Heima er bezt - 01.05.1976, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.05.1976, Blaðsíða 24
Ásvaldur er rétt meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og beinn í baki. Hann hefir farið úr jakkanum og vinnur snöggklæddur, við brúnleita vestið hangir gild úrfesti. Hann heldur fast um orfið með sterklegum, æðaberum höndunum. Andlitsfallið er reglulegt, stutt arnarnef, ákveðinn munnsvipur og stálgrá augu undir loðnum brúnum. Hann er með rauðleitt yfirskegg, en snögg- klipptur á hár og ennið alsett djúpum hrukkum. Hárið er dökkt með gráum ýrum í vöngunum. Nú þarf hann aftur að stanza til að brýna. Enn er honum litið heim að bænum. „Að þeir skuli geta fengið sig til þess að liggja og dorma, á meðan sólin skín!“ tautar hann gremjulega, og skyrpir snöggt á brýnið. Það er að verða erfiðara að slá, eftir því sem þornar á. Hann strýkur brýninu enn nokkrum sinnum eftir ljánum, svo ræðst hann á þúfurn- ar að nýju. Allt í einu stanzar hann í miðju ljáfari. Skyldu þeir loksins vera á leiðinni? En það er ekki fótatak sonanna, sem hann heyrir. Eftir túninu kemur lftill, sköllóttur maður með poka á baki. Það er Brandur farandsali. „Sæll veri bóndinn! Sá er ekki að víla fyrir sér að taka daginn snemma!“ Brandur lætur pokann síga til jarðar og strýkur yfir ennið. „Já, mér veitir ekki af að vera að allan daginn — og dugar samt ekki til að við hér á Fossi höfum það af að Ijúka túninu í sumar,“ svarar Ásvaldur lítið eitt stutt- aralega og heldur áfram að slá. Hann virðist ekkert ýkja hrifinn af heimsókninni. „Það er ekki eins og á hinum bæjunum,“ bætir hann við, án þess að Iíta upp frá vinnunni; „þar eru víst allar hlöður orðnar fullar fyrir löngu — og meira en það.“ „O, þið á Fossi eruð víst ekki á eftir neinum með heyskapinn," segir Brandur í viðurkenningarrómi. „Margir eiga heilmikið óslegið af túnunum ennþá. Það sá ég bezt á leiðinni hingað; og þú ert í raun og veru búinn með þitt, ég tel ekki þessar kringskefjur sem þú ert...,“ hann snarþagnar skyndilega, því að hann sér á andliti Ásvalds bónda, að þetta síðasta væri betur ósagt, „ég á við, að þetta sé ekki nema lítil spilda, sem eftir er,“ flýtir hann sér að segja. „Það er engin smáræðis- heyklúka, sem þú átt úti á enginu! Þar hefur aldeilis verið loðið í sumar.“ Farandsalinn heldur áfram að stara á ljáinn, sem smýgur jafnt og þétt gegnum grasið. „Já, það er nú það, sem drengirnir hafa skafið saman þennan síðasta mánuð,“ segir Ásvaldur og er nú ögn mildari í máli. „Kemur þú alla leið úr kaupstaðnum í morgun?“ „Já, ég fór af stað klukkan fjögur,“ svarar Brandur, „og hef hvergi stanzað á Ieiðinni.“ Hann stynur þung- an, styður hönd á brjóst sér og hóstar. „Já, þú getur farið á fætur á morgnana,“ segir Ás- valdur. „Það er meira en hægt er að segja um okkur hér á Fossi; synir mínir hafa ekki ennþá komið sér úr rúmfletunum, enginn þeirra!“ „Já, ég hef alltaf verið árrisull maður,“ anzar Brand- ur, ánægður yfir lofi bónda. ,,‘Morgunstund geför gull í mund’! — En mér sýndist. vera farið að rjúka heima hjá þér fyrir nokkru síðan.“ Það verður þögn. Ásvaldur slær, og farandsalinn held- ur áfram að fylgja hreyfingum hans með augunum. „Það er heitt í dag,“ segir Brandur að lokum; hann hefir stungið nokkrum grasstráum upp í sig og tyggur þau. Ásvaldur svarar engu, en það vottar fyrir brosi í artg- um hans. Hann hefir gaman að þessari síðustu athuga- semd, því að hann veit vel, hvað fyrir Brandi vakir. En nú er skyndilega kallað heiman frá bænum: „Ás-vald-ur, Ás-vald-ur!“ Fremur hávaxin kona stendur á bæjarhlaðinu og veifar hvítum klúti. Bóndínn réttir aðra höndina upp í loftið. Það er merki þess, að hann hafi heyrt til hennar. Svo heldur hann áfram að slá með hálfu meiri ákafa en áður. „Ætli hún hafi ekki verið að kalla á þig heim?“ árseðir Brandur að segja að stundarkorni liðnu. Hann skilur ekki, hvers vegna Ásvaldur fer ekki heim. Vatn'.blá, útstæð augun mæna á bóndann í spurn og eftirvænt- ingu. Það gremst Ásvaldi, sem er ekki vanur að fleygja frá sér orfinu, um leið og kallað er á hann í málfíðir. Það eru ennþá nokkrar þúfur, sem hann ætlar að Ijúka við. Hann anzar ekki spurningu farandsala. En Brand- ur stendur kyrr í sömu sporum, svipur hans er bara ögn lúpulegur. 168 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.