Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 11

Heima er bezt - 01.06.1972, Blaðsíða 11
Andrés á gceðingi sinnm. Austur fjöllin við Borgarfjörð i baksýn. vcrði voru hestar okkar söðlaðir í Eiðahlaði, húsbænd- um þakkaður góður næturgreiði, sem ekki mátti borga, það þótti ekki sæmandi til sveita í gamla daga að selja næturgreiða né aðrar góðgerðir. Stúlkurnar okkar báru sig vel eftir mikið hoss á hestunum daginn áður, enda hestarnir góðgengir þar sem gott var undir fæti, en það var varla nokkursstaðar kominn vegspotti gerður af mannshendi, mestallur þjóðvegurinn krókóttur og grýtt- ar hestgötur og óvíða hægt að ríða samhliða þess vegna, allar ár, lækir og keldur óbrúaðar á allri þessari löngu leið, nema Eyvindaráin, enda sperrtu hestarnir eyrun, þegar að brúnni kom, og voru hikandi að ganga yfir hana þurrum fótum yfir beljandi vatnsfalhnu. Þegar kom upp um Egilsstaði komum við á beinan og breiðan veg gerðan af mannahöndum. Elestarnir urðu æstir í fjöri , og þeim gefinn laus taumurinn og skilaði okkur vel áfram inn Vellina. Það mátti segja að Eiríkur væri fararstjórinn. Hann var okkar langelstur og öllu vanur á löngu ferðalagi, hann var skemmtilegur í öllum sel- skap, kátur og spaugsamur, einkum við stúlkurnar, bað þær halda sér vel í söðulsveifina ef torfæra var á leiðinni. Um miðaftansleytið vorum við komin inn á móts við Höfða á Völlum. Þar bjó Herborg móðursystir mín með Óla manni sínum og syni sínum Guðmundi. Ég kvaddi samferðafólkið og fór heim að Höfða og var þar um nóttina. Samferðafólkið hélt áfram í Hallorms- stað og gisti þar í boði Gunnars. Daginn eftir var sama góða veðrið, samkomudagurinn. Guðmundur frændi fór með mér á samkomuna og vor- um við mættir þar í tæka tíð, áður en byrjað var að spila fótboltann. Mig minnir að Vallamenn gerðu fleiri mörk en Fljótsdælingar. Að enduðum fótbolta steig í ræðu- stól glæsileg frú með blöð í hendi og setti samkomuna með velvöldum orðum og bað síðan Benedikt Blöndal að stíga í stól og halda ræðu. Fleira var ekki á skemmti- skrá nema kraftlítill söngur. Að þessu loknu var stiginn dans undir berum himni. Kaffiveitingar voru seldar á staðnum. Fólk sem sótti þessa skemmtun hefir naumast verið 150—200 manns. Allir voru ríðandi, bílaöldin þá ekki runnin upp. Ólafur læknir var þá á Brekku, hann kom siglandi á báti sínum að heiman í Atlavík með full- an bát af fólki í þægilegum vestankalda. Þetta sumar voru ung hjón úr Borgarfirði í vinnumennsku á Vík- ingsstöðum hjá Friðriki Jónssyni. Hjónin voru Jóhann Helgason og Bergrún Arnadóttir. Bergrún var á sam- komunni með okkur og bauð okkur með sér heim og gista hjá þeim á mánudagsnóttina. Stúlkurnar og ég þáðum boðið, en Gunnar og Eiríkur ekld, þeir sögðust koma daginn eftir og taka okkur á heimleið. Eyjólfur fór heim um nóttina af vissum ástæðum. Við vorum æðistund á ballinu en fórum svo út í Vík- ingsstaði með Bergrúnu og gistum þar um nóttina. Fyr- ir hádegi komu þeir Eiríkur og Gunnar og þáðu þeir góðgerðir með okkur áður en lagt var af stað heimleiðis í sólbjörtu og yndælu veðri. Eiríkur var hress og kátur, og lék við hvern sinn fingur, sagðist hafa hitt marga frændur og vini úr Fljótsdal. Hann var þar fæddur og uppalinn. Við þökkuðum elskulegar móttökur á Vík- ingsstöðum, að því búnu kvöddum við blessað fólkið og stigum á bak gæðingunum og hleyptum á sprett úr hlaði. Hestarnir voru ofsafjörugir og við öll í sólskinsskapi á vellukkuðu og skemmtilegu ferðalagi. Á úteftirleið stönsuðum við stund og stund, fórum af baki og leyfð- um hestunum að blása út og grípa í gras á velgrónum grasvöllum, sprettum af hestunum svo þeir gætu velt sér og pissað. Á Eiðum stönsuðum við æði stund til þess að hvíla hestana og fá okkur kvöldverð, skyrhræring og fleira góðgæti. Á meðan við vorum að borða fann Eirík- ur upp á því að fara Sandaskörð til baka, sagði það vera miklu styttri leið, hann hefði farið Sandaskörð og sagð- ist rata þá leið. Okkur fannst sjálfsagt að láta Eirík ráða þessu, eins og flestu öðru á þessu ferðalagi okkar. Um tíuleytið var búið að leggja á hestana, við þökkuðum góða máltíð, kvöddum bændur og búalið, stigum á bak og stefndum á Sandaskörð með Eirík í broddi fylkingar í leit að gömlum Borgfirðingagötum, nálægt Brennistöð- um, Hamragerði og Ánastöðum. Við fundum óglöggar götur grasigrónar og fylgdi Eiríkur þeim. Er við kom- um á hálsana nálægt Ánastöðum, setti yfir svarta þoku, og annað verra að við misstum af þessum götu-troðning- um en við reyndum að halda sömu stefnu yfir hálsana, sem voru illfærir vegna niðurhlaups. Á einum stað kom- um við á þurran grænan og grösugan stað, þar fórum við af baki til þess að hvíla hestana smástund. Þeir rifu í sig grængresið, frísuðu og veltu sér um hrygg, lögðu frá sér þunnt og þykkt ropuðu og ráku við í nætur- kyrrðinni. Við áttum gotterí í tösku, þar á meðal stóra ávaxtadós, til að gæða okkur á. Er dósin var tóm, tók Eiríkur upp blað og blýant, skrifaði nöfn okkar á blaðið og skrifaði öll á villtum vegi í glórulausri þoku, setti blaðið í tómu dósina og batt hana fasta í lyngbrúska. Seinna fréttum við að dósin hefði fundist frá Ánastöð- um og hent gaman að. Við vorum þarna á lágnættinu í blæjalogni og bezta veðri, syngjandi lóur á annarri hvorri þúfu og vellandi spóar, gapandi af undrun og hræðslu við menn og hesta sem gátu stigið á hreiður eða unga í þeirra heimalandi. Okkur Eiríki kom saman um að þessi leiða þoka væri heiðmyrkur svokallað, sem reyndist rétt. Þegar hestarnir voru búnir að fá sér vel í Heima er bezt 191

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.