Heima er bezt - 01.06.1972, Side 2

Heima er bezt - 01.06.1972, Side 2
Nóttleysumánuður Júní, mánuður nóttleysunnar, þegar „sólin ei hverfur né sígur í kaf“ á vorum norðlægu breiddargráðum. Eng- inn árstími er eins vígður ljósi og Iífi og júnímánuður. Hvarvetna, sem vér skyggnumst um, er vaknandi, vax- andi líf. Það er áfeng gróðurilman úr jörðu, moldin sjálf fær einhvern annarlegan ilm, þegar fræin taka að spíra og gróðurnálin að teygja kollana móti ljósinu, og ofan- jarðar anga brum trjánna um leið, og blöðin breiðast gegn sumri og sól. Ungviðin skynja umhverfið og bregða á leik. Lækirnir flýta sér niður hlíðarnar með síðasta sopann, sem vetrarfannirnar hafa geymt þeim. Og yfir öllu skín lífgjafinn mikli, vorsólin heið og hlý. Það er því ekki að undra, þótt vér litlir menn fögnum júnímánuði, þegar öll náttúran sameinast í einum fagn- aðaróði til lífsins og fegurðarinnar. Og það gerum vér svo lengi, sem vér unnum meira ljósi en myrkri, lífi en dauða. En slíkt er raunar eðli vort svo lengi sem vér erum andlega heilir, og höfum ekki látið blindast af ofstæki og hleypidómum, að vér sjáum sólina, eins og þjóðtrúin sagði um Axlar-Björn, að hann hefði verið svo magnaður í vonzku sinni, að sóhn hvarf sjónum hans. Ef til vill hefir þjóðtrúin komizt þar nær innsta kjarna manneðlisins enn oss grunar. Heimur þess manns, sem hrærist í illum verkum, eða hefir fyllt sig hatri og andúð til umhverfisins, hlýtur að verða þrunginn myrkri, þótt líkamssjónin sé óskert. Slíkt eru þyngri örlög en tárum taki, því að hvernig sem vér veltum málunum fyrir oss, þá er víst að vér erum öll borin til ljóssins. Það er vöggugjöfin, sem oss öllum er fengin. Enda þótt margir skuggar sæki á oss á langri lífsleið, geymum vér samt ljósþrána í brjósti, og gleðjumst af hverjum geisla, er snertir oss, og oss er gefin sú gáfa, að geta skapað oss „hlátraheim þá heimur grætur," ef vér einungis viljum. Júnímánuður er fagnaðarmánuður þjóðar vorrar. Þá komum vér saman til að fagna frelsi voru og fullveldi og einnig að minnast vors djarfasta og farsælasta for- ystumanns, í ellefu alda sögu vorri. Mannadýrkun getur oft verið vafasöm, en aldrei megum vér þó láta fallast í þá gröf, annars vegar að hefja einstaklingana í guða- tölu eða hinsvegar að reyna smækka stórmennin með smásmuglegu aggi og aðfinnslum. Og hverjum manni, ungum sem gömlum, er andleg heilsubót, að læra að meta það, sem vel er gert og hylla þá menn, sem með fordæmi sínu og starfi hafa bent á og rutt réttar leiðir, og helga sig hugsjón réttlætisins. En því fær enginn neit- að að svo gerði Jón Sigurðsson. Þjóðhátíð vor er í nóttleysumánuðinum, næstum á sama degi og lengstur er sólargangur, þegar bjartast er yfir láði og legi. Þetta ætti að vera oss í senn tákn og áminning. Tákn þess, að þjóð vor og land sé vígt ljósinu, og áminning og viðvörun um að varpa ekki skuggum yfir það þjóðlíf, sem hér getur skapazt, ef rétt er stefnt. En fátt er svo gott, að galli né fylgi. Sjaldan eru vorin svo hlý og björt, að aldrei komi hret, sem særa nýgræð- inginn, þótt gróðrarmáttur vorsins rétti hann við. Og jafnvel á fögrum vordögum getur oss borizt mengunar- mistur í lofti utan úr hinum stóra heimi og spillt hinu bjarta heiði þess. Og þótt vor og gróandi sé í þjóðlífi voru á mörgum sviðum, eru veður válynd úti í hinum stóra heimi, og frá þeim berast oss bæði mengun og kuldi. Á því fagra vori, sem nú er að líða hafa slíkar öldur á oss skollið, og fengið hljómgrunn í athöfnum nokk- urra manna. Alvarlegasta áfellið eru atburðirnir við Árnágarð, sem flestum eru í fersku minni, og vakið hafa ugg og andúð í hugum hugsandi manna, og þó ef til vill mest undrun yfir því, að slíkt siðleysi skyldi geta gerzt hér á meðal vor. Það vekur furðu að hugarfar manna, og þá einkum unglinga, skuli geta mengast svo af f jand- samlegum áróðri þeirra manna og þjóða, sem vilja oss illa, að þeir fáizt til slíkra verka, sem engum tilgangi þjóna, nema varpa bletti á þjóð vora og menningu. Jafnvel þótt menn væru sama sinnis um afstöðu til styrj- alda og þeir ógæfuunglingar, sem söfnuðust að Árna- garði, til að svívirða sendimann vinveittrar þjóðar, verð- ur undrun þeirra mikil. En þó er ef til vill furðulegast, að þarna voru að verki ungmenni og aðrir, sem notið hafa þess bezta, sem þjóð vor getur veitt af skólamennt- un. Margt er talað um gildi skólamenntunar og nauðsyn þess, að hún geti fallið sem flestum í skaut. Eitt sem þar kveður löngum við er, að menntunin eigi að skapa heilbrigða hugsun, kenna þeim, er hennar njóta að vega og meta rök í hverju máli, en hlaupa ekki eftir hvaða áróðri sem er. Það er talið aðalsmerki hins menntaða manns, að fylgja fram máli sínu af festu og rökum en ekki með skrílslátum í orði og verki. Aldrei hefir þjóð vor varið jafnmiklu fé og fyrirhöfn til menntunar æsk- 182 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.