Heima er bezt - 01.06.1972, Side 18
KVEÐ ÉG
rnér tií hugarhcegðar
MANSTU?
Manstu þær nætur,
næturnar bláu,
er notið þú fékkst ekki svefns
því fögnuður æskunnar
fyllti þitt brjóst?
*
Ríkir nú haustgríma
hettusvört og ein
og svefninn er þér sætur.
BÆJARLÆKUR Á EYÐIBÝLI.
Enginn krýpur framar
að þínum bláa streng
á sólheitum degi
og svalar þorsta sínum
við angan af þornandi töðu.
Enginn rýfur framar
laglínu bunu þinnar
meðan skjólan fyllist.
Ekki skolar heimasætan hér lengur
úr plöggum um kvöld
á engjaslætti og horfir dreymin
út í húmið með blik þitt í augum
og klið þinn í barmi.
Og enginn stuttfótur
heimsækir þig meir
svalbjartan morgun um göngur
til að hlusta á hjal þitt
við glitrandi skarir.
Samt heldur þú áfram að renna
eins og ekkert hafi gerzt.
Svona skiptir mannlífið þá litlu máli.
SIGURÐUR Ó. PÁUSSON, skólastjóri. F.
27. des. 1930 í Breiðuvlk í Borgarfirði
eystra. Kennarapróf 1954. Kennari Hjalta-
staðaþinghá, N.-Múl., 1950—51. Skólastjóri
barnaskólans í Borgarfirði eystra 1954
—1970 og barnaskólans á Eiðum frá 1970.
Var í stjórn Umf. Borgarfjarðar um skeið.
Hefur samið leikrit og smásögur auk rit-
gerða ýmislegs efnis.
FJÓRAR VÍSUR UM NÓTTINA.
I.
Nóttin kemur þögul, mild
og mjúklega breiðir
dökka værðarvoð
yfir þreytta menn,
sezt við gluggann minn
og svarta hárið greiðir.
II.
Nóttin slítur hár
úr skeggi mánans.
Saumar silfurblóm
í sortulitað ldæði,
unz það greiðist sundur
í höndum hennar
og heldur ekki þræði.
III.
Vetrarnóttin teygir langan lopa
frá ljómandi himinsins stjörnum,
spinnur og teygir hann
til mín inn.
Svo reikar hún um fannirnar,
rósum hvítum safnar
og raðar þeim á gluggann minn.
IV.
Vornóttin kemur,
hún kemur
kyrrlát og hljóð
eftir slikjugrænni slóð
í möttlinum bláa
um mýri og mó ....
Bráðum fær hún blómagull
í skó.
198 Heima er bezt