Heima er bezt - 01.11.1965, Page 25

Heima er bezt - 01.11.1965, Page 25
ing og útsaumað lendaklæði, sem vissulega huldi ekki mikið af líkama þeirra, þegar vér minnumst þess að meðalhæð karlmanna þar er sex fet og sex þumlungar. Á því einu er létt að sjá, að það er örðugt fyrir norður- og suður-Súdana að lifa saman. Þjóðir þessar hafa verið knúðar inn undir sömu landa- mæri sjálfstæðs ríkis af sams konar tilviljun, og gert hef- ur verið Norður- og Suður-Nigeríu að einu ríki. Landa- mæri Nigeríu og Súdan hafa ekki verið gerð af þjóðun- um sem þar búa, heldur eru þau arfur frá evrópsku ný- lenduveldi, sem sjálfstæð nútíma ríki Afríku hafa tekið við. En landamæri nýlendnanna í Afríku voru gerð af fullkomnu handahófi. Meðan ríki Evrópu börðust um yfirráðin í Afríku háðu þau kapphlaup um að ná undir sig svo stórum landsvæðum, sem unnt var án þess að til opinberrar styrjaldar kæmi milli þeirra. Stjórnmálamenn Evrópu tóku ekkert tillit til hinna raunverulegu marka- lína milli ólíkra þjóðflokka og ættbálka, sem skapazt höfðu frá fornu fari. Landamærin, sem þeir drógu á Af- ríkukortinu, hlutuðu annars vegar sundur þjóðflokka og lönd þeirra í smábita, og skeyttu á hinn bóginn saman brot úr hinum ólíkustu þjóðflokkum, til þess að mynda brezkar, franskar, belgiskar eða ítalskar nýlendur. Land- svæði þau, sem hin sjálfstæðu Afríkuríki hafa erft, eru þannig byggð óskyldum þjóðflokkum, og líkjast þjóð- fræðilega marglitu tiglagólfi. í keppni Evrópumanna eftir nýlendum í Afríku, reyndust allar þjóðirnar, nema ein vera varnarlaus fórn- arlömb fyrir ágengni hinna framandi þjóða. Hin eina þjóð sem varði frelsi sitt var Amhara-þjóðflokkurinn í Eþjópíu. Þeir tóku þátt í kapphlaupinu um lönd og lýði, því að þeir gerðu sér Ijóst, að það var eini möguleikinn til þess, að þeir sjálfir sættu ekki sömu örlögum og aðr- ar Afríkuþjóðir, að verða skipt milli sigurvegaranna. Og Amhararnir reyndust sigursælir. Þeir tvöfölduðu eða þrefölduðu yfirráðasvæði sitt, svo að nú er nálægt helrn- ingurinn af íbúum Eþjópíu hvorki af ættstofni Amhara né kristinnar trúar. Þar sem Amharar lögðu undir sig yfirráðasvæði sitt af cigin rammleik var það mannlegt, þótt ekki væri það heppilegt, að þeir hafa haldið fast við þau landamæri, sem þeir höfðu náð, og leyfðu ekki þeinr þjóðum, sem eru af öðrurn stofni, að ná sjálfstæði sínu. En hvað skal þá segja um hin Afríkuríkin, sem hlutu sjálfstæði sitt að lokinni síðari heimsstyrjöldinni? Engin stjórn hinna nýju ríkja átti nokkurn þátt í að marka landamæriþeirra. en fengu þau í hendur frá hinum evrópsku fyrirrennur- um sínum. Það hefði í fyrstu mátt vænta þess, að þeir myndu gera upp ný landamæri eftir gagnkvæmu sam- þykki og samningum þjóða þeirra, sem hlut áttu að máli, svo að hin nýju landamæri færu eftir náttúrlegum þjóða og ættbálka mörkum eftir því sem unnt var. En sú varð ekki stefna þeirra. Það sem gerzt hefur í þeim málum er, að í öllum hinum fyrrverandi nýlendum, hafa hinir nýju stjórnendur haldið dauðahaldi í nýlendu landamær- in eins og þau væru heilagur þjóðararfur. En ef vér