Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 34
„ . . . Það var síðari hluta júlímánaðar 1907. Ég var þá verzl-
unarmaður og hafði verið það nokkur undanfarin ár við hið
svonefnda Milljónafélag i Hafnarfirði. Verzlunarstjóranum, Sig-
fúsi Bergmann, hafði verið falið að útvega allmikið af lyngi,
sem nota skyldi við sérstakt og hátíðlegt tækifæri, sem nú nálg-
aðist óðum, og varð því heldur að hafa hraðann á. Bergmann
vissi, að ég var allkunnugur nágrenni Hafnarfjarðar, þar eð ég
var uppalinn þar á næstu grösum, og vildi hann nú freista,
hversu ég dygði til þessa verks.
Tildrög til þessarar miklu lyngöflunar voru þau, að konungur-
inn Friðrik VIII. ætlaði að heimsækja ísland, og í fylgd með hon-
um mundi verða margt stórmenni. Lyngið, sem ég átti að afla,
skyldi nota til skreytingar i Reykjavík og máske víðar við þetta
fágæta tækifæri. Nú skyldi ég fara með það lið, sem ég kysi og
teldi þörf á, í lynghraun, ef ekki fyrir kónginn, þá vegna kon-
ungsins.“
Úr bókinni Harðsporar
54. VÍNLAND HIÐ GÓÐA
eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. „Bókin skiptist í 12 kafla
með formála. Fyrsta greinakaflann nefnir höftmdur eins
og bókina, Vínland hið góða, og greinir þar frá Ameríku-
för höfundarins 1938 til íslendingabyggðanna í Ameríku.
Síðan koma kaflamir: Bylting á íslandi, Stóra bomban,
Eldhúsdagur 1930, Sundhöll Reykjavíkur, Geta skólar
verið skemmtilegir, Tveir baðstaðir, Landvörn íslend-
inga, Afmælisminni 1955, Brot úr ritdómum, og síðast
uppistaða bókarinnar, Halldór Kiljan Laxness. Bókin öll
sem heild og hver einstakur kafli bókarinnar ber rit-
snilldargáfu höftmdarins og hinu þróttmikla og skapandi
hugarflugi órækan vott.“ — Helgi Benediktsson.
í lausasölu kr. 150.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 105.00
„ . . . Bersögli Halldórs í ritgerðum og skáldskap hafði, eins
og við mátti búast aflað honum andstæðinga. Þannig hafði Þór-
bergur Þórðarson mjög styggzt af vinfengi Halldórs við kaþólsku
kirkjuna. Meðan Halldór dvaldi i klaustrinu í Þýzkalandi, fékk
hann alvarlegt áminningarbréf á frönsku frá Meulenberg biskupi
í Reykjavík. Var sakarefnið, að Halldór hefði skrifað, áður enn
hann gekk í klaustrið, smásögu, er hann nefndi Synd. Var það
fáguð, en léttúðug mynd af heimili gleðikonu í stórborginni.
Þótti biskupi kaþólskra manna á íslandi móðurkirkjunni minnkun
og álitshnekkir að þvílíkum ritsmíðum frá hendi kaþólsks manns.
Skömmu síðar rofnuðu flestir tengiþræðir Halldórs við páfa-
kirkjuna, en báðir aðilar stilltu í hóf i þeim skilnaðarmálum."
Úr bókinni Vínland hið góða
25. NÝIR VEGIR
eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. Þetta er 5. bindi í ritsafn-
inu „Komandi ár“ og er safn af ritgerðum og erindum
Jónasar frá síðari árum. Bókin hefst á ritgerð um Guðríði
Símonardóttur, konu Hallgríms Péturssonar, og nefnir
höf. ritgerðina „Kona skáldsins“. Þá eru greinar og fyrir-
lestrar um heimili, kirkju og skóla, og loks þættir um
nokkra merka samtímamenn.
í lausasölu kr. 85.00 Til áskr. HEB aðcins kr. 60.00
„ . . . Þegar ferill prestshjónanna í Saurbæ er athugaður með
gaumgæfni kemur í ljós, að Guðríður Símonardóttir hefir verið
mjög afflutt, bæði af samtíðarmönnum og þó einkum af síðari
kynslóðum. Ef tíundi hlutinn af þvf mannlasti, sem þjóðin bar
á Guðríði Símonardóttur, hefði verið sannindi, er með öllu
óhugsandi að eiginmaður hennar hefði ort nokkur ljóð með
skáldlegu gildi. Rannsóknir seinni tíma hafa leitt í Ijós að hinar
óvinveittu sögur um Guðríði Simonardóttur eru tilbúningur og
uppspuni. Allar þær heimildir, sem unnt er að treysta til fulls,
eru henni í vil. Eftir að þjóðtrúin gerði Hallgrím Pétursson að
dýrlingi Islendinga, þótti lítilsigldu og þroskavana fólki hans
frægð því meiri sem hann hefði átt við meiri mótgang að stríða.
