Heima er bezt - 01.11.1965, Síða 7
í Suður-Þingeyjarsýslu. Kvæntur Nönnu Jónsdóttur.
Hann er dáinn fyrir nokkrum árum.
IV.
Kristbjörg, f. 8. júní 1919. Hún er gift Ingólfi Kristj-
ánssyni frá Reykjavík, vélvirkja. Búa þau að Yztafelli
III, og stundar hann vélaviðgerðir ásamt iandbúnaðin-
um.
Jón Sigurðsson naut menningarlegs uppeldis á heim-
ili foreldra sinna. Nógur kostur góðra bóka var á heim-
ilinu, af því að faðir hans hafði mikla aðdrætti bóka,
ekki sízt úr Bókasafni Þingeyinga. Sigurður var að eðlis-
fari mikill fræðari, og drengurinn notaði sér það af
ástríðu; fylgdi föður sínum jafnvel í slægjuna um tún
og engi, spurði og spurði; sat hjá honum við vefstólinn
og leitaði fræðslu.
Þá lærði Jón einnig af föður sínum að beita sér kapp-
samlega við verk, jafnharðan og hann fékk aldur til að
vinna; gerðist eins og faðir hans víkingur að vinnu-
kappi, en segist jafnan hafa unnið meira af kröftum og
harðfylgi en lagni, sem sér hafi einhvern veginn ekki
verið tiltæk. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að
Jón veiktist, þegar hann var 11 eða 12 ára gamall, þann-
ig, að hann datt niður allt í einu og varð máttlaus hægra
megin. Var fyrst í stað á eftir tilfinningarsljór og mál-
haltur. Tók að batna eftir nokkrar vikur, og náði sér þá
á stuttum tíma, nema hann segist ekki hafa orðið full-
komlega jafngóður í hægri höndinni og hún sé sér aldrei
vel hlýðin, t. d. við skriftir. Má vera, að í þessu áfalli eigi
að einhverju leyti rætur það, sem hann kallar skort á
verklagni hjá sér.
Fljótt kom það á Jón, sem var elzti sonur, að veita
heimilinu forstöðu í fjarverum föður síns, sem oft þurfti
að vera að heiman og stundum langdvölum vegna þátt-
töku í félagsmálum, eins og segir sig sjálft. Seinna varð
svo Marteinn félagi Jóns um forstöðuna.
Loks kom þar að 1917, þegar Sigurður gerðist ráð-
herra, að hann brá búi og Jón og Marteinn synir hans
tóku við búinu og ráku það sem félagsbú sitt fyrst í
stað.
Sumarið 1918 kvæntist Jón Helgu Friðgeirsdóttur frá
Þóroddsstað í sömu sveit. Hún er f. 9. marz 1893. Faðir
Helgu var Friðgeir, bóndi á Finnsstöðum og víðar í
Ljósavatnshreppi, Kristjánsson, bónda á Hóli í sömu
sveit, Kristjánssonar. Móðir Friðgeirs — kona Kristjáns
— var Bóthildur Grímsdóttir frá Krossi í sömu sveit.
Móðir Helgu — kona Friðgeirs — var Kristbjörg Ein-
arsdóttir, bónda á Björgum. Móðir Kristbjargar var
Agata — kona Einars — Magnúsdóttir, bónda á Sandi.
Ættir þessar eru traustar bændaættir. Helga og Jón eru
fimm-menningar að frændsemi.
Helga Friðgeirsdóttir var gott gjaforð. Hún er gjörvi-
leg kona, prýðilega greind, heilsteypt að skapgerð, hag-
sýn húsmóðir og hefur verið manni sínum skilnings-
ríkur og umhyggjusamur förunautur.
Jón og Helga eiga sex börn á lífi. Einn dreng misstu
þau skömmu eftir fæðingu hans. Börnin, sem lifa, eru
þessi í aldursröð talin:
Kristbjörg Jónsdóttir.
Sigurður Jónsson.
Jónas Jónsson.
Hólmfriður Jónsdóttir.
Friðgeir Jónsson.
Hildur Jónsdóttir.
Heima er bezt 391