.“ Úr bókinni Nýju fötin keisarans 157. SÍÐASTI GOÐINN eftir Björn Þórðarson, dr. jur. í bók þessari rekur höf- undur sögu Þorvarðs Þórarinssonar, síðasta íslenzka höfðingjans, sem gaf upp ríki sitt fyrir Hákoni Noregs- konungi. Sturlunga gefur að ýmsu leyti ófagra mynd af honum, en dr. Björn vegur hér og metur öll rök af vís- indalegri nákvæmni og kemst að allt annarri niðursöðu. Er þarna lýst merkilegum manni á stórbrotinni öld. — „ . . . Höf. fer skemmtilega með efni sitt, svo að bókin er í senn fræðirit og skemmtilestur.“ — Steindór Stein- dórsson. í lausasölu kr. 80.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 55.00 „ . . . Það væri óneitanlega skemmtilegt að eiga greinilega lýsingu samtímamanns á þessum síðasta fulltrúa stéttar, sem virðulegust hefur verið í voru þjóðfélagi. Því miður er þessu ekki að heilsa, en af þeim heimildum, sem til eru um Þorvarð, virðist hann hafa verið búinn flestum kostum og fornum dyggðum, sem fyrirmann xslenzka þjóðveldisins fyrr og síðar mest máttu prýða. Sæmdarhugsjónin hefur honum verið runnin í merg og blóð, víkingslund, hetjuhugur og höfðingleg rausn, vitsmuna er honum ekki vant né bóklegrar menntar. Og af hendingu segir Sturla oss, að Þorvarður hafi verið manna bezt íþróttum búinn, jafnsnjall Oddi bróður sínum og Kolbeini unga. Víkingsandinn stýrði gerðum Þorvarðar, er hann hóf margra vikna leiðangur til hefnda eftir Odd bróður sinn, svo að hann skyldi „eigi þykkja athlægi og ómannan". Er það enn hinn djarfasti og tvímælalaust lengsti leiðangur, sem nokkur höfðingi stofnaði til og fór hér á landi. Samfara dirfskunni sýndi Þorvarður meðal annars í þessari för herstjórnarlist á háu stigi, er honum tókst að leiða lið sitt alla hina löngu leið án þess að njósnarar Eyjólfs og Hrafns fengju veður af för hans fyrr en komið var fast að þeim og lokaðar voru allar leiðir fyrir þá til meiri liðssafnaðar. Og á úrslitastundinni, orrustunni á Þveráreyrum, kemur i ljós, að herforinginn er alveg ósvikin hetja, eins og henni er lýst í hreinustu mynd í fornsögum vorum, og það er sjálfur Sturla, sem segir hér frá.“ Úr bókinni Siðasti goðinn 156. HARÐSPORAR eftir Olaf Þorvaldsson. Þessi bók er full af skemmtileg- um minningum frá þeim gömlu og góðu tímum, þegar útilegumenn komu í kaupstað í Hafnarfirði og lyngið var skorið handa kónginum og Lokadagurinn var mesta hátíð næst á eftir jólunum, en sauðirnir seldir til útlanda á fæti. Það var líf ,sem vert er að kynnast. „ . . . Harðsporar eru frásagnir og hugleiðingar aldraðs alþýðumanns, sem ýmsu hefur kynnzt á lífsleiðinni og virðir fyrir sér at- burðina með athygli hins greinda manns, en hleypidóma- laust. . . .“ — Þorst. Þorsteinsson. í lausasölu kr. 90.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 60.00 Heima er bezt 357

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.