Heima er bezt - 01.11.1965, Page 39

Heima er bezt - 01.11.1965, Page 39
442. Ég var viðbúinn því að sjá Mikka detta dauðan niður fyrir drepandi skoti. En í þess stað rykkti Mikki svo fast í bandið við kippinn sem hann tók við skot-skelkinn, að snúran slitnaði, og Mikki þaut af stað. 445. Mikki er langt á undan mér og virðist hissa á, hve seinn ég sé. Allt í einu festi ég annan fótinn í rifu á milli plankanna og steypist á höfuðið, en hef samt hendur fyrir mér. 448. Ég kalla í Mikka og segi honum að halda áfram. En hann heldur auðvit- að að ég sé í hættu og hikar við aðvörun mína. En svo snýr hann við og kemur hlaupandi til mín. 443. Við Mikki hlaupum nú af stað yfir stokk og stein eitthvað út í bláinn, og Þorpa-Línus á eftir okkur á harða spretti með byssuna á lofti. Hér gat ekki verið um neina aðra skyttu að ræða en þennan ógnarkarl..... 446. Ég losa mig fljótt og stend upp aftur. En Þorpa-Línus hefir verið sprett- harður og nær mér nú! Hann þrífur í jakkakraga minn og hvæsir: „Nú hefi ég náð í þig, drengur minn!“ 449. Þegar Mikki er aðeins um 20 m frá okkur, bregður Þorpa-Línus upp byssunni með annarri hendinni. Nú skal honum ekki skjátlast! — hann miðar vandlega á Mikka og ætlar að grípa í gikkinn. 444. Allt í einu komum við að stóru lóni, og yfir það liggur löng plankabrú, losaralega stillt upp á lágar trönur í vatninu. Við Mikki flýtum okkur út á brúarnefnuna. 447. Þorpa-Línus heldur að hann muni geta ginnt Mikka til sín með því að halda mér föstum. Og til þess að æsa hundinn enn meira fer hann að hrista mig og skaka, eins og og hann ætli að misþyrma mér. 450. Á þessu færi getur honum ekki skjátlazt skotið, hugsa ég dauðskelkaður. En ég er fljótur að átta mig og hrindi skyttunni hart, um leið og hann ætlar að hleypa skotinu.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.