Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 13
HINRIK A. ÞÓRÐARSON: SÍÐASTI ÞRÆLLINN (FRAMHALD) Fúsi fær fylli sína. Fúsi var matmaður mikill og fékk víst sjaldan fylli sína á yngri árum. Eru því litlar sagnir til um það, hvað miklu han torgaði í einu. Þó reyndi nokkuð á það eitt sinn er hann var á Ólafsvöllum, hjá séra Stefáni. Fúsi þótti lélegur við heyskap. Klaufskur að slá og beit illa, en drjúgur að raka og vann því oftast með konum. Það var einu sinni á Ólafsvöllum, að átta manns vann að heyverkun all-f jarri bænum, og var Fúsi í þeim hópi. Prestur var sætkenndur, sem oft bar við, og fór ríð- andi með miðdagsmatinn til fólksins á engjarnar. Voru það baunir og két, í tveim tréfötum og lok smellt yfir. Fúsi lét ekki bíða að sleppa hrífunni, þegar maturinn kom, og hýrnaði á brún þegar hann vissi hvað í fötun- um var. Klerkur sá hvað leið og hafði gaman af. Bauð hann Fúsa allan matinn, ef hann treysti sér til að ljúka honum. En tækist það ekki, skyldi hann sjálfan sig fyrir hitta. Tók Fúsi vel þessu einstæða boði, og óttaðist ekk- ert úrslitin. Hóf hann snarlega fötuna á hné sér og át sem ákafast. Lauk hann á skammri stundu því sem í var. Síðan gerði hann hinni fötunni sömu skil. Stefán sat á þúfu skammt frá og horfði á aðfarirnar. Þegar sást í botninn á seinni fötunni, reis hann á fætur og sagði við Fúsa. „Ef þér verður gott af þessu, þá hef- ur þú oft fengið lítið“. „Já oft, margoft“ sagði Fúsi, „en nú er ég líka að verða saddur, já vel saddur‘\ Prest- ur hljóp á bak og reið heim allt hvað af tók, til að sækja mat handa fólkinu. Ekki er þess getið að Fúsa yrði meint af. Svínið á Ólafsvöllum. Séra Stefán var hugkvæmur í ýmsu því er að búskap laut, og búmaður í bezta lagi, eftir því sem þá gerðist. Vildi hann auka fjölbreytni í búskap. Meðal annars með því að ala svín, til slátrunar og búdrýginda. Hug- mynd hans mun hafa verið sú, að slátra ekki grísunum, en ala svínin til fullorðins ára, svo þau yrðu meiri til frálags. Af þessu fékk hann í félag með sér, þá Jón bónda Stefánsson í Miðbýli, og Ófeig Ófeigsson bónda Fjalli. Keyptu þeir saman einn grís í Reykjavík. Þetta var göltur, tekinn um sumarsólstöður, látinn í kláf og reiddur öðrumeginn á hesti til Ólafsvalla. Stefán hafði dregist nokkuð aftur úr lestinni, því marga þurfti að tala við sem á móti komu. Mætir hann þá Gesti bónda á Hæh í Gnúpverjahreppi. Stigu þeir af baki og tóku tal saman. Og sem þeir stóðu þarna, tveir frægir brennivínsberserkir. Annar mestur að fvrir- ferð, en hinn í munninum, segir Stefán, með nokkru yfirlæti. „Mættir þú ekki mönnum með svín“? „Nei“ segir Gestur. „Ég hef engu svíni mætt nema andskot- ans stóra svíninu á Ólafsvöllum“. Og ætlaði svo að forða sér í burtu. En prestur náði til hans og rak hann undir sig, og hugðist láta kenna aflsmunar. Gestur æpti þá upp og segir: „Þá fyrst yrði ég frægur, ef ég væri drepinn af presti“. Hik kom á Stefán og féllust honum hendur í bili. Notaði Gestur sér það. Brá við og gat losað sig. Hljóp á bak og hleypti burtu. Skildi þar með þeim. Grísinn ólst upp á Ólafsvöllum í miklu eftirlæti. Gekk laus úti á daginn, en látinn í lítinn kofa á nótt- unni. Gerðist hann brátt umsvifamikill og óþægur. Rót- aði öllu sem hann réði við, og felldi það sem lauslegt var. Verst þótti þó ef hann komst í bæinn. Þar rak hann trýnið niður í hvert ílát, og skildi hvarvetna eftir sig varanleg ummerki. Hann kom rýtandi að kvíunum. Styggði ærnar, og hvergi mátti leggja af sér fötu, þá var hún á samri stundu komin á hliðina. í eitt skipti komst hann þar inn sem mjólkin var sett. Velti hann um mjólkurtrogunum, drakk mjólkina uppúr gólfinu og sparkaði allt út og eyðilagði sem hægt var að skemma. Við það dvínaði nokkuð það dálæti sem þetta nýja hús- dýr hafði notið. Og litli grísinn, sem látinn var skrækj- andi í kláf og reiddur á hesti tvær dagleiðir, stækkaði og varð að stórum gelti. Um veturinn var hann hafður einn sér í kofa og sjald- an hleypt út. Sumarið næsta gerðist gölturinn hæglátur og latur. Ráfaði oft frá bænum, og rótaði upp mold- inni með trýninu. Sjaldan fór hann langt, enda alltaf látinn inn á nóttunni. Kvöld eitt að áliðnu sumri, vantaði göltinn, þegar átti að fara að láta hann í hús og sást hann hvergi. Prestur var ekki heima og hafði þá maddaman stjómina. Bað hún Fúsa fara og leita. Því með engu móti mátti gölt- urinn týnast, og síst af öllu þegar Stefán var ekki heima. Fúsi stikaði suður túnið, og heyrði brátt rítið í gelt- inum, þar sem hann var að róta í heiðinni. Var hann í Framhald á blaðsíðu 200. Heima er bezt 193

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.