í augum þessara manna var Guðríður Símonardóttir hæfilegur
skotspónn, fátæk og umkomulaus, hertekin kona. Og síðan mynd-
aði þjóðtrúin hverja kynjasöguna af annarri til að auka frægð
Hallgríms með því að niðurlægja og ófrægja konu hans með
æfintýrakenndum sögusögnum."
Úr bókinni Nýir vegir
26. EINAR BENEDIKTSSON, LJÓÐ HANS OG LÍF
eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. í bók þessari rekur hinn
snjalli stílsnillingur sögu ættmenna skáldsins, sem þýð-
ingu höfðu fyrir ljóðagerð þess, áhrif samtíðarinnar og
hina umsvifamiklu lífsbaráttu hans fyrir frelsi og framför
þjóðarinnar. Síðan velur hann sýnishorn úr ljóðum Ein-
ars, þar sem saman fer speki, formsnilld og léttleiki. Ævi-
kjörin og ljóðagerðin eru með þessum hætti saman ofin í
þessari skemmtilegu og gagnmerku bók.
í lausasölu kr. 75.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 52.00
„ . . . Einar Benediktsson. afréð að flytja búferlum af landi
burt af tveimur ástæðum. Hann vildi hrinda í framkvæmd hinum
miklu áformum sínum, að fá auðmagn ríku landanna til að
streyma til Islands. Honum nægði ekkert minna en stórfé til
að geta opnað með töframætti gullsins hinar duldu og ónotuðu
auðuppsprettur landsins. Auk þess þráði hann að taka þátt í
menningarlífi stórborganna og skildi glögglega, að skáldeðli hans
gat ekki notið sín nema með því lífi, sem var fullt af tilbreytni
og æfintýrum. En sú leið, sem lá framundan, var erfið og háska-
leg. Enginn gat komist í gegnum þær eldraunir, sem ókomni
tíminn geymdi í skauti sínu fyrir hinn íslenzka skáldvíking,
nema hann gæti lyft Grettistökum."
Úr bókinni Einar Benediktsson, líf hans og Ijóð
67. ALDAMÓTAMENN (I)
eftir Jónas Jónsson frá Hriflu. í bókinni eru ævisögur
allmargra „aldamótamanna" svo sem: Magnúsar Steph-
ensen landshöfðingja, Benedikts Sveinssonar, Hilmars
Finsen, Arnljóts Ólafssonar, Stefáns Stefánssonar, Þor-
steins Erlingssonar, Hannesar Hafstein, Jóns Sveinssonar
(Nonna), Gests Pálssonar, Torfhildar Hólm og fjölmargra
annarra. Stílsnilld Jónasar frá Hriflu er alþekkt, og er
óhætt að fullyrða, að hér er á ferðinni bók, sem er mikill
fengur, jafnt ungum sem öldnum.
í lausasölu kr. 148.00 Til áskr. HEB aðeins kr. 100.00
„ . . . Gránufélagið, hið mikla verzlunarfyrirtæki Norðlendinga
og Austfirðinga, hlaut nafn sitt fyrir hugkvæmd danskra kaup-
manna á Akureyri. Þegar verið var að vinna að stofnun Gránu-
félagsins strandaði erlend seglskúta á Eyjafirði, en var lítið
skemmd. Tryggvi sá strax, að auðvelt var að gera við skipið.
Mátti segja að þetta skip kæmi eins og sending frá æðri heimi
til félags, sem ætlaði að verzla fyrir þúsundir félagsmanna, en
vantaði farkostinn. Kaupmenn á Akureyri höfðu, sem við mátti
búast, illan bifur á þessu fyrirtæki Tryggva og ekki sízt á þeirri
nýbreytni, að gera strandskútu að verzlunarskipi. Nefndu þeir
skipið Gránu i óvirðingarskyni. Tryggvi kunni að taka góðu
gamni og sagði, að bezt væri að nota hugkvæmni keppinautanna,
kalla skipið Gránu og félagið Gránufélag. Hvort tveggja þótti
vel fara, og þrátt fyrir hrakspár allar varð Gránufélagið á blóma-
tíma sínum stærsta verzlunarfyrirtæki, sem þjóðin hafði stofnað
fram að þessum tíma.“ ,
Úr bókinni Aldamótamenn
155. 7—8—9—KNOCK—OUT —
Þetta er bók um heimsmeistarakeppnir í hnefaleik. f bók-
358 Heima er bezt