Heima er bezt - 01.05.1976, Blaðsíða 4
STEINDÓR STEINDÓRSSON FRÁ HLÖÐUM:
hef haft gaman af
að lifa þetta“
T)enedikt rBaldvinsson á Cfri-TDálksstöbum sóttur heim
EÍ g hafði ekki lengi verið búsettur hér á Akur-
eyri, þegar ég veitti eftirtekt aðkomumanni,
sem var hér alloft á ferð. Hann var snyrtilega
klæddur, fremur lágur vexti en þéttvaxinn og
léttur í spori. En það sem mest vakti athygli mína var
yfirbragð hans, hann var sýnilega eigi síður þéttur í
lund en á velh, svipurinn í senn hýrlegur og einbeittur
og hann bauð þann þokka, sem vakti traust og samhug.
Bráðlega frétti ég, að þetta væri Benedikt Baldvinsson
bóndi á Efri Dálksstöðum. Held ég það hafi verið kona
mín, sem kynnti okkur fyrst, en þau voru gamalkunnug.
Síðan eru Iiðin um 40 ár. Við Benedikt urðum fljótt
málkunnugir, og hafa þau kynni haldist, og við oft átt
tal saman, en hann er einn þeirra manna, sem alltaf skil-
Gamli besrinn á Efri-Dálksstöðum, byggður um aldamótin og rifinn árið 1937.
148 Heima er bezt