Heima er bezt - 01.05.1976, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.05.1976, Blaðsíða 13
samt vinir mínir. En að finna trúlega tryggan mann? Ja, þeir eru ekki svo margir. Það var vinur minn, Hans Norman, sem lofaði að taka að sér hundana, Shorty og Slim. En þegar haust- ið kom og sá tími, sem ég var vanur að taka hundana með mér, þá skrifaði Hans Norman mér og sagði, að hundarnir væru hættir að éta og engin ráð að tjónka við þá. Svo vesluðust þeir upp og drápust. Svo kvaddi ég vini mína í Pikwitonei, Thicket Portage og The Pas. 1 The Pas var Gyðingurinn, kaupmaðurinn og borgarstjórinn Ben Dembensky. Hann fræddi mig um íslenzka konu, sem var gift manni af austurevrópskum ættum. Svoleiðis var, að þessi maður fór á dýraveiðar og ætlaði að skjóta elgs- dýr. En bróðir stúlkunnar tók misgrip á þessum manni og dýri og skaut hann í lærið. Hann lifði, en hótaði bróður stúlkunnar að klaga hann fyrir tilraun til að myrða sig, nema ef hann fengi systur sína til að giftast sér. Og til að vernda bróður sinn, giftist hún þessum manni. En það var hún, sem sá fyrir f jöl- skyldunni, sem var stór. Það gerði hún með því að selja áfengi námumönnum og öðrum. Og Ben hélt verndarhendi yfir henni í mörg ár. En það var karl- inum að kenna, að hún varð að hætta og reyna svo búskap úti á landi. Það varð henni um megn. Hún bara gafst upp við bashð og stríðið og dó ung. MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Að þessu ævintýri loknu fór ég með loðskinn mín og seldi þau hinu velþekkta loðskinnauppboðsfyrirtæki í Winnipeg. Uppboðið var haldið mánuði seinna. Ég fór því og heimsótti bróður minn og fjölskyldu hans. Þau fóru með mig í Norður-Saskfylkið, og heimsótti ég þar systur mína, sem átti orðið 12 börn. Maður hennar hét Wilfred Pearson. Hann sagðist fá 10 dollara með hverju barni frá stjórninni, því að hann var hermaður frá fyrri heimsstyrjöld. Aldrei vissi ég, hvort þessir 10 dollarar voru greiddireinu sinni á ári eða á mánuði. En Wilfred sagði, að það borgaði sig að eiga krakka. Hann var vanur því að hafa alltaf spaugsyrði á reiðum höndum. Hann átti gríðar stór- an cowboyhatt, sem hann sagðist tjalda undir í rign- ingu. Honum tókst að græða peninga, þótt það væri á kreppuárunum, og kom sér upp góðum stofni af holdanautum. Börnin vildu öll tala við mig í einu, og fundu svo að því hvert fyrir sig, að hin töluðu of mikið, svo að þau kæmust ekki að. Og þau settust eins þétt og hægt var ofan á mig og reyndu að tala við mig öll í einu. Þá datt mér í hug Steinn Bollason með hans 100 börn. Við dvöldumst þarna aðeins tvo daga. Höfðum Börn fara á hestvögnum í skólann. Ekillinn er sonur Sigríðar systur höfundarins og Pearson’s. Myndin frá 1939. við mjög gaman að því að koma á samkomu, sem Indíánar af sléttunum efndu til einmitt þessa daga. Þeir settu upp girðingar, þar sem þeir höfðu ýmsar skemmtanir. Áttu þær að tákna gamla tímann, þegar þeir brenndu hvíta menn, bundna við stór tré. Þeir stráðu ösku í kringum tré, héldust svo í hendur og dönsuðu í kringum tréð, syngjandi sína gömlu stríðs- söngva. Það munu hafa verið rúmlega 100 Indíánar þarna. Þeir komu á skemmtistaðinn ríðandi á smáum hestum, þó stærri en þeim íslenzku. Svo heftu þeir hestana líkt og við oft gerðum heima á Fróni. Þar var dansað á sléttri jörðinni, og þeir karlar sungu „hóa, hóa“ með sterkri rödd og börðu sínar dýra- skinnsbumbur með spýtum, þar til þeir urðu þreytt- ir. Þá köstuðu þeir spýtunum til annarra gamalla félaga sinna' Elsti drengur Sigríðar ók tveim fallegum hestum með systkini sín í skólann. Þau fylltu hveitivagn. Komust varla fleiri á vagninn. En þau yngstu áttu nokkur ár til skólaaldurs. MEÐ GÖMLUM VINUM Á heimleiðinni heimsóttum við minn gamla félaga, Gunnar Morberg, sem ég fór á fyrstu dýraveiðarnar með til Dore Lake veturinn 1926—27. Hann var þá með góða verzlun og giftur norskri stúlku. Hann gaf okkur tvo stóra kassa af konfekti, sem börnin gátu glatt sig á. Þær voru aðeins þrjár dætur Johns bróður míns, sem voru með á þessu ferðalagi. Við heimsótt- um einnig Joe Marque, sem ég vann fyrir í þreskingu sumarið 1926. Þá var einkabarn þeirra orðin gjaf- vaxta stúlka. Og þetta fólk kom fram við mig sem Heima er bezt 157

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.