Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1973, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.06.1973, Qupperneq 34
lega íbúð, tvo herbergi og eldhús, ásamt aðgangi að baði og þvottahúsi, og þá áttu þau ný húsgögn, sem rúmuðust vel og smekklega í stofunni þeirra, og höfðu flest nýtízku þægindi. En nú flytja þau í eina þrönga og gluggalitla stofu og smá eldhúskytru, og húsmunir þeirra eru bæði fáir og fátæklegir, og allt eftir því. Hvílík afturför. En þeir ,sem valdir eru að slíkum örlögum, hljóta að bera þunga ábyrgð . . . Hjá því getur ekki farið, hugsar Auður. XL BRAGGA-ÆVI Rás viðburðanna heldur stöðugt áfram. Ábyrgðar- kennd sú, er vaknaði af dvala í brjósti Hreins, meðan á bústaðaskiptunum stóð, fjarðar brátt út og fellur í dá. Ginnandi freistingar ná yfirráðum að nýju, og okið verður enn þyngra en áður. Hann finnur brátt til þess, hve bragginn er ömurleg vistarvera og ólík þeim góðu og þægilegu húsakynnum, sem hann hefir einungis átt að venjast frá upphafi ævi sinnar, og viðbrigðin eru því svo mikil, að hann á erfitt með að sætti sig við þau. En hann hefir við engan að sakast nema sjálfan sig, og það finnur hann einnig vel. Hreinn er nú oftar að heiman en nokkru sinni áður, og eyðir bæði tíma og fjármunum sínum í miður góð- um félagsskap á ýmsum skemmtistöðum. En Auður bíður hans ein heima með börnin í óvistlegum bragg- anum þeirra, og vissulega er barátta hennar hörð. Úti er bjartur haustdagur. Auður hefir klætt börnin og komið þeim út í sólskinið. Og þau eru að leik á ör- litlum grasbletti, sem hún hefir sjálf afgirt handa þeim við suðurhlið braggans, og þar una þau sér vel. En Auður vinnur inni af kappi og þvær stóran þvott af bömunum. Hreinn fór til vinnu sinnar á skrifstofunni á venju- legum tíma þennan morgunn, og Auður á ekki von á honum heim aftur fyrr en undir kvöld. Djúp haust- kyrrðin er rík af ró og friði, og Auður nýtur þess í einverunni og starfið leikur í höndum hennar. En skyndilega er kyrrðin rofin. Braggahurðinni er hrundið upp og Hreinn snarast inn til konu sinnar, fas- mikill, en dapur á svip og nemur staðar hjá henni. Auður hættir starfi sínu og lítur undrandi á mann sinn, en segir síðan stilhlega. — Hversvegna ertu kominn heim á þessum tíma, góði minn? Hefir nokkuð óvænt komið fyrir? Hreinn lætur nú fallast á stól við eldhúsborðið og andvarpar þunglega: — Já, og það er bezt að ég segi þér strax sannleikann. Ég er orðinn atvinnulaus, segir hann hljómlausri röddu. — Jæja, sagðir þú starfinu lausu á skrifstofunni? — Nei, ég sagði því ekki lausu, en mér var sagt upp starfinu — með öðrum orðum, ég var rekinn, svo að þú fáir alveg rétta skýringu á því, sem gerzt hefir. — Og hvernig gerðist þetta? — Núna í morgun þegar ég kom ofan á skrifstofuna, tilkynnti húsbóndinn mér það formálalaust, að hans fyrirtæki hefði ekkert að gera með þá starfsmenn, sem ekki mættu til vinnu sinnar á réttum tíma, og væru þar að auki svo illa fyrirkallaðir suma daga vikunnar, að naumast væri hægt að kalla þá starfhæfa. Ég fann, að það var sannleikur, sem karlinn sagði, sökin var mín megin. Ég hafði ekkert skap til að ræða málið frekar, gerði upp reikninga okkar í flýti, kvaddi síðan fyrir fullt og allt og hélt mína leið. — Jæja, Hreinn minn, svo þú ert þá búinn að missa þessa ágætu stöðu á skrifstofunni. — Já, ég bjóst líka við, að svona færi. En það er allt í lagi, ég var orðinn hálfleiður á þessum skrifstofu- setum. Nú fæ ég mér bara verkamannavinnu hjá bæn- um, það er miklu frjálsara. — En heldur þú, að það verði eins örugg vinna og gefi eins mikið í aðra hönd? Og svo ertu nú orðinn óvanur að vinna erfiðisvinnu, Hreinn minn, sagði Auður. — Heldur þú, að ég sé einhver aumingi! — Nei, það álit hefi ég aldrei haft á þér. — Jæja þá! Hreinn fer ofan í vasa sinn, dregur þar upp áfengispela og drekkur úr honum vænan teyg. — Ég fékk mér héma smávegis hressingu á heimleiðinni til að jafna taugakerfið eftir kveðjurnar á skrifstofunni í morgun ,segir hann og hlær óviðfeldnum hlátri, eins konar blendingi af sársauka og uppgerðar kæruleysi. — Og nú fer ég aftur ofan í bæ og fæ mér atvinnu. Það er alltaf verið að auglýsa eftir verkamönnum, og úr nógu a ðvelja, bætir hann hressilega við og fær sér annan vænan teyg úr vasapelanum að nýju. Auður horfir á mann sinn með djúpum sársauka í hverjum andlitsdrætti, og hana hryllir við ástandi hans, en hún segir jafnrólega og áður: — Viltu ekki gera það fyrir meig, Hreinn minn, að vera kyrr hér heima í dag og hugsa málið betur. — Eg er búinn að hugsa nóg um þetta, og nú er ég fær í allt! Hann drekkur vænan teyg a fpelanum í þriðja sinn, og rís svo á fætur og slagar sönglandi út úr bragganum. Auður finniu:, að það er tilgangslaust fyrir hana að reyna að aftra för hans. Hann verður að fá að rasa út í niðurlægingu sinni að eigin vild og koma sjálfur auga á, hvert stefnir . .. Veturinn er setztur að völdum. Dagar hans eru dimmir og kaldir. Auður fær nú nýtt vandamál að stríða við, en það er kuldinn. Hún þarf mikinn eldivið til að geta hitað braggann nægilega, svo að börnin líði ekki sökum kulda, en peninga hefir hún af mjög skornum skammti til kolakaupa ,því vinnulauun manns hennar brenna á altari vínguðsins, meðan börnin hans þjást af vetrarkuldanum. Framhald. 214 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.