athugum málið betur, verður ljóst, hvers vegna þessi stefna hefur verið tekin. Fyrsta boðorð hverrar ríkisstjórnar er að halda völdum og treysta til- veru sína. Þetta var erfitt fyrir reynslulitlar og van- rnegna stjórnir, sem urðu að feta í fótspor evrópiskra fyrirrennara. Þessar óþjálfuðu og reynslulausu stjórnir óttast, að ef þær gefa það eftir að landamærin verði tek- in til endurskoðunar, muni allt annað í ríkjum þeirra hrynja saman, og þau lenda í bræðsludeiglunni. Þau ótt- ast að allt lendi í álíka stjórnleysi og gerzt hefuríKongó. Þess vegna hafa þær reynzt ósveigjanlegar í þeim efn- um að leiðrétta landamærin, eða láta fermetra af landi af hendi. Þetta er eðlilegt og óhjákvæmilegt. En það hefur vandræða ástand í för með sér. Afríkubúar hafa verið frelsaðir undan nýlendukúgun Evrópu, en til þess eins að verða skipt í tvær heildir Afríkubúa, þeirra, sem ráða og hinna, sem eru kúgaðir. Hinir undirokuðu hafa skipt um húsbændur. I stað Evrópumanna eru komnir Af- ríkumenn, en þeir hafa ekki á nokkurn hátt öðlazt meira frelsi. Sem dæmi má taka hina gömlu brezku nýlendu Kenýa. Þar hefur Kikuyu þjóðflokkurinn hlotið sam- svarandi valdaaðstöðu og Amharar í Eþjópíu. Og Ki- kuyu-stjórnin í Kenya, hefur verið fyllilega sammála Amhara-stjórninni í Eþjópíu um að harðneita kröfum Sómala minnihlutans um að sameinast frjálsu Sómalíu. Sómalíu hefur verið skipt í þrjá hluti. Einn þeirra er sjálfstætt ríki, en hinum tveim hlutunum er skipt milli Kenya og Eþjópíu. Sómalar halda því fram, að í frjálsri Afríku sé ekki stætt á því, að halda þjóð þeirra sundur- greindri. Hún eigi fullan rétt á að sameinast í eitt sjálf- stætt ríki, rétt eins og Amharar og Kikuyar eru sjálf- stæðir. Vér, sem heima eigum utan Afríku, hljótum að vera þeim sammála. Það lítur út fyrir, að um leið og ný- lenduveldi Evrópu fjarar út í Áfríku, þá skapist þar flóðalda nýrrar nýlendustefnu Afríkuríkjanna sjálfra. Allt virðist benda í þá átt að hinar máttugri Afríkuþjóð- ir fái ekki staðizt freistinguna að undiroka hina veikari frændur sína. Þetta er í beinni mótsögn við þær grund- vallarreglur, sem hin nýju Afríkuríki halda fram og segjast aðhyllast. Það er líka alrangt í eðli sínu. í stuttu rnáli, þetta er nýr harmleikur. Afríka virðist nú eftir heimsstyrjöldina síðari vera að ýmsu leyti svipuð Evrópu að loknum Napóleonsstyrj- öldunum. Ráðríkum, erlendum stjórnum hefur verið steypt af stóli, en frelsið, sem vænst var hefur ekki kom- ið í þeirra stað, að minnsta kosti ekki alls fjöldans. Verð- ur Afríkukort tuttugustu aldarinnar endurteiknað á lík- an hátt og Evrópukort nítjándu aldar? Gerist þetta á hálfri öld, eða verður það gert í skyndingi eftir hinni harðúðgu blóðs og járns reglu Bismarks? Vér getum ekki séð fyrir um örlög Afríku. En eitt vitum vér. Hvort sem framtíð Afríku verður einkennd af friði eða ofbeldi, hvort sem hún gengur veg gæfunnar, eða fetar ógæfustiginn, þá er það víst, að taka verður fullt tillit til hennar á komandi árum. St. Std. þýddi. Heima er bezt 409

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.