Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 3

Heima er bezt - 01.11.1965, Blaðsíða 3
NUMER II NÓVEMBER 1965 15. ARGANGUR wtbwztt ÞJOÐLEGT HEIMILISRIE Efnisyíirlit Bls. Jón í Yztafelli Karl Kristjánsson L/J OO OO Fuglaveiðar Mýrdælinga Gunnar Magnússon 398 Gulnuð blöð frá Hawaii Guðmundur J. Einarsson 400 Hjónin á Hærukollsnesi Guðmundur Eyjólfsson 403 Afríka — Meginland í fæðingu Arnold J. Toynbee 406 Hvað ungur nemur — 411 Menntasetur í strjálbýlinu: VI. Laugarvatnsskóli Stefán Jónsson 411 Dægurlagaþátturinn Stefán Jónsson 416 Á blikandi vængjum (5. hluti). Ingibjörg Sigurðardóttir 418 Samstarf þjoðanna bls. 386. — Áskriftarverð hækkar bls. 387. — Ævidagar Jóns á Laxa- mýri bls. 410. — Bréfaskipti bls. 417. — Myndasagan: Óli segir sjálfur frá bls. 427. Forsíðumynd: Jón Sigurðsson i Yztafelli. (Ljósm. Bjarni Sigurðsson.) TIL ÁSKRIFENDA Síðastliðin tvö ár hefur áskriftargjald Heima er bezt verið kr. 200.00. Á þessu tímabili hafa orðið fjórar launahækkanir hjá prenturum, þ. e. 1. jan. 1964 12%, 1. nóv. 1964 10%, 1. marz 1965 3.5% og 1. okt. 1965 18%, eða samtals 43.5%. Á sama tímabili hafa allir aðrir liðir í útgáfukostnaði, svo sem póstgjöld, pappír og miklu fleira einnig hækkað, svo sem öllum er kunnugt. Allar þess- ar hækkanir nema um kr. 90.00 af tvö hundruð króna áskriftar- gjaldi Heima er bezt. Vegna þessa neyðast útgefendur því til að hækka áskriftargjaldið um hluta af þessum miklu hækkunum eða kr. 50.00, sem er þó ekki nema 25% af áskriftargjaldinu, og verð- ur því áskriftargjaldið fyrir árið 1965 kr. 250.00. — Heima er bezt flytur engar auglýsingar, og hefur engar auglýsingatekjur, sem flest önnur blöð hafa. Allt lesefni blaðsins er því lestrarefni til gagns og skemmtunar. Þegar þess er gætt að lesmál í einum ár- gangi Heima er bezt er álíka mikið og 1100 blaðsíður af bók í venjulegri stærð, en slík bók mundi ekki kosta undir eitt þúsund krónum nú, þá er augljóst, að Heima er bezt er enn sem fyrr lang- ódýrasta lesefni, sem fáanlegt er hér á landi. Áskrifendur Heima er bezt hafa gert sitt til þess, að hægt er að halda áskriftargjald- inu svona lágu, ineð því að senda sjálfir áskriftargjaldið til útgáf- unnar, en við það sparast mikil vinna og kostnaður. Að svo mæltu árna ég lesendum Heima er bezt hamingju og heilla á nýbyrjuðum vetri. Með beztu kveðju SIGURÐUR O. BJÖRNSSON.

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.