Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.06.1973, Blaðsíða 20
gat ég öldungis ekki munað eftir einum þeirra. Sama var þótt blessaður prófdómarinn reyndi að gefa mér hugboð um gamla svarta krumma. Heiðursfuglinn var alveg þurrkaður út úr vitund minni þá stundina. Tók ég þessi mistök allnærri mér, en sættist við orðinn hlut, enda slapp ég vel frá prófinu að öðru leyti. Mánuður var liðinn frá því ég veiktist, þegar við telpurnar fórum að ganga til prestsins. Venja hans var, að spyrja fermingarbörnin útúr kristnum fræðum einu sinni í viku eftir nýár. Auk þess tók hann þau viku eða hálfsmánaðartíma til uppfræðslu rétt fyrir fermingu. Mér er minnisstætt hve veður var gott allan þann tíma, sem við nutum handleiðslu hins góða kenniföðurs og hve aðbúðin var ágæt á heimili hans, enda kona hans rómuð fyrir gestrisni og myndarlegan heimilisbrag. Fermingin fór fram laust fyrir miðjan júní og hver getur gleymt fermingardeginum sínum, þótt minna væri um gjafir þá en nú. — Presturinn hélt yfir okkur þá fegurstu ræðu, sem eldra fólk mundi eftir við slíka athöfn. Eflaust hef ég gleymt þar mörgu, en enn man ég hvað hann túlkaði fallega — að nú værum við að kveðja bernskuna og leggja frá landi út í lífið. Til væri tvenns konar hamingja. Önnur væri fólgin f því, að sjá hugsjónir sínar rætast, en hin væri sú að standa sterk- ur í lífinu, þrátt fyrir vonbrigði, og um hana væri meira vert, því henni væri ætlað að gera okkur að meiri og betri einstaklingum. Nú er saga mín á enda og ef til vill verður hún ekki metin til fjár, en sjálfri mér er hún ógleymanlegur þátt- ur úr lífi mínu. LJÓÐ Fagurt er út með firði fulível una þar má, ströndina ljósörvum litar lognværan perlugrá. Þar átti ég eitt sinn heima — æskan rétti mér hönd. Nú hallar óðum að hausti hverfa mér draumalönd. Kvöldið á rauðum kyndlum kveikir við ystu sund, þeir lýsa inn yfir landið, loftið sem blóðug und. Því miðnætursólin siglir suðvestan hægan byr út fyrir sund og eyjar. Eilífðin stendur kyr. Mundu það barn sem bíður og brjóst þitt löngunin sker, að auknablik óskastund varir svo ört líður tíminn frá þér. Síðasti þrællinn Framhald af bls. 193. ---------------------------- illu skapi þá stundina, og gat Fúsi ekki amað honum úr stað, enda ólaginn við auðveldari tamningar. Tók hann þá upp það ráð, að taka göltinn á herðar sér og bera hann heim. En það var hægara sagt en gert. Gölturinn var meinþungur, en sú varð aðferð Fúsa, að hann stakk haus og herðum undir kviðinn galtarins, tók um lapp- irnar og hóf allt á loft. En þá tók ekki betra við. Kvikindið sparkaði með öllum öngum, sem mest mátti og hrein svo að Fúsa lá við að ærast. Varð hann nauðugur að láta byrðina nið- ur. Hugsar hann ráð sitt um stund, og sá að ekki tjóaði að koma allslaus heim. Herti hann sig þá upp, fæ'rðist í aukana sem mest mátti. Þreif til galtarins, tók hann í fangið og bar hann heim til bæjar. Maddama Sigríður var úti stödd þegar Fúsa bar að með skrækjandi galtar-forsmánina í fanginu. Þótti henni hraustlega að verið, og gat ekki orða bundist og mælti. „Þetta hefði Stefán þurft að sjá“. Fúsi fékk vel útilát- inn aukabita fyrir viðvikið, og betri laun gat hann ekki kosið sér. Sagðist honum svo frá, að þá hefði hann reynt mest á sig á æfinni, þegar hann bar spriklandi galtar- kvikindið í fanginu heim kargþýft túnið á Ólafsvöll- um. Leiðin sem Fúsi rogaðist með þessa óvenjulegu byrði, mun verið hafa tvö til þrjú hundruð metra löng. Gölturinn varð gamall og kominn að Fjalli þegar hann var felldur. Þótti hann full feitur, þrátt fyrir það kolvetna-hungur sem þjáði þjóðina á þeim tíma. Framhald í næsta blaði. BRÉFASKIPTI Steirvuör Ingibjörg Gisladðttir, Hrannargötu 6, ísafirði, óskar eftir bréfaskiptum við dreng eða stúlku á aldrinum 13—14 ára. Gissur SkarphiÖinsson, Fjarðarstræti 39, ísafirði, óskar eftir bréfaskiptum við stúlku eða dreng á aldrinum 11—13 ára. Sigrún Erla GuÖjónsdóttir, Vestritungu, Vestur-Landeyjum, Rang., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 15-18 ára. Margrét Jóhannsdóttir, Kirkjubraut 24, Akranesi, óskar eftir bréfaskiptum við stráka á aldrinum 16—18 ára. Æskilegt, að mynd fylgi fyrsta bréfi. Rósa Benónýsdóttir, Suðurgötu 17, Akranesi, óskar eftir bréfa- skiptum við stráka á aldrinum 16—18 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Birgir Sveinarsson, Ægisgötu 13, Akureyri, óskar eftir bréfa- skiptum við stúlku á aldrinum 19—21 ár. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. RagnheiÖur Pdlsdóttir, Hjarðarhaga, Jökuldal, N.-Múl., óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 13—15 ára. 200 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.