Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 40

Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 40
Hin mikla þátttaka, sem var í síðustu verðlaunagetraun, þar sem glímt var við spumingar úr íslendingasögunuin, gefur til kynna almennan áhuga lesenda á fomsögunum. Vegna hagstæðra samninga við útgefendur hinnar glæsilegu og fróðlegu bókar „Handritin og fornsögurnar" getum við nú boðið þessa einstæðu bók með sérstökum kostakjörum til áskrifenda „IIEIMA ER BEZT“ Bókin kostar í lausasölu kr. 1.296.50, en til áskrifenda „HEIMA ER BEZT“ aðeins kr. 950.00 Mest af því, sem skrifað hefur verið um íslenzku handritin og fornsögurnar til þessa hefur verið ætlað hinum sérfróðu. Þess vegna er það gleðiefni að nú hefur komið á markaðinn bók um þessi helztu menningarsöguverðmæti íslendinga — bók, sem skrifuð er fyrir almenning, fólk á öllum aldri. Þetta er einn merkasti viðburður á íslenzkum bókamarkaði um langt skeið. Hvernig urðu handritin til? Um hvað fjalla þau? Hvernig hafa þau varðveitzt? Hvaða gildi hafa þau fyrir nútíð og framtíð — ekki aðeins á Islandi, heldur og í alþjóðlegum skilningi? Allt þetta og fleira kemur fram hjá Jónasi Kristjánssyni, hand- ritafræðingi, í hinni nýju bók, HANDRITIN OG FORNSÖG- URNAR, sem ekki er aðeins fróðleg og skemmtileg, heldur líka með glæsilegustu verkum, sem gefin hafa verið út á Islandi. Þessi bók verður í framtíðinni talin sjálfsögð í hverjum heim- ilisbókaskáp. Hún skýrir í máli og myndum þann grundvöll, sem menningarlíf á fslandi hefur öðru fremur þróazt á í aldir. HANDRITIN OG FORNSÖGURNAR er bók fyrir alla íslend- inga. HANDRITIN OG FORNSÖGURNAR er með veglegustu bókum, sem út hafa verið gefnar hérlendis. í henni eru tugir litmynda af texta og skreytingum í mörgum af merkustu handritunum, sem varðveitzt hafa. Megnið er fengið frá Árna- safni í Kaupmannahöfn, en nokkrar einnig frá öðrum löndum. Glæsilegt verk, skýrir það sem mestu máli skiptir varðandi handritin TÍMARITIÐ HEIMA ER BEZT Pósthólf 558, Akureyri PÖNTUNARSEÐILL Vinsamlegast sendið mér undirrituðum ---eint. Handritin og fomsögumar i □ Hjálagt fylgir greiðsla kr. j □ Sendist gegn póstkröfu. I Nafn 1 Heimili

